Fréttir

Fréttamynd

Atvinnuleysi eykst í Bretlandi

Atvinnuleysi jókst í Bretlandi í júlí, sjötta mánuðinn í röð og er nú hið mesta í heilt ár, samkvæmt tölum frá bresku hagstofunni.

Erlent
Fréttamynd

Samningur um sálfræðiþjónustu

Samningar um sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum voru undirritaðir á Ísafirði í dag. Landspítali - Háskólasjúkrahús gerir samningana við Heilbrigðisstofnun Ísafjarðabæjar, Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilsugæsluna í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Verður rekið í réttarsal

Yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, Jón H. B. Snorrason, segist ekki munu svara þeim þungu ásökunum sem forstjóri Baugs hefur borið á embætti Ríkislögreglustjóra. Hann segir málið verða rekið í dómsal.

Innlent
Fréttamynd

Sakborningar ítrekuðu sakleysi

Ákæra gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra Baugs og fimm öðrum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Verjandi hans telur að málið taki allt að fjórar vikur í flutningi fyrir dómi. Stefnt er að því að ljúka meðferð málsins fyrir áramót. Fjölskipaður dómur dæmir í málinu í undirrétti.

Innlent
Fréttamynd

Menezes skotinn vegna mistaka

Mistök leiddu til þess að breskir lögreglumenn skutu til bana brasilískan mann sem þeir töldu hryðjuverkamann, í Lundúnum fyrir nokkru. Lögreglumennirnir skutu Jean Charles de Menezes átta sinnum á neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum þann tuttugasta og annan júlí síðastliðinn, daginn eftir seinni hrinu árása í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Erlendir ferðamenn þurfa fræðslu

Ferðamenn sem koma hingað til lands vita fæstir að láti þeir ekki vita af sér á ferðalögum fer af stað viðamikil leit á borð við þá sem fór í gang í gær þegar yfir 50 leitarmenn leituðu þýsks ferðalangs á Vestfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Neituðu öll sök

Klukkan 13:30 í dag var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur, mál ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs og fimm örðum tengdum fyrirtækinu. Allir ákærðu mættu fyrir dómi og hlýddu á þegar ákærur voru lesnar. Þau voru samhljóða þegar þau sögðu ákærurnar vera rangar og lýstu sig jafnframt saklaus af öllum ákæruatriðum.  

Innlent
Fréttamynd

Á fimmta tug féll í árásum

43 Írakar biðu bana í þremur bílsprengjuárásum í Bagdad í gær og 89 slösuðust. Þetta eru mannskæðustu árásir sem gerðar hafa verið í höfuðborginni í margar vikur.

Erlent
Fréttamynd

Mikil mannekla á leikskólum

Vísa gæti þurft börnum úr leikskólum Reykjavíkur einhverja daga vikunnar í vetur. Leikskólastjórar sjá fram á mikla manneklu og segja að samkeppni um vinnuafl bitni á láglaunastörfum á borð við störf í leikskólum.

Innlent
Fréttamynd

Hrefnuvertíð lokið

Hrefnuvertíðinni er lokið og veiddist síðasta hrefnan í nótt. Um eitt hundrað hrefnur hafa veiðst frá því vísindaveiðar hófust fyrir um tveimur árum.

Innlent
Fréttamynd

Tvo leikskólakennara vantar

Fjöldi umsókna um störf á leikskólum Reykjavíkurborgar bárust Menntasviði borgarinnar í gær að sögn Gerðar G. Óskarsdóttur, sviðsstjóra Menntasviðs. Enn vantar þó tvo starfsmenn á hvern leikskóla í borginni að meðaltali, en samtals eru milli 140 og 150 störf laus að sögn Gerðar.

Innlent
Fréttamynd

Útilokar ekki borgarstjórastólinn

Össur Skarphéðinsson, fyrrum formaður Samfylkingar, ætlar að íhuga á næstu vikum hvort hann gefi kost á sér sem leiðtoga samfylkingarmanna í borgarmálunum.

Innlent
Fréttamynd

Mengað eldsneyti líklega orsökin

Aðskotaefni í eldsneytistönkum er líklega orsök flugslyssins í Venesúela í fyrradag þegar MD-82-þota West Caribbean Airways fórst með 160 manns innanborðs.

Erlent
Fréttamynd

Lýst eftir manni

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Gunnari Óðni Einarssyni sem er 37 ára. Gunnar er á bifreiðinni JF-797, Suzuki Vitara árgerð 1997, sem er svört að lit. Á bifreiðinni er áberandi L merki að aftan. Ekkert hefur heyrst frá Gunnari eftir að hann fór að heiman frá sér þann 10. ágúst síðastliðinn, en hann er talinn hafa farið út á land. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Gunnars og eða bifreiðina JF-797 eru beðnir um að láta lögregluna í Reykjavík vita í síma 444-1103.

Innlent
Fréttamynd

Flugliðinn enn í haldi vegna morðrannsóknar

Stúlkan sem myrt var á varnasvæði bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli síðastliðið sunnudagskvöld hét Ashley Turner. Hún var fædd í Fredrick í Marylandríki 20. mars árið 1985. Hún gekk til liðs við bandaríska flugherinn að loknu framhaldsskólanámi og að þjálfun lokinni kom hún til starfa í tæknideild björgunarsveitar varnarliðsins. Hún lætur eftir sig foreldra og bróður. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og er liðsmaður flugliðs varnarliðsins enn í haldi vegna rannsóknarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Allir opnir fyrir samstarfi

Frjálslyndi flokkurinn útilokar ekki samstarf við neina flokka eftir næstu borgarstjórnarkosningar. Sjálfstæðismenn útiloka ekki heldur samstarf við neina flokka að loknum kosningum. Forsvarsmenn Samfylkingar og Framsóknarflokksins í Reykjavík sögðu í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær að á næstunni yrði samstarf flokka skoðað svo bjóða megi fram nýjan R-lista.

