Agla María um stóru baráttu kvöldsins: „Fleiri stórleikir í sumar“ Agla María Albertsdóttir, leikmaður Breiðabliks í Bestu deild kvenna segir stíganda í liði Blika og að nú sé tækifæri til þess að bera sigur úr býtum gegn liði sem hafi verið þeim erfiðar undanfarin ár, Stjörnunni. Liðin mætast í sannkölluðum stórleik á Kópavogsvelli í kvöld. Íslenski boltinn 7. júní 2023 13:00
KSÍ varar við svikahröppum Eftirspurnin eftir miðum á leik Íslands og Portúgals, í undankeppni EM karla í fótbolta, reyndist svo mikil að uppselt varð á leikinn hálftíma eftir að almenn miðasala hófst. KSÍ varar nú við miðasvindli. Fótbolti 7. júní 2023 12:31
Shakira fer úr boltanum í formúluna Kólumbíska stjarnan Shakira virðist vera búin að finna sér nýjan elskhuga ef marka má myndir sem náðust af henni með breska ökuþórnum Lewis Hamilton í Madríd. Í síðasta mánuði sást parið einnig saman á snekkju í Miami. Lífið 7. júní 2023 12:29
„Þú ert 27 ára gamall. Þú ert ekkert rekinn heim“ Alexander Aron Davorsson, knattspyrnumaður og þjálfari, sem í dag er þekktur sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu, á að baki magnaðan feril sem leikmaður í neðri deildum Íslands. Fótbolti 7. júní 2023 12:00
Leikmaður í sænsku kvennadeildinni dæmdur í langt bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Leikmaður í sænsku kvennadeildinni í fótbolta hefur verið dæmdur í langt bann fyrir ólöglega lyfjanotkun. Fótbolti 7. júní 2023 11:30
Lykilmenn Milan hugsa sér til hreyfings eftir brottrekstur Maldinis Sú ákvörðun forráðamanna AC Milan að segja Paolo Maldini upp sem tæknilegs stjórnanda gæti dregið dilk á eftir. Fjórir stjörnuleikmenn liðsins hugsa sér til hreyfings. Fótbolti 7. júní 2023 11:01
Stuðningsmennirnir skiluðu Spalletti stýrinu sem þeir stálu af honum Stuðningsmenn Ítalíumeistara Napoli hafa skilað fráfarandi stjóra liðsins, Luciano Spalletti, stýri sem þeir stálu af honum fyrir tveimur árum. Fótbolti 7. júní 2023 10:01
Nýi stjórinn vill fá Maguire til Spurs Ange Postecoglou, nýr knattspyrnustjóri Tottenham, vill fá Harry Maguire, fyrirliða Manchester United, til liðsins. Enski boltinn 7. júní 2023 08:31
Hveitibrauðsdagar Hareide: „Leikmönnum þykir mjög vænt um þjóðina“ Åge Hareide, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, kynnti í gær leikmannahóp liðsins fyrir hans fyrsta verkefni þar sem Ísland mætir Slóvakíu og Portúgal. Hann tók við liðinu um miðjan apríl og segir fyrstu mánuði í starfi hafa verið ánægjulega. Fótbolti 7. júní 2023 08:00
Barcelona og Real Madríd ein á báti eftir að Juventus steig frá borði Ítalska knattspyrnufélagið mun á næstunni draga sig úr Ofurdeild Evrópu. Spænsku stórliðin Real Madríd og Barcelona verða því einu tvö félögin eftir sem styðja verkefnið heilshugar. Fótbolti 7. júní 2023 07:00
„Það er bara ein leið til að komast í úrslit í bikar“ KR er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur á Stjörnunni í kvöld í framlengdum leik. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, er einum leik frá úrslitaleiknum en hans lærisveinar eiga þó ærið verkefni fyrir höndum en KR mætir Víkingum á útivelli í undanúrslitum. Íslenski boltinn 7. júní 2023 00:05
Setur stefnuna á undanúrslit EM Leikmannahópur undir 19 ára karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, fyrir komandi Evrópumót á Möltu í næsta mánuði, var opinberaður í dag. Tveir af bestu leikmönnum liðsins, þeir Orri Steinn Óskarsson og Kristian Nökkvi Hlynsson, fengu ekki grænt ljós frá sínum félagsliðum á að leika með Íslandi á mótinu. Fótbolti 6. júní 2023 23:30
Umfjöllun, viðtöl og mörk: KR - Stjarnan 2-1 | Ægir Jarl skaut KR-ingum í undanúrslit KR er komið í undanúrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-1 sigur á Stjörnunni á Meistaravöllum í kvöld. Ægir Jarl Jónasson skoraði sigurmark KR undir lok fyrri hálfleiks framlengingar og skaut KR-ingum í undanúrslit bikarsins þar sem þeir mæta Víkingum í Fossvogi. Íslenski boltinn 6. júní 2023 22:40
