Fréttir
Ekkert sagt um gang viðræðna Ekkert er gefið upp um gang viðræðna Bandaríkjamanna og Íslendinga um varnarsamninginn sem framhaldið var í utanríkisráðuneytinu í dag. Ráðuneytið segir það eitt að aðallega hafi verið rætt um drög að nýrri varnaráætlun fyrir Ísland sem Evrópuherstjórn Bandaríkjanna hefur gert, en Ísland er í umdæmi hennar. Innlent 27.4.2006 16:37
Bakkavör Group kaupir brauðvöruframleiðanda Bakkavör Group hefur náð samkomulagi við Primebake Limited um kaup á dótturfélagi þess, New Primebake Limited, sem er stærsti framleiðandi á kældum brauðvörum í Bretlandi. Eftir kaupin verður Bakkavör Group stærsti framleiðandi kældra brauðvara í Bretlandi. Viðskipti innlent 27.4.2006 16:18
Fundi samninganefnda lokið Fundi í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna lauk fyrir um hálftíma í utanríkisráðuneytinu. Yfirlýsingu beggja aðila er að vænta nú að fundi loknum. Innlent 27.4.2006 15:47
Úrskurði dómara áfrýjað Lögmaður Jóns Geralds Sullenbergers ætlar að áfrýja til Hæstaréttar, þeim úrskurði Arngríms Ísbergs héraðsdómara frá því fyrr í dag, að hann sé hæfur til að dæma í þeim nítján ákæruliðum sem ákært hefur verið í á nýjan leik í Baugsmálinu. Lögmaður Jóns Geralds krafðist þess í morgun að dómarinn viki sæti, þar sem hann hefði lýst þeirri skoðun sinni í fyrri meðförum málsins, að Jón Gerald væri ótrúverðugt vitni. Innlent 27.4.2006 15:37
Sex milljónir til æskulýðsmála Menntamálaráðherra hefur samþykkt úthlutun tæpra sex milljóna króna úr Æskulýðssjóði. Hæstan styrk, 650 þúsund krónur, fær Landssamband æskulýðsfélaga vegna undirbúnings landsverkefnisins "Enginn eins engum til meins". Innlent 27.4.2006 14:36
Sturla Böðvarsson segir Dag B. Eggertsson fara með rangt mál Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, segir Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík, fara með rangt mál þegar hann segir það fyrsta kost samgöngunefndar að leggja Sundabraut um jarðgöng undir Kleppsvík. Vegagerðin hafi ekki verið því sammála að tekið hafi verið af skarið með að jarðgöng undir Kleppsvík séu fyrsti kostur. Innlent 27.4.2006 13:44
Ræðst í dag hvort til setuverkfalls kemur Það ræðst á fundi klukkan fjögur í dag hvort ófaglærðir starfsmenn á tólf dvalar- og hjúkrunarheimilum á suðvesturhorninu fara í vikulangt setuverkfall og hvort til fjöldauppsagna komi. Eins og greint hefur verið frá í fréttum slitnaði upp úr kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu í fyrradag en í kjölfarið ákváðu fyrirtækin að koma til móts við kröfur starfsmanna um launahækkanir en á lengri tíma en starfsmenn vildu. Innlent 27.4.2006 13:37
Ríkisstjórnin vanvirti rétt almennings Ríkissstjórn Íslands vanvirti rétt almennings þegar hún ákvað að hefja framkvæmdir við álverið í Reyðarfirði án þess að skýrsla um mat á umhverfisáhrifum lægi fyrir. Þetta segir Árni Finnson hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Hann segir frummatsskýrslu Alcoa koma allt of seint og augljóst að fyrirtækið hafi beðið álitshnekki hjá þjóðinni. Innlent 27.4.2006 13:33
Krefst endurskoðunar á frumvarpi um Kjararáð Alþýðusamband Íslands krefst þess að frumvarpinu um Kjararáð verði breytt og feluleiknum um kjör þingmanna hætt. Að sögn Ingibjargar R. Guðmundsdóttur, varaforseta sambandsins leggur sambandið áherslu á að þingheimur taki gagnrýni sambandsins til greina. Innlent 27.4.2006 13:23
Hagnaður DaimlerChrysler 299 milljón evrur Hagnaður bílaframleiðandans DaimlerChrysler nam 299 milljónum evra, jafnvirði 27,5 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársinis. Þetta er 11 milljónum evrum meira en á sama tímabili fyrir ári. Viðskipti erlent 27.4.2006 12:57
