Mahrez skaut Manchester City í úrslitaleikinn Manchester City er komið áfram í úrslitaleik enska bikarsins eftir öruggan 3-0 sigur á Sheffield United í undanúrslitum keppninnar í dag. Enski boltinn 22. apríl 2023 15:16
Genoa nálgast efstu deild eftir sigurmark Alberts Albert Guðmundsson skoraði eina mark leiksins er Genoa vann mikilvægan 1-0 útisigur gegn Cittadella í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag. Albert og félagar þurfa nú aðeins sex stig í viðbót til að tryggja sér sæti í efstu deild. Fótbolti 22. apríl 2023 15:01
Íslendingalið Bayern endurheimti toppsætið með risasigri Íslendingalið Bayern München skaust aftur á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er liðið vann sannkallaðan risasigur gegn Freiburg í dag. Lokatölur 8-2, en heimakonur voru búnar að gera út um leikinn í fyrri hálfleik. Fótbolti 22. apríl 2023 14:16
Annar sigur Fulham í röð Eftir fimm tapleiki í röð í öllum keppnum vann Fulham sinn annan sigur í röð er liðið vann 2-1 sigur gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 22. apríl 2023 13:31
Börsungar taka forystuna með sér til Spánar Barcelona vann góðan 1-0 útisigur er liðið heimsótti Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í dag. Fótbolti 22. apríl 2023 13:25
Arsenal þurfi nánast kraftaverk til að vinna City Eftir að hafa tapað sex stigum í seinustu þremur leikjum hefur Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, galopnað titilbaráttuna. Ríkjandi Englandsmeistarar Manchester City eru nú aðeins fjórum stigum á eftir Lundúnaliðinu, en liðin mætast næstkomandi miðvikudag í leik sem gæti farið langleiðina með að tryggja öðru hvoru liðinu Englandsmeistaratitilinn. Fótbolti 22. apríl 2023 13:01
Arsenal rennir hýru auga til Mount Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, er sagt fylgjast náið með stöðu mála hjá Mason Mount, leikmanni nágrannaliðs þeirra Chelsea. Fótbolti 22. apríl 2023 11:32
Pistill: Pílagrímsferð til Parma Af einhverjum ástæðum skipar lið Parma á Ítalíu stóran sess í hjörtum margra fótboltaáhugamanna á Íslandi. Ekki er það þó árangur síðustu 20 ára sem kom þeim þangað, en síðustu ár hafa verið nánast einn samfelldur táradalur fyrir stuðningsmenn liðsins. Fótbolti 22. apríl 2023 10:00
Nagelsmann mun ekki taka við Chelsea Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea mun ekki ráða þýska þjálfarann Julian Nagelsmann til að taka við liðinu að yfirstandandi tímabili loknu. Fótbolti 22. apríl 2023 09:00
„Get ekki beðið eftir leiknum á móti City“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var eðlilega svekktur eftir þriðja jafntefli liðsins í röð í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal tók á móti botnliði Southampton og gróf sig ofan í djúpa holu snemma leiks. Fótbolti 21. apríl 2023 23:15
Toppliðið bjargaði stigi gegn botnliðinu Arsenal og Southampton, topp- og botnlið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, skiptu stigunum á milli sín er liðin mættust á Emirates-vellinum í Lundúnum í kvöld. Minnstu mátti muna að botnliðið tæki stigin þrjú, en staðan var 1-3 þegar örfáar mínútur voru til leiksloka. Enski boltinn 21. apríl 2023 21:12
Áfrýjuninni hafnað og bann Mitrovic verður ekki lengt Aleksandar Mitrovic, framherji Fulham, verður ekki dæmdur í lengra bann en átta leiki eftir að sjálfstæð aganefnd hafnaði áfrýjun enska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 21. apríl 2023 20:16
Stefán og félagar köstuðu frá sér sigrinum Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Silkeborg þurftu að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið tók á móti Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 21. apríl 2023 18:53
Guðrún og stöllur unnu stórsigur í fyrsta sigurleik tímabilsins Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård unnu öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Var þetta fyrsti sigur liðsins á tímabilinu. Fótbolti 21. apríl 2023 17:51
Hollywood-liðið getur bundið enda á fimmtán ára útlegð á morgun Velska knattspyrnufélagið Wrexham, sem spilar í ensku utandeildinni, er einum sigri frá því að tryggja sér sæti á nýjan leik í ensku deildarkeppninni. Yfirstandandi tímabil Wrexham hefur verið líkt við handrit að Hollywood kvikmynd og er það vel við hæfi þar sem eigendur félagsins eru Hollywood stjörnurnar Ryan Reynolds og Rob McElhenney. Enski boltinn 21. apríl 2023 17:30
Stjóri Jóhanns Bergs á blaði hjá Chelsea Vincent Kompany, knattspyrnustjóri íslenska landsliðsmannsins Jóhanns Bergs Guðmundssonar hjá enska B-deildar liðinu Burnley er einn þeirra sem er á blaði hjá forráðamönnum Chelsea er kemur að ráðningu á nýjum knattspyrnustjóra félagsins. Enski boltinn 21. apríl 2023 17:00
Fyrirliði Englands ekki með á HM Enska kvennalandsliðið í fótbolta verður án fyrirliða síns, Leuh Williamson, á HM í sumar. Enski boltinn 21. apríl 2023 15:00
Aðstoðarmaður Mourinhos sló leikmann Feyenoord Aðstoðarþjálfari Roma var rekinn af velli í leik liðsins gegn Feyenoord fyrir að slá leikmann hollenska liðsins. Fótbolti 21. apríl 2023 14:45
Grétar Rafn hafi tekið yfir skyldur Paratici hjá Tottenham Grétar Rafn Steinsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu hefur tekið yfir verkefni og skyldur Fabio Paratici hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham. Þessu heldur Daily Mail fram í dag. Fótbolti 21. apríl 2023 14:02
Meistararnir spila heimaleik í Árbæ því KSÍ bannaði skipti Íslandsmeistarar Breiðabliks spila næsta heimaleik sinn ekki á Kópavogsvelli heldur í Árbæ, í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 21. apríl 2023 13:29
Besta spáin 2023: Getur brugðið til beggja vona á Akureyri Breytingar eru ekki alltaf af hinu góða en ef marka má gott gengi Þórs/KA á undirbúningstímabilinu þá hafa breytingarnar á Akureyri aðeins verið af hinu góða. Vísir gengur svo langt að spá þeim í efri helming Bestu deildar kvenna í sumar, eitthvað sem hefur ekki gerst síðan 2019. Íslenski boltinn 21. apríl 2023 11:22
Besta spáin 2023: Eitt skref aftur á bak til að taka tvö áfram Eftir að hafa lent í 5. sæti á síðustu leiktíð, og leiktíðina þar á undan, þá dreymir Selfyssinga um að taka skref fram á við. Þolinmæði er hins vegar dyggð og það þurfa Sunnlendingar að muna gangi spá Vísis eftir. Íslenski boltinn 21. apríl 2023 10:00
Þróttur fær fjöltyngdan sérfræðing í dýfingum Þróttur hefur samið við kanadísku knattspyrnukonuna Tanya Boychuk. Hún er 22 ára framherji sem fengið hefur félagaskipti í Þrótt og getur því spilað með liðinu gegn FH í fyrstu umferð Bestu deildarinnar næsta miðvikudag. Íslenski boltinn 21. apríl 2023 09:35
Fyrrverandi leikmaður Man United gjaldþrota Wes Brown, fyrrverandi varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, hefur lýst yfir gjaldþroti. Hann lagði skóna á hilluna árið 2018 eftir að hafa spilað með Kerala Blasters á Indlandi. Enski boltinn 21. apríl 2023 09:00
Paratici segir starfi sínu hjá Tottenham lausu Fabio Paratici, yfirmaður knattspyrnumála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham Hotspur, hefur sagt starfi sínu lausu. Enski boltinn 21. apríl 2023 08:31
Borgarstjóri Manchester færði Páfanum áhugaverða gjöf Andy Burnham, borgarstjóri Manchester-svæðisins í Englandi, færði Francis Páfa áhugaverða gjöf þegar hann heimsótti Vatíkanið á dögunum. Enski boltinn 21. apríl 2023 07:31
„Erfitt að vinna fótboltaleik þegar þú gerir svona mistök“ Erik ten Hag, stjóri Man Utd, segir sitt lið ekki geta kennt neinu öðru en sjálfum sér um hvernig leikurinn gegn Sevilla í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gærkvöldi spilaðist. Fótbolti 21. apríl 2023 07:01
Tvö lið sækja markvörð til Bandaríkjanna Tvö lið í Bestu deildinni í fótbolta hafa sótt sér markmann til Bandaríkjanna. Íslenski boltinn 20. apríl 2023 23:00
Ekkert óvænt í síðustu tveimur leikjunum í Mjólkurbikarnum HK og Grótta voru síðustu liðin til að tryggja sig áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins í fótbolta. Íslenski boltinn 20. apríl 2023 22:10
Dramatík þegar Rómverjar komust í undanúrslitin AS Roma, Sevilla, Juventus og Bayer Leverkusen eru liðin sem munu skipa undanúrslit Evrópudeildarinnar í ar. Fótbolti 20. apríl 2023 21:58