„Má vel vera að þetta komi sérfræðingunum eitthvað á óvart“ Nýliðar FH sigruðu Selfoss 2-0 á heimavelli í Bestu deild kvenna í fótbolta nú kvöld. Liðið hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum og situr í 5. sæti deildarinnar. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, segir frammistöðuna í fyrri hálfleik hafa skilað liðinu þremur stigum í dag. Íslenski boltinn 6. júní 2023 22:36
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór/KA 1-0 | Meistararnir unnið þrjá í röð Íslandsmeistarar Vals unnu góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Þór/KA í 7. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Valskonur tróna því enn á toppnum og hafa nú unnið þrjá deildarleiki í röð, en þetta var hins vegar þriðja tap Þórs/KA í röð. Íslenski boltinn 6. júní 2023 22:17
Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Selfoss 2-0 | Heimaliðið upp úr fallsæti en gestirnir í vondum málum FH tók á móti Selfossi í einni af fjórum viðureignum kvöldsins í Bestu deild kvenna í fótbolta. Leiknum lauk með 2-0 sigri FH, sem skýtur sér með þessum sigri upp í 5. sæti deildarinnar en gestirnir sitja enn á botninum og hafa nú tapað þremur leikjum í röð. Mörk liðsins skoruðu Valgerður Ósk Valsdóttir og Sara Montoro. Íslenski boltinn 6. júní 2023 22:00
„Alltaf langbest að skjóta með vinstri“ Pétur Pétursson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, var nokkuð sáttur eftir 1-0 sigur liðsins gegn Þór/KA í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Íslenski boltinn 6. júní 2023 21:43
Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Þróttur 1-3 | Gestirnir upp í 2. sæti Þróttur vann góðan sigur á nýliðum Tindastóls í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld þegar liðin mættust á Sauðárkróki. Sigurinn lyftir Þrótti upp í 2. sæti deildarinnar en Stjarnan og Breiðablik eiga leik til góða þar sem þau mætast annað kvöld. Íslenski boltinn 6. júní 2023 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - ÍBV 0-0 | Markalaust í Keflavík Fyrri hálfleikur var frábær skemmtun þar sem bæði lið fengu þó nokkur dauðafæri til að komast yfir og það var með hreinum ólíkindum að það hafi verið markalaust í hálfleik. Gangur leiksins breyttist síðan algjörlega í síðari hálfleik þar sem bæði lið voru í tómum vandræðum með að skapa sér færi. Íslenski boltinn 6. júní 2023 20:40
Todor: Ánægður með jafnvægið í liðinu þrátt fyrir að við skorum lítið Keflavík og ÍBV gerðu markalaust jafntefli í 7. umferð Bestu-deildar kvenna. Todor Hristov, þjálfari ÍBV, var nokkuð brattur með stigið. Íslenski boltinn 6. júní 2023 20:40
Umfjöllun og viðtöl: KA - Grindavík 2-1 | Akureyringar í undanúrslit eftir torsóttan sigur KA varð í dag þriðja liðið til að tryggja sig í undanúrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-1 sigur á Grindavík á Akureyri. Jakob Snær Árnason skoraði sigurmark leiksins á 88. mínútu eftir að Grindvíkingar höfðu komið til baka í síðari hálfleik. Íslenski boltinn 6. júní 2023 20:30
Birgir: Draumur hjá mér að vinna þennan bikar Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, spilaði í vinstri bakvarðarstöðunni og skoraði fyrsta mark leiksins í 2-1 sigri KA á Grindavík í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Greifavellinum á Akureyri í dag. Birgir var kampakátur strax eftir leik sér bikarúrslitin í hyllingum. Íslenski boltinn 6. júní 2023 20:21
Fær í kringum 30 milljarða á ári fyrir að spila í Sádi-Arabíu Franski framherjinn Karim Benzema hefur samið við Al Ittihad í Sádi-Arabíu til ársins 2026. Talið er að hann þéni allt í allt um 200 milljónir evra [30 milljarðar íslenskra króna] á ári. Fótbolti 6. júní 2023 19:31
Fyrrverandi kærasta Antony sakar hann um heimilisofbeldi Fyrrverandi kærasta Brasilíumannsins Antony, leikmanns Manchester United og brasilíska landsliðsins, hefur sakað hann um beita sig heimilisofbeldi og haft í hótunum við hana þegar þau voru saman. Um er að ræða fjögur atvik samkvæmt ESPN í Brasilíu. Enski boltinn 6. júní 2023 18:26
Atlético Madrid vill fá Zaha Diego Simeone hefur mikinn áhuga á að fá Wilfried Zaha, leikmann Crystal Palace, til Atlético Madrid. Enski boltinn 6. júní 2023 17:46
Logi og Sölvi fengu vægustu refsingu Víkingarnir Logi Tómasson og Sölvi Geir Ottesen voru í dag úrskurðaðir í eins leiks bann vegna hegðunar sinnar eