Fréttir
Fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita vegna vélsleðaslyss sem varð í Gjástykki suður af Húsavík kl. 11 í morgun. Karlmaður fór þar á vélsleða sínum fram af klettavegg. Hann reyndist illa brotinn á handlegg og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann gengst undir aðgerð á hendi. Innlent 20.4.2006 15:54
Listi yfir nöfn fanga gerður opinber Bandarísk stjórnvöld hafa gert opinberan lista yfir nöfn þeirra fanga sem eru í haldi í Guantanamo fangelsinu. Á listanum eru meira en fimmhundruð fangar frá fjörutíu og einu landi og sumir hafa verið í haldi í meira en fjögur ár. Erlent 20.4.2006 12:37
Efling ályktar til stuðnings ófaglærðum á hjúkrunarheimilum Fjölmennur félagsfundur Eflingar-stéttarfélags beindi því í gærkvöldi til samninganefndar hjúkrunarheimila og heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis að ganga þegar í stað að kröfum launafólks á vinnustöðunum til að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir ófaglærðra starfsmanna. Innlent 20.4.2006 12:33
Skotbardagar og óeirðir í Nepal Allt logar í óeirðum í höfuðborg Nepals, þar sem skotbardagar geysuðu í morgun á milli lögreglu og mótmælenda úr röðum stjórnarandstæðinga í landinu. Tugþúsundir manna hafa virt útgöngubann í höfuðborginni að vettugi. Erlent 20.4.2006 12:28
Aðeins tímaspursmál að þjóðernisflokkur yrði stofnaður Dósent í stjórnmálafræði segir að það komi ekki á óvart að menn hyggi á að stofna þjóðernisflokk hér á landi líkan þeim sem þekkjast í nágrannalöndunum, slíkt hafi aðeins verið tímaspursmál. Hann segir að frekar beri að nýta kraft nýrra Íslendinga en að efna til ófriðar við þá. Innlent 20.4.2006 12:24
Heimsmarkaðsverð á hráolíu þrefaldast á 4 árum Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur þrefaldast á fjórum árum. Olíumálaráðherra Írans segist ánægður með þessa þróun. Erlent 20.4.2006 12:19
Hátíðahöld víða um land í tilefni sumarkomu Ætla má að brúnin sé farin að lyftast á flestum landsmönnum því sumartíð með blóm í haga er framundan. Fyrsti dagur sumars er einmitt í dag og verður hann haldinn hátíðlegur víða um land. Vetur og sumar frusu saman í nótt sem sagt er að boði hlýtt sumar. Innlent 20.4.2006 12:25
Ríkissjóður varð að kyngja verulegri vaxtahækkun Ríkissjóður varð að kyngja verulegri vaxtahækkun á lánum sem hann tók í tilboðum í gær. Lánin voru upp á einn og hálfan milljarð. Innlent 20.4.2006 12:20
Örlög Varnarliðsins ráðin þegar Davíð hætti Örlög Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli voru ráðin þegar Davíð Oddsson gekk úr ríkisstjórninni, því að mati Bandaríkjamanna var Bush forseti þá ekki lengur bundinn af persónulegum loforðum við Davíð, segir John Vinocur dálkahöfundur The New York Times. Innlent 20.4.2006 12:08
Kappakstur á Akureyri Lögreglan á Akureyri batt enda á kappakstur tveggja sautján ára ökumanna á Hörgárbraut upp úr miðnætti í nótt. Annar var á 115 kílómetra hraða en hinn á 103 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50. Þá stöðvaði lögreglan í Keflavík ökumann á 166 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Innlent 20.4.2006 11:06
BÍ mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands í gærkvöldi mótmælti harðlega fyrirætlunum um að þrengja starfsskilyrði blaðamanna sem fram koma í frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um dómstóla. Innlent 20.4.2006 10:59
Vélsleðaslys í Gjástykki Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita vegna vélsleðaslyss sem varð í Gjástykki suður af Húsavík kl. 11 í morgun. Karlmaður fór þar á vélsleða sínum fram af klettavegg og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun hann hafa handleggsbrotnað. Innlent 20.4.2006 11:04
Mannskæður eldur í Moskvu 11 létust og 4 slösuðust í miklum eldi sem braust út í gámum byggingaverkamanna rétt utan við Moskvu í Rússlandi. Verkamennirnir voru sofandi þegar eldurinn braust út og þeir sem létust vöknuðu aldrei og reykeitrum varð þeim að bana. Erlent 20.4.2006 10:03
Vetur og sumar frusu saman í nótt Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur víða um land í dag, þar á meðal í flestöllum hverfum Reykjavíkur. Þess má geta að vetur og sumar frusu saman í nótt sem sagt er að boði hlýtt sumar. Innlent 20.4.2006 10:54
Heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp í gær Heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp þriðja daginn í röð í gær. Verðið á tunnu endaði í rúmlega 72 bandaríkjadölum í New York í gær og hækkaði um nærri einn dal frá deginum áður. Erlent 20.4.2006 09:56