Auknum hagvexti spáð í Þýskalandi Þýskir hagfræðingar spá 1,8 prósenta hagvexti í endurskoðaðri spá sinni fyrir árið. Segja þeir útflutning vera að aukast og merki vera á lofti um aukna neyslu. Hins vegar segja þeir að dragi úr hagvexti á næsta ári. Þá minnkaði atvinnuleysi í Þýskalandi og er nú 11,5 prósent. Hagfræðingarnir spáðu 1,2 prósenta hagvexti á þessu ári í spá sem birt var í október á síðasta ári. Viðskipti erlent 27.4.2006 12:39
Skaftá er óðum að komast í sitt fyrra horf Skaftá er óðum að komast í sitt fyrra horf eftir hlaupið sem hófts þann 21. þessa mánaðar. Rennsli í Eldvatni við Ása er nú komið niður í 66 rúmmetra á sekúndu en var þegar mest var 630 rúmmetrar á sekúndu. Innlent 27.4.2006 11:04
Tekjur Reuter umfram væntingar Tekjur fjölmiðlafyrirtækisins Reuters námu 633 milljónum punda, jafnvirði tæplega 85 milljörðum krónum, á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þetta er 16 milljón pundum meira en búist var við. Viðskipti erlent 27.4.2006 10:53
Íranar svara af fullum krafti, verði ráðist á landið Íranar munu svara af fullum krafti, verði ráðist á landið. Þetta sagði æðsti klerkur landsins í gær. Utanríkisráðherra Bretlands, segir ekki koma til greina að ráðast á Írana vegna kjarnorkuáætlana þeirra en Bush Bandaríkjaforseti útilokar þó ekkert í þeim efnum. . Erlent 27.4.2006 10:40
Methagnaður hjá Kaupþing banka Hagnaður Kaupþing banka nam 18,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2006. Á sama tíma á síðasta ári nam hagnaðurinn 11,1 milljarði og er aukningin 69,5 prósent á milli ára. Hagnaður á hlut var 28,3 krónur en hann var 17 krónur á fyrsta ársfjórðungi 2005. Þetta er methagnaður í sögu bankans. Viðskipti innlent 27.4.2006 10:15
Atvinnuleysi í Danmörku í sögulegu lágmarki Atvinnuleysi í Danmörku mældist 4,8 prósent í síðasta mánuði. Samkvæmt upplýsingum dönsku hagstofunnar hefur atvinnuleysi aldrei verið minna í landinu í 30 ár.Þetta merkir að 133.500 hafi verið án atvinnu. Viðskipti erlent 27.4.2006 09:55
Útblástur frá álverinu innan marka Áhrif útblásturs frá álverinu á Reyðarfirði eru innan allra viðmiðunarmarka að því er fram kemur í frummatsskýrslu Alcoa Fjarðaráls sem kynnt var í gær. Umhverfisáhrif námuvinnslunnar á Ingólfsfjalli er óásættanleg að mati stjórnar Landverndar og hvetur hún sveitarstjórnir á Suðurlandi til að fara að áliti Skipulagsstofnunnar. Innlent 26.4.2006 22:35
Námuvinnslu verði hætt í Ingólfsfjalli Umhverfisáhrif námuvinnslunnar á Ingólfsfjalli er óásættanleg að mati stjórnar Landverndar og hvetur hún sveitarstjórnir á Suðurlandi til að fara að áliti Skipulagsstofnunnar. Á heimasíðu Landverndar segir að Ingólfsfjall sé mikilvægt kennileiti á Suðurlandi og að fjallið hafi menningarlegt sögugildi þar sem það ber nafn fyrsta landnámsmanns Íslands. Innlent 26.4.2006 22:30
Eitt útkall vegna sinubruna Slökkvilið höfuðbrogarsvæðisins var kallað út um klukkan níu í kvöld vegna sinubruna við Garðaveg á Álftanesi. Einn slökkviliðsbíll fór á staðinn og náðu slökkviliðsmenn að slökkva eldinn áður en hann náði að breiðast frekar út. Talið er að sinueldurinn hafi verið kveiktur af mannavöldum. Innlent 26.4.2006 22:27
