Bíll Unnar Aspar fundinn eftir tveggja sólarhringa „standandi partí“ Bíll leikkonunnar Unnar Aspar Stefánsdóttur, sem var stolið fyrir utan vinnustað hennar Þjóðleikhúsið síðastliðinn laugardag, er kominn í leitirnar. Bílinn var illa farinn og fullur af alls konar munum eftir tveggja daga „standandi partí,“ eins og leikkonan orðar það í samtali við fréttastofu. Innlent 13. september 2021 18:26
Segir Armando og félaga hans hafa viljað 50 milljónir frá Antoni Kristni Angjelin Sterkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann skaut Armando Beqirai til bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar síðastliðnum. Angjelin segir Armando og Goran Kristján Stojanovic hafa viljað hvor um sig 25 milljónir frá Antoni Kristni Þórarinssyni. Innlent 13. september 2021 10:34
Skýrslutaka í Rauðagerðismálinu hefst í héraðsdómi í dag Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og munu skýrslutökur standa yfir fram á fimmtudag. Málflutningur fer fram fimmudaginn 23. september næstkomandi. Innlent 13. september 2021 07:11
Væri mögulega ekki á lífi hefði nágranninn ekki komið heim í tæka tíð Ung kona sem slapp naumlega eftir að eldur kom upp í íbúð hennar á föstudaginn segir magnað að hún sé á lífi. Hún var sofandi þegar nágranni hennar kom óvænt heim og varð eldsins var. Innlent 12. september 2021 18:00
Reyndi að stöðva slagsmál í bænum en var skorinn Lögreglunni barst í nótt tilkynning um líkamsárás í miðbænum þar sem maður hlaut áverka á hendi eftir eggvopn. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn sagðist hafa fengið áverkana við að stöðva slagsmál tveggja manna sem hann þekkti ekki. Innlent 12. september 2021 07:15
Bíl Unnar Aspar stolið fyrir utan Þjóðleikhúsið Leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir varð fyrir óláni í gær þegar bíl hennar var stolið fyrir utan vinnustað hennar Þjóðleikhúsið. Innlent 11. september 2021 18:34
Kona hætt komin í bruna við Týsgötu Kona var flutt á slysadeild eftir að eldur kom upp í kjallaraíbúð við Týsgötu í Reykjavík í dag. Tilviljun réði því að nágranni á næstu hæð var heima og sá reyk leggja frá íbúðinni. Innlent 10. september 2021 20:10
Skaust óvænt heim og kom nágranna sínum til bjargar „Grannar, allir þurfa góða granna,“ segir í frægu lagi í sjónvarpsþáttunum Nágrannar og sú var sannarlega raunin á Týsgötu í Reykjavík í dag þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð á öðrum tímanum. Innlent 10. september 2021 14:37
Sekta fjórar verslanir vegna trassaskapar við verðmerkingar Neytendastofa hefur sektað Gulla Arnar bakarí, Kjötbúðina, Kjötkompaní og Sælkerabúðina fyrir að fara ekki að fyrirmælum stofnunarinnar um verðmerkingar. Neytendur 10. september 2021 14:35
Eldur í íbúð við Týsgötu Einn náði að flýja út úr íbúð við Týsgötu í Þingholtunum í Reykjavík rétt fyrir klukkan tvö í dag þegar eldur kom upp. Innlent 10. september 2021 14:05
Varði á fimmtu milljón króna úr eigin vasa í baráttuna við Áslaugu Örnu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra varði rúmum ellefu milljónum króna í baráttunni um efsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í sumar. Þar hafði hann betur eftir harða baráttu við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Innlent 10. september 2021 10:26
Borgarfulltrúar óttaslegnir: Maðurinn sem hafði í hótunum hvorki verið handtekinn né yfirheyrður Maður, sem skaut á bíl borgarstjóra fyrr á árinu og hafði í hótunum við varaborgarfulltrúa fyrr í vikunni, hefur hvorki verið handtekinn né yfirheyrður. Innlent 9. september 2021 19:21
Maður féll í sjóinn á Granda Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Granda í Reykjavík upp úr hádegi í dag eftir að tilkynning barst um mann sem hafði fallið í sjóinn. Innlent 9. september 2021 12:59
Brugðið eftir alvarlegar hótanir Varaborgarfulltrúi Miðflokksins sætti alvarlegum hótunum af hálfu sama manns og er grunaður um að hafa skotið á bíl borgarstjóra fyrr á árinu á þriðjudag. Sérsveit ríkislögreglustjóra vaktaði Ráðhús Reykjavíkur meðan borgarstjórnarfundur stóð yfir vegna hótananna. Innlent 9. september 2021 12:15
Ráðhús Reykjavíkur vaktað Lögreglan mun hafa vaktað Ráðhús Reykjavíkur á meðan á borgarstjórnarfundi stóð þar síðasta þriðjudag. Innlent 9. september 2021 06:53
Kveikti í ruslatunnu hjá Ingólfi og hugðist hita sviðakjamma Laust fyrir miðnætti í gærkvöldi handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mann við styttuna af Ingólfi Arnarsyni. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var búinn að kveikja í ruslatunnu þar sem hann hugðist hita sviðakjamma. Innlent 9. september 2021 06:18
„Ekki fallegt“ að selja hús sem var gjöf til Alzheimer-sjúklinga Áform um að selja húsnæði vinsæls dagvistunarúrræðis fyrir heilabilunarsjúklinga mæta mótstöðu aðstandenda. Fríðuhús var gjöf til Alzheimer-samtakanna á sínum tíma, sem fyrrverandi starfsmaður segir „ekki fallegt“ að setja á sölu. Innlent 8. september 2021 19:20
Óþægileg stemmning eftir að Ólafur sneri aftur Ólafur Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið aftur sæti sem varamaður í ráðum sem hann sat í hjá borginni áður en hann vék úr þeim í byrjun árs vegna ummæla sem hann lét falla um skotárás á fjölskyldubíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Borgarfulltrúi Pírata furðar sig á þessu og segir það hafa verið óþægilegt að sitja fund með Ólafi í morgun. Innlent 8. september 2021 14:27
Regnboginn er ekki skraut Í síðustu viku voru kynntar tillögur borgarinnar að breytingum á Skólavörðustíg. Tillögurnar eru um margt góðar, en einhvers staðar í ferlinu gleymdist að gera ráð fyrir því að á neðsta hluta Skólavörðustígs er varanlegur regnbogafáni, eða þannig var hann víst samþykktur í borgarstjórn árið 2019. Skoðun 8. september 2021 09:31
Loka í Aðalstræti og leggja minni áherslu á miðbæinn Te og kaffi hefur lokað kaffihúsi sínu við Aðalstræti í Reykjavík eftir níu ára rekstur. Aðstoðarframkvæmdastjóri segir að miðbærinn hafi tekið breytingum og keðjan leggi nú meiri áherslu á önnur svæði. Viðskipti innlent 8. september 2021 08:00
Ekið á hjólreiðamann í miðborginni Karlmaður um fimmtugt slasaðist þegar ekið var á hann á horni Tryggvagötu og Geirsgötu í miðborg Reykjavíkur síðdegis í dag. Innlent 7. september 2021 21:59
Regnboginn á heima í miðborginni Forhönnun Laugarvegar og Skólavörðustígs hefur nú verið kynnt, meðal annars í borgarstjórn í dag. Þarna eru margar skemmtilegar hugmyndir sem munu án ef gera miðborgina okkar fallegri og bæði auðveldari og skemmtilegri til að ferðast um. Skoðun 7. september 2021 18:01
Göngugötur Regnbogans Reykjavík er hinsegin borg. Hún hefur stutt ríkulega við bakið á hinsegin fólki með margvíslegum hætti og hefur gengið fram með góðu fordæmi og það á undan ríkinu og öðrum sveitarfélögum. Hún hefur stutt Samtökin ´78, Hinsegin daga, Gleðigönguna og mörg önnur áríðandi mannréttindamál. Skoðun 7. september 2021 16:01
Langþreyttir foreldrar leikskólabarna í Reykjavík Til þeirra sem málið varðar. Ég er foreldri tveggja barna á leikskólaaldri. Yngri sonur minn er að hefja skólagöngu sína í leikskóla hjá Reykjavíkurborg núna á föstudaginn, hann er rúmlega tveggja ára. Eldri sonur minn er að hefja síðasta vetur sinn á leikskólanum. Skoðun 7. september 2021 14:31
Ninja Ýr tekur við sem forstöðumaður fjármála HR Ninja Ýr Gísladóttir hefur við ráðin forstöðumaður fjármála Háskólans í Reykjavík og hefur hafið störf. Viðskipti innlent 7. september 2021 13:53
Klúður að hafa regnbogann ekki með í skipulagi nýs Skólavörðustígs Mikil óánægja ríkir meðal hinsegin fólks um áætlun Reykjavíkurborgar að færa Regnbogafánann af Skólavörðustíg vegna áætlana um framkvæmdir á göngugötunni. Borgarfulltrúi meirihlutans segir það hafa verið mistök að hafa kynnt áætlanir án þess að hafa fundið Regnboganum nýtt heimili áður. Innlent 7. september 2021 13:01
Komdu út að hjóla... Í borginni eru margir staðir til að næra sál og líkama. Mörgum finnst gott að ganga, finna lyktina af náttúrunni og njóta útsýnis. Öðrum finnst skemmtilegra að hjóla, vera í síbreytilegu umhverfi innan borgarmarkanna, hjóla meðfram sjónum með vindinn í fangið, upplifa sólsetur með sjávarlykt eða horfa á borgina vakna í hversdagsleikann í upphafi vinnuviku. Skoðun 7. september 2021 10:30
„Bara einhver götuskreyting“: Harma skeytingarleysi borgarinnar gagnvart regnboganum Miklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum um nýja umgjörð Skólavörðustígs og nærliggjandi gata en athygli vekur að nýtt skipulag og útlit gerir ekki ráð fyrir regnbogafánanum, sem prýðir götuna. Innlent 7. september 2021 08:12
Tekinn með hníf á lofti í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann sem tilkynnt var um að hefði verið með hníf á lofti í Hafnarfirði í dag. Hann var færður í fangaklefa. Innlent 6. september 2021 23:54
Grunur um ölvun þegar bíll rann út í Nauthólsvík Ökumaður bifreiðar sem rann út í sjó við Nauthólsvík er grunaður um ölvun við akstur. Töluverður viðbúnaður viðbragðsaðila var í Nauthólsvík en ökumanninum tókst sjálfum að komast á land. Innlent 6. september 2021 22:48