Fréttir

Fréttamynd

Sló mann með brotinni glerflösku

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tvítugan karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á menningarnótt árið 2003. Fimm mánuðir eru skilorðsbundnir. Þá skal hann greiða ákæranda 60.000 krónur í skaðabætur og lögmannskostnað. Hann sló ítrekað til kæranda með brotinni flösku og olli alvarlegum, en þó ekki lífshættulegum, áverkum.

Innlent
Fréttamynd

Fyrrum forsætisráðherra í rannsókn

Saksóknarar í Rússlandi hófu á mánudag rannsókn á meintum fjársvikum Mikhail Kasyanov, sem var forsætisráðherra Rússlands árin 2000-2004. Eftir að Pútín Rússlandsforseti rak hann úr embætti á síðasta ári gerðist Kasyanov einn harðasti gagnrýnandi Pútins.

Erlent
Fréttamynd

PFS vill skýringar á viðgerðartöf

Póst- og fjarskiptastofnun hefur ritað forsvarsmönnum Farice sæstrengsins bréf þar sem óskað er eftir skýringum á óhóflegu rofi á þjónustunni fyrir um hálfum mánuði síðan.

Innlent
Fréttamynd

Bendir allt til sjálfsmorðsárása

Talið er að fjórir tilræðismenn hafi verið meðal þeirra sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum síðastliðinn fimmtudag. Breska lögreglan greindi frá þessu síðdegis og bendir allt til þess að um sjálfsmorðsárásir hafi verið að ræða.

Erlent
Fréttamynd

Grunur um morð á Íslendingi

Grunur leikur á að Íslendingur hafi verið myrtur í Suður-Afríku og líki hans komið fyrir í tunnu fullri af steypu. Tvennt er í haldi lögreglunnar vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Útkall vegna eldri manns

Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út um níuleytið í gærkvöld vegna 65 ára manns sem hafði ekki skilað sér af Esjunni. Maðurinn hafði farið að heiman um hádegið og búist var við honum síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Minni losun gróðurhúsalofttegunda

Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda minnkaði um rúmt prósent milli áranna 2002 og 2003. Helstu ástæður lækkunarinnar eru minna útstreymi frá sjávarútvegi og landbúnaði en útstreymi frá samgöngum, iðnaði og byggingarstarfsemi jókst milli ára.

Innlent
Fréttamynd

500 milljarða fyrirtækjakaup

Á síðustu átján mánuðum hafa Íslendingar keypt stærri fyrirtæki erlendis fyrir um 450 milljarða og gera má ráð fyrir því að erlend fyrirtækjakaup nemi mun hærri upphæð ef óskráð fyrirtæki eru talin með. Þetta kemur fram í úttekt Markaðarins á erlendum fyrirtækjakaupum sem fylgir Fréttablaðinu í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Líklega sjálfsmorðsárásir

Breska lögreglan rannsakar nú hvort fjórir meintir sjálfsmorðsárásarmenn hafi verið meðal þeirra látnu í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum. Í gærkvöld sagðist hún hafa sannanir fyrir því að í það minnsta einn sprengjumaður hafi látist og verið væri að kanna hvort svo hefði verið um þá alla.

Erlent
Fréttamynd

Pamplona: 4 töluvert slasaðir

Fjórir menn slösuðust töluvert í hinu árlega nautahlaupi í borginni Pamplona á Spáni í morgun. Meðal þeirra var einn öryggislögreglumaður sem var á vakt. Nautahlaupið fer fram dagana 7. til 14. júlí og er hluti af sumarhátíð í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Tíu ár frá fjöldamorðunum

Tugþúsundir minntust þess í Srebrenica í Bosníu í dag að tíu ár eru liðin frá því að átta þúsund íslamskir karlar og drengir voru myrtir á hrottalegan hátt af Bosníu-Serbum í Bosníustríðinu.

Erlent
Fréttamynd

Skoða rússneska kafbátaskipið

Til stendur að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Davíð Oddsson utanríkisráðherra heimsæki rússneska kafbátaskipið Aðmírál Levchenko í dag. Skotið verður úr fallbyssum til heiðurs þeim við komu þeirra um borð. 

Innlent
Fréttamynd

Þarfnast brýnnar endurskoðunar

Neyðarskipulag almannavarna þarfnast brýnnar endurskipulagningar. Liðin eru þrettán til fimmtán ár síðan skipulagið var síðast endurskoðað en upphaflega var gengið út frá því að endurskoðun færi fram á fimm ára fresti að sögn Björns Halldórssonar, deildarstjóra almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra.

Innlent
Fréttamynd

Sjö Írakar myrtir í morgun

Hópur uppreisnarmanna myrti í morgun sjö írakska hermenn nærri höfuðborginni Bagdad. Uppreisnarmennirnir óðu inn í eftirlitsstöð hersins og skutu þar á allt sem fyrir varð. Fimm manns særðust í skotbardögunum sem stóðu í um hálfa klukkustund.

Erlent
Fréttamynd

Fékk veiðarfærin í skrúfuna

Fiskibátur sem var að veiðum skammt frá Vestmannaeyjum í nótt fékk veiðarfærin í skrúfuna og varð við það vélarvana og stjórnlaus. Skipstjóri kallaði á Lóðsinn í Eyjum til aðstoðar sem dró bátinn til hafnar í Eyjum.

Innlent
Fréttamynd

Bakijev kjörinn forseti Kirgistans

Kurmanbek Bakijev hefur verið kjörinn forseti Kirgistans. Þegar búið var að telja nærri öll atkvæði í morgun hafði Bakijev hlotið nærri áttatíu og níu prósent talinna atkvæða og því unnið kosningarnar með algjörum yfirburðum.

Erlent
Fréttamynd

Langir biðlistar í sólina

Annir eru á ferðaskrifstofum þessa dagana vegna sóknar fólks í að komast í sólarlandaferðir. Víðast hvar er fullbókað og biðlistar langir. Reynt er eftir megni að fjölga flugsætum og gistirýmum. Dæmi eru um að fólk fresti sumarleyfum sínum þar til það kemst í sólina. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Strandblakvellir á Þingeyri

Unnið er að gerð tveggja strandblakvalla við íþróttamiðstöðina á Þingeyri að því er fram kemur á Þingeyrarvefnum.

Innlent
Fréttamynd

16 létust í gassprengingu

Sextán manns létu lífið þegar öflug gassprenging varð í verslun í bænum Ukhta í norðausturhluta Rússlands fyrir stundu. Verslunin er á tveimur hæðum og er önnur hæðin nánast ónýt.

Erlent
Fréttamynd

Ræningjarnir yfirheyrðir í dag

Mennirnir tveir sem rændu lyfjum úr apótekinu í Austurveri í gær og peningum á Dominos Pizzu í Spönginni, vopnaðir hnífi og skrúfjárni, eru enn í haldi lögreglu og verða yfirheyrðir nánar í dag. Meðal annars verður kannað hvort þeir hafi fleiri afbrot á samviskunni.

Innlent
Fréttamynd

R-listi: Viðræðum haldið áfram

Flokkarnir þrír sem standa að R-listanum ákváðu rétt fyrir klukkan sex að halda áfram viðræðum um samstarf. Fyrr í dag hótuðu framsóknarmenn í samninganefnd fyrir R-listann að hætta samstarfinu ef Samfylkingin kæmi ekki með nýtt útspil á fundi flokkanna sem haldinn var síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Ók á 150 þegar hann sá stúlkuna

Tæplega nítján ára piltur var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur í eins mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Hann ók á fjórtán ára stúlku á Bíldudalsvegi síðasta sumar. Sjálfur segist hann hafa verið á 150 kílómetra hraða þegar hann sá stúlkuna.

Innlent
Fréttamynd

Ekki sá usli sem búist var við

Fellibylurinn Dennis olli ekki eins miklum usla og búist var við á suðausturströnd Bandaríkjanna í nótt og í morgun. Fjöldi heimila skemmdist í Flórída og Alabama þegar bylurinn gekk yfir á 190 kílómetra hraða á klukkustund þegar mest var en um tvær milljónir manna voru hvattar til að yfirgefa heimili sín.

Erlent
Fréttamynd

Tveir létust á flugsýningu

Tvær litlar flugvélar flugu hvor á aðra á flugsýningu í Kanada í gær með þeim afleiðingum að báðir flugmennirnir létust samstundis. Flugvélarnar voru að líkja eftir orrustum í fyrri heimsstyrjöldinni en ekki vildi betur til en svo að önnur vélin flaug upp undir hina.

Erlent
Fréttamynd

Londonárás: 52 látnir

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði á breska þinginu í dag að allt benti til þess að hryðjuverkaárásunum í London í síðustu viku hefðu verið skipulagðar af íslömskum öfgamönnum. Staðfest hefur verið að 52 létust í árásunum og eru 56 enn á spítala.

Erlent
Fréttamynd

Í lopapeysu með grænan hatt

Lögreglan í Reykjavík leitar enn manns sem framdi vopnað rán í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica í hádeginu í dag. Maðurinn, sem er lágvaxinn og grannur, var klæddur í rauðleita lopapeysu með röndum á ermum og með grænan hatt. Hann er talinn vera á aldrinum 20 til 30 ára.

Innlent
Fréttamynd

Vendipunktur hjá R-listanum

Ákveðinn vendipunktur varð á fundi fulltrúa aðildarflokka R-listans í dag að því er segir í tilkynningu frá fundarmönnum. Hvað þar var um að ræða er ekki útskýrt nánar.

Innlent
Fréttamynd

Davíð skoðar Aðmírálinn

Davíð Oddson forsætisráðherra heimsótti um tvöleytið í gær rússneska kafbátaskipið Aðmíral Levchenko, sem liggur við Reykjavíkurhöfn. Í samræmi við alþjóðlegar hefðir var skotið sautján sinnum úr fallbyssum skipsins við komu hans í það.

Innlent