Mikill verðmunur í byggingavöruverslunum Mikill verðmunur er í byggingavöruverslunum landsins að því er fram kemur í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í gær. Mestur var verðmunurinn 70 prósent á ryðfríum skrúfum en minnstur á málningarlímbandi eða 4,4 prósent. Könnunin var gerð í verslunum Byko í Breiddinni og Húsasmiðjunni í Skútuvogi. Skoðaðar voru 22 vörur til heimilisins eins og gasgrill, fjöltengi, garðáhöld, reykskynjari, ljósaperur, málningarvörur, skrúfur og pallaefni. Innlent 26.4.2006 22:27
Gríðarlegt ofbeldi og vitleysa Gríðarlegt ofbeldi og vitleysa eru orðin sem forstjóri 365 miðla notar um þá fyrirætlan ráðamanna að koma fjölmiðlafrumvarpinu og frumvarpinu um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins í gegn fyrir þinglok. Innlent 26.4.2006 22:24
Segir sýndarmennsku einkenna mörg brúðkaup Biskup Íslands fjallaði um brúðkaup í Hollywood stíl í messu á prestastefnu í keflavíkurkirkju í gær. Hann hvatti presta og organista til að standa saman gegn afhelgun í kirkjum landsins. Innlent 26.4.2006 21:50
Snow næsti talsmaður Hvíta hússins Tony Snow, fréttamaður á Fox-sjónvarpsstöðinni bandarísku, verður næsti talsmaður Hvíta hússins. Hann tekur við starfi Scotts McClellan sem í síðustu viku var látinn taka pokann sinn. Erlent 26.4.2006 20:44
Umferðarslys í Hvalfjarðargöngunum Fólksbíll lenti utan í vegg í Hvalfjarðargögnunum á níunda tímanum í kvöld. Ökumaður, sem var einn í bílnum, var fluttur á Sjúkrahúsið á Akranesi en hann kenndi sér eymsla í baki og hálsi. Hvalfjarðargöngunum var lokað til norðurs vegna í tæpa klukkustund vegna árekstursins en búið er að opna fyrir umferð á ný. Innlent 26.4.2006 20:34
Mælir útgeislun geislavirkra efna Það lætur ekki mikið fyrir sér fara tækið, sem er eitt aðalverkfæri þeirra sem mæla geislun í umhverfinu. Gaiger teljari var fundinn upp fyrir um áttatíu árum. Teljarinn er notaður til að finna úran og önnur geislavirk efni í jarðveginum. Innlent 26.4.2006 20:21
Varar við innrás í Íran Ali Khamenei erkiklerkur í Íran varaði Bandaríkjamenn við að ráðast inn í landið í ræðu sem hann flutti á þingi íranskra verkamanna í dag. Erlent 26.4.2006 20:40
Íslendingafélag stofnað í Peking Íslendingafélag var stofnað í Peking í Kína í gær. Ríflega þrjátíu Íslendingar á öllum aldri búa í Peking og er stór hluti þeirra námsmenn. Tilgangur félagsins er meðal annars að halda utan um og efla félagsstarfsemi Íslending í Peking og nágrenni, auk þess að efla og rækta tengsl félagsmanna við Alþýðulýðveldið í Kína eftir því sem tök eru á. Stofnfundur félagsins var haldinn í sendiráði Íslands í Peking en þangað mættu fimmtán manns að því tilefni. Innlent 26.4.2006 19:17
Prestar taki upp blessunarform fyrir samkynhneigða Kenningarnefnd Þjóðkirkjunnar leggur til að tekin verði upp sérstök form á blessun staðfestrar samvistar samkynhneigðra para. Tillögur að blessunarformunum voru kynntar á prestastefnu og eru prestar hvattir til að nota þau á næsta ári til reynslu, eða þar til þjóðkirkjan tekur endanlega ákvörðun um hvort eða hvernig hún komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra. Innlent 26.4.2006 18:58
Fangaflugið var umfangsmikið og kerfisbundið Sérkennilegar leiðir fangaflugvéla bandarísku leyniþjónustunnar CIA frá einni borg til annarrar voru á meðal þess sem vakti grunsemdir rannsóknarnefndar Evrópuþingsins. Nefndin skilaði bráðabirgðaskýrslu sinni í dag þar sem því er haldið fram að CIA hafi flogið rúmlega þúsund sinnum í gegnum lofthelgi ESB síðan 2001 án þess að gera grein fyrir ferðum sínum. Erlent 26.4.2006 18:13
Ósáttir við starfsumhverfi lögreglumanna Landssamband lögreglumanna segir að tveir nýlegir dómar bendi til að vægar sé tekið á brotum gegn lögreglumönnum en sýslumönnum. Innlent 26.4.2006 18:28