Ringulreið ríkir í Nepal Algjör ringulreið ríkir í Katmandu, höfuðborg Nepals, þar sem skotbardagar geysuðu í morgun á milli lögreglu og mótmælenda úr röðum stjórnarandstæðinga í landinu. Mótmælendurnir krefjast þess að Gyanendra konungur afsali sér einræðisvaldi sem hann tók sér fyrir rösku ári. Erlent 20.4.2006 09:52
Fólskuleg árás í Laugardal Maður réðst fólskulega á fimmtán ára stúlku og sló hana í höfuðið með hafnarboltakyldu í Laugardal í gærkvöld. Mannsins er enn leitað. Innlent 20.4.2006 09:46
Mótmælir harðlega frumvarpi um breytingar á lögum um dómstóla Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands samþykkti einróma á fundi sínum í kvöld harðorða ályktun vegna frumvarps dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um dómstóla. Innlent 19.4.2006 22:58
Kemur ekki á óvart að menn hyggi á þjóðernisflokk Dósent í stjórnmálafræði segir að það komi ekki á óvart að menn hyggi á að stofna þjóðernisflokk hér á landi líkan þeim sem þekkjast í nágrannalöndunum, slíkt hafi aðeins verið tímaspursmál. Hann segir að frekar beri að nýta kraft nýrra Íslendinga en að efna til ófriðar við þá. Innlent 19.4.2006 22:30
Ættu að taka 3X Stál sér til fyrirmyndar Íslendingar ættu að horfa til fyrirtækja eins og Þriggja Ex Stáls í umræðunni um byggðastefnu landsins. Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson við afhendingu Útflutningsverðlauna forseta Íslands á Bessastöðum í dag. Innlent 19.4.2006 22:11
Engin ákvörðun um legu Sundabrautar fyrir kosningar Ekki verður tekin ákvörðum um hvar Sundabraut á að liggja fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Málið er nú í samráðsnefnd en niðurstöðu hennar er ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi í sumar. Innlent 19.4.2006 22:13
Enn hækkar verð á bensíni Verð á bensíni heldur áfram að hækka og hefur lítrinn af 95 oktana bensíni hækkað um rúmar 16 krónur frá áramótum. Ekki er útlit fyrir að verðið eigi eftir að lækka í bráð þar sem heimsmarkaðsverð heldur áfram að hækka og krónan að veikjast. Innlent 19.4.2006 22:09
Áslaug og Sigrún hlutu barnabókaverðlaun menntaráðs Áslaug Jónsdóttir og Sigrún Árnadóttir hlutu í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur fyrir árið 2006. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, en þetta var í þrítugasta og fjórða sinn sem það er gert. Innlent 19.4.2006 20:30
Steingrímur aftur til starfa á þingi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sneri aftur til starfa á þingi í dag þegar þingið kom saman eftir viku páskafrí. Eins og kunnugt er slasaðist Steingrímur töluvert í bílslysi í Húnavatnssýslu um miðjan janúar þegar bíll hans valt í Bólstaðarhlíðarbrekku. Innlent 19.4.2006 19:31
Svifryk 19 sinnum yfir heilsuverndarmörk það sem af er ári Svifryk hefur farið 19 sinnum yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík það sem af er árinu en allt árið í fyrra fór það 21 sinni yfir mörkin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfssviði Reykjavíkurborgar. Innlent 19.4.2006 19:25
Stefna á meirihluta í bæjarstjórn Sjálfstæðismenn á Akranesi vonast til að ná meirihluta í bæjarstjórn í fyrsta skipti í meira en 60 ár. Til að auka möguleika sína á því hafa þeir fengið Gísla S. Einarsson, fyrrum þingmann Samfylkingarinnar, til að vera bæjarstjóraefni sitt. Innlent 19.4.2006 18:07
Sagðir selja líffæri úr dauðadæmdum föngum Kínverjar selja líffæri úr þúsundum dauðadæmdra fanga á hverju ári, án samþykkis þeirra. Þetta fullyrða bresk samtök sem hafa eftirlit með líffæraflutningum. Kínversk stjórnvöld neita ásökununum. Erlent 19.4.2006 18:12
Hæstiréttur Ítalíu staðfestir sigur Prodi Hæstiréttur á Ítalíu staðfesti í dag sigur Romanos Prodis í þingkosningunum á Ítalíu. Erlent 19.4.2006 18:08
Fundarhlé á Alþingi vegna þingflokksfunda Nú er fundarhlé á Alþingi þar sem hefðbundnir þingflokksfundir standa yfir. Þeim lýkur klukkan sex en þá halda væntanlega áfram heitar umræður um frumvarp ríkisstjórnarinnar um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Innlent 19.4.2006 17:24
Samningur undirritaður um Talíu-Loftbrú Reykjavíkur Samningur um Talíu-Loftbrú Reykjavíkur var undirritaður í dag. Samningurinn er hugsaður sem alþjóðlegur tengslasjóður fyrir listamenn Félags íslenskra leikara. Innlent 19.4.2006 16:06
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti