Fréttir
Enn merki um alþjóðlega starfsemi Tveir útlendingar voru handteknir í Reykjavík í vikunni en þeir eru grunaðir um fíkniefnasölu. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík gerði húsleit í miðborg Reykjavíkur þar sem töluvert magn af amfetamíni og e-pillum fannst. Rennir málið ennfrekari stoðum undir það að alþjóðleg glæpastarfsemi hafi skotið rótum á Íslandi. Innlent 13.10.2005 19:31
Viðhorf múslima jákvæðara en áður Hryðjuverk gagnvart bandarískum hermönnum í Írak eru réttlætanleg að mati helmings múslima í Jórdaníu og Líbanon. Þrátt fyrir það er viðhorf þeirra til vestrænna þjóða mun jákvæðara í dag en áður. Erlent 13.10.2005 19:31
Ódæðin halda áfram Stjórnvöld í Keníu hafa sent 2.000 hermenn til norðurhluta landsins til að hafa upp á þeim sem frömdu fjöldamorð í bænum Turbi á þriðjudaginn. 76 biðu bana, þar af 22 börn. Erlent 13.10.2005 19:31
Nýr forstjóri Fjármálaeftirlitsins Jónas Fr. Jónsson mun taka við starfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins en staðan var auglýst til umsóknar eftir að fyrrverandi forstjóri, Páll Gunnar Pálsson, tók við starfi forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Innlent 13.10.2005 19:31
Ólgan á Gaza fer vaxandi Í odda skarst á milli palestínskra öryggissveita og skæruliða Hamas-samtakanna í Gazaborg í gær og féllu tveir unglingar í bardögunum. Þetta eru verstu átök á milli Palestínumanna í áraraðir. Erlent 13.10.2005 19:31
50 handteknir vegna barnakláms Tæplega fimmtíu manns sem grunaðir eru um að hafa dreift barnaklámi á Netinu voru handteknir í Portúgal í gær. Þetta er stærsta aðgerð sem lögreglan þar í landi hefur ráðist í af þessu tagi. Erlent 13.10.2005 19:31
Efnafræðingurinn handtekinn Lögreglan í Kaíró handtók í gær egypskan efnafræðinema sem grunaður er um að hafa átt aðild að hryðjuverkunum í Lundúnum í síðustu viku. Leiðtogar múslima í Bretlandi heimsóttu Leeds í gær og hétu því að taka öfgamenn í sínum röðum fastari tökum. Erlent 13.10.2005 19:31
Flutningabíll fór út af í Kömbunum Bílstjóri flutningabíls slasaðist nokkuð þegar bíllinn fór út af veginum í Kömbunum síðdegis. Talið er að bilun hafi valdið óhappinu. Bíllinn fór út af ofarlega í Kömbunum, rann um 150 metra niður mosabala, þaðan hann fór yfir Suðurlandsveginn og að lokum um 100 metra niður hlíð þar sem hann að lokum stöðvaðist. Innlent 13.10.2005 19:31
Geimskot í fyrsta lagi á sunnudag Bandaríska geimferðastofnunin NASA segir að geimferjunni Discovery muni í fyrsta lagi verða skotið á loft á sunnudag en ekki á morgun eins og haldið hefur verið fram. NASA hefur svigrúm til mánaðamóta til að senda ferjuna í fyrirhugaða tólf daga för að Alþjóðlegu geimstöðinni. Erlent 13.10.2005 19:31
Bæta ímynd múslíma Samtök múslíma í Bandaríkjunum hafa hafið einskonar markaðsherferð undir nafninu „Ekki í nafni íslam“. Markmiðið er að bæta ímynd múslíma í landinu en þeir hafa þar í landi, líkt og á Bretlandi, verið áreittir eftir sprengjuárásirnar í London. Innlent 13.10.2005 19:31
Ók stjórnlaus niður Kambana Bílstjóri var fluttur slasaður með sjúkrabifreið til Reykjavíkur eftir að fullfermdur malarflutningabíll sem hann ók rann stjórnlaus niður Kambana skömmu eftir hádegi í gær. Meiðsl hans voru ekki talin mjög alvarleg en bifreiðin er mikið skemmd, ef ekki ónýt. Innlent 13.10.2005 19:31
Ráðinn forstjóri Fjármálaeftirlits Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur ráðið Jónas Fr. Jónsson forstjóra eftirlitsins frá og með 18. júlí. Jónas hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri innra markaðssviðs Eftirlitstofnunar EFTA í Brussel. Innlent 13.10.2005 19:31
Minnisvarði afhjúpaður á Ísafirði Minnisvarði var afhjúpaður á Ísafirði í gær um fólkið sem lét lífið þegar sex skip sukku út af Vestfjörðum í síðari heimsstyrjöld. Minnisvarðinn er gjöf frá rússneskum stjórnvöldum í tilefni af því að 60 ár eru um þessar mundir liðin frá lokum styrjaldarinnar. Innlent 13.10.2005 19:31
Hringurinn þrengist óðum Hringurinn þrengist óðum um höfuðpaura árásanna í London en lögreglan handtók í dag efnafræðinginn svokallaða sem hefur verið eftirlýstur um allan heim. Þá voru fjórir menn handteknir í Pakistan í dag, grunaðir um aðild að hryðjuverkunum. Enn er þó að minnsta kosti einn höfuðpauranna ófundinn. Erlent 13.10.2005 19:31
Marktæk aukning á dánartíðni Dánartíðni á landinu fór upp fyrir eðlilegt viðmiðunarbil í febrúar á sama tíma og hinn árlegi inflúensufaraldur var í hámarki. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum, gefnum út af Landlæknisembættinu. Innlent 13.10.2005 19:31
Rúta og strætisvagn skullu saman Að minnsta kosti tveir slösuðust, en þó ekki alvarlega eftir því sem best er vitað, þegar rútubíll og strætisvagn skullu saman á gatnamótum Túngötu og Ægisgötu á tólfta tímanum. Innlent 13.10.2005 19:31
Þrír bílar höfnuðu utan vegar Þrír bílar höfnuðu utan vegar á Vestfjörðum í gær en enginn sem í þeim var slasaðist þó alvarlega. Einn fór út af í Bitrufirði, annar á Dynjandisheiði og sá þriðji valt út af veginum í Dýrafirði og hafnaði ofan í fjöru. Innlent 13.10.2005 19:31
Fuglaflensan komin til Indónesíu? Sterkar vísbendingar eru um að fuglaflensan sé komin til Indónesíu sem er fjórða fjölmennasta ríki heims. Þrír úr sömu fjölskyldu hafa látist og hafa stjórnvöld nú þegar leitað aðstoðar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar við rannsókn málsins. Erlent 13.10.2005 19:31
Karl í kvennaflokki Dómari í Simbabve hefur dæmt ungan mann í fjögurra ára fangelsi fyrir að villa á sér heimildir og valda félögum sínum sálartjóni. Hann keppti í frjálsum íþróttum og vann til nokkurra verðlauna fyrir land sitt - í kvennaflokki. Erlent 13.10.2005 19:31
Tugir fórust í Bagdad Rúmlega 30 manns, hið minnsta, létu lífið í sprengjuárásum í Írak sem stóðu frá morgni til kvölds í gær. 111 til viðbótar særðust. Erlent 13.10.2005 19:31
Harry Potter kominn út Sala á sjöttu bókinni um galdrastrákinn Harry Potter hófst á miðnætti í nótt. Fyrstu aðdáendurnir voru mættir fyrir utan Mál og menningu á Laugarvegi um klukkan tíu í gærmorgun og fjölgaði eftir því sem leið á daginn. Innlent 13.10.2005 19:31
Vel heppnað í alla staði Íslandsdagurinn á Expo 2005 heimssýningunni sem haldin er í Aichi-héraðinu í Japan var í gær og tókst dagskráin í alla staði mjög vel að sögn Kristínar Ingvarsdóttur sem starfar fyrir Norðurlöndin á heimssýningunni. Innlent 13.10.2005 19:31
Öryggiseftirlit hert Starfsfólk hefur miklar áhyggjur, ekki einungis þeir sem lentu í ránunum heldur líka hinir," segir Hjalti Sölvason, rekstrarstjóri Lyfja og heilsu. Ákveðið hefur verið að grípa til róttækra öryggisaðgerða í fyrirtækinu eftir tvö vopnuð rán í lyfjabúðir fyrirtækisins fyrr í vikunni. Innlent 13.10.2005 19:31
Londonárás: 4 handteknir í viðbót Fjórir menn sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkunum í London í síðustu viku voru handteknir í Pakistan í dag. Mennirnir voru handsamaðir í borginni Faisalabad í miðhluta landsins. Erlent 13.10.2005 19:31
Talið að 136 hafi farist Mörg hundruð þorpsbúa komu saman í morgun á vettvangi lestarslyssins sem varð í Pakistan á miðvikudag til að vera við jarðsetningu þeirra sem ekki hafa verið borin kennsl á en alls eru það 64. Talið er að 136 hafi farist í árekstri þriggja hraðlesta en ekki er var hryðjuverkum um að kenna að þessu sinni heldur var um mannleg mistök að ræða. Erlent 13.10.2005 19:31
Þúsundir minntust fórnarlambanna Þúsundir manna komu saman við Trafalgar-torg í London í gærkvöld til að minnast þeirra sem létu lífið í sprengingunum í London í síðustu viku en tala látinna er nú komin í fimmtíu og fjóra. Lögreglan segir að enn megi búast við að tala látinna muni hækka. Erlent 13.10.2005 19:31
Ráðist inn í landbúnaðarráðuneytið Ólga fer vaxandi á Filippseyjum vegna ásakana um kosningasvindl Gloriu Arroyo, forseta landsins, á dögunum. Erlent 13.10.2005 19:31
Töluvert magn fannst við húsleit Töluvert magn af amfetamíni og e-töflum fanst við húsleit fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík í miðbænum síðastliðinn mánudag. Í framhaldinu var erlend kona handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald til 19. júlí. Á miðvikudag var síðan annar útlendingur handtekinn í tengslum við málið. Innlent 13.10.2005 19:31
Sprenging í Madríd Sprengja sprakk í Madríd, höfuðborg Spánar, í morgun. Ekki virðist sem nokkur hafi særst í sprengingunni, sem var ekki mikil, en rúður brotnuðu þó í nærliggjandi húsum. Málið er í rannsókn. Erlent 13.10.2005 19:31
Hans Markús hjá ráðherra Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðabæ, fundaði í gær með Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra, vegna þeirra stöðu sem uppi hefur verið í sókn hans. Innlent 13.10.2005 19:31