Innlent
Fréttamynd

Þúsund kynlífsþrælar í Ástralíu

Fyrrum alríkislögreglumaður í Ástralíu, sem starfaði við að sporna gegn mansali kvenna frá Asíu til Ástralíu, segir að allt að þúsund konur séu notaðar sem kynlífsþrælar í vændishúsum í Ástralíu. </font />

Erlent
Fréttamynd

ÍE rannsakar nikótínfíkn

Íslensk erfðagreining hefur hlotið styrk frá bandarísku heilbrigðisstofnuninni til að leita breytileika í erfðamengi mannsins sem veldur því að ákveðnum einstaklingum er hættara við að verða háðir nikótíni.

Innlent
Fréttamynd

Meint brot samþykkt í úttekt

Enska lögfræðifyrirtækið Capcon-Argen Limited sem fór yfir ákærurnar 40 í Baugsmálinu að beiðni Baugs, segir ekkert óeðlilegt við hegðun Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og hófst kynning á skýrslunni á Hótel Nordica klukkan  níu í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Blaðamannafundur á Hótel Nordica

Blaðamannafundur þar sem breskir lögfræðingar kynna skýrslu um Baugsmálið hófst á Nordica Hótel klukkan níu í morgun, en stjórn Baugs boðaði til fundarins. Breska lögfræðifyrirtækið sérhæfir sig í rannsóknum á fyrirtækjum, en það hóf að fara í gegnum ákærurnar í Baugsmálinu fyrir um fimm vikum.

Innlent
Fréttamynd

Foreldar velji kyn barns síns

Bresk yfirvöld íhuga nú hvort gefa eigi foreldrum sem gangast undir tæknifrjóvgun leyfi til að velja sjálf hvors kyns ófædda barn þeirra verður.

Erlent
Fréttamynd

Sérframboð hjá Vinstri - grænum

Vinstrihreyfingin - grænt framboð mun bjóða fram lista í eigin nafni fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Það er því ljóst að R-listinn er liðinn undir lok. Á fjölmennum félagsfundi hreyfingarinnar í gærkvöldi hljóðaði tillaga stjórnar upp á að slíta R-listasamstarfinu og var sú tillaga samþykkt með um 70 prósentum atkvæða.

Innlent
Fréttamynd

Veiða síðustu hrefnuna í dag

Í gær höfðu þrjátíu og átta hrefnur veiðst af þeim þrjátíu og níu sem heimilað var að veiða á þessari vertíð. Bræla var á öllum miðum í gær svo ekki var unnt að klára kvótann en hrefnuveiðibáturinn Halldór Sigurðsson frá Ísafirði lýkur líklega vertíðinni í dag að sögn Gísla Víkingssonar sérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun.

Innlent
Fréttamynd

Berst fyrir fatlaða og íþróttir

"Mér hefur alltaf þótt þetta áhugavert og er fullur vilja til að starfa þarna," segir Valdimar Leó Friðriksson sem tekur sæti Guðmundar Árna Stefánssonar á Alþingi í haust þegar sá síðarnefndi heldur til Svíþjóðar sem sendiherra Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Engar sættir í Landakoti

Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst voru engar tilraunir gerðar til sátta í Landakoti eftir að nýr skólastjóri tók til starfa og fleiri starfsmenn hafa hætt störfum þar undanfarið vegna ástandsins. Eitthvað er um að foreldrar hafi tekið börn sín út úr skólanum og fleiri eru enn tvístígandi nú rétt áður en kennsla hefst.

Innlent
Fréttamynd

Börn send heim af leikskólum

Líkur eru á að senda þurfi börn heim af leikskólum í höfuðborginni strax í næstu viku vegna manneklu. Verst er ástandið í Grafarvogi og hittust leikskólastjórar þar á fundi í gærmorgun til þess að ræða málið. Boðað hefur verið til foreldrafunda í lok vikunnar og byrjun þeirrar næstu í nokkrum leikskólum þar sem ástandið er slæmt.

Innlent
Fréttamynd

Öflugur jarðskjálfti í Japan

Jarðskjálfti sem mældist 7,2 á Richter reið yfir norð-austurhluta Japan í gær. Um sextíu slösuðust en enginn lét lífið en skjálftinn átti upptök sín djúpt á sjávarbotni, 80 kílómetrum út af strönd Japans.

Erlent
Fréttamynd

Frábært fordæmi

Frábært fordæmi segir formaður Kjalar, stéttarfélags í almannaþjónustu, um þá starfsmannastefnu að ráða eldra fólk til starfa. Húsasmiðjan hefur stigið það skref að auglýsa eftir starfskröftum úr þeim aldurshópi. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Björgunarbátum kastað út úr TF-SYN

Áhöfn TF-SYN æfði sig í gær að kasta út björgunarbátum nálægt varðskipinu Óðni. Eins og kunnugt er fylgir TF-SYN stundum þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún fer í löng björgunar- eða sjúkraflug og þá er gott öryggisins vegna að TF-SYN sé þannig úr garði gerð að hægt sé að kasta út úr henni björgunarbátum.

Innlent
Fréttamynd

Allir eru taldir af

Enginn er talinn hafa komist lífs af þegar farþegaflugvél af gerðinni MD-82 fórst í skóglendi í Venesúela. 160 manns voru um borð, flestir ferðamenn frá eynni Martiník.

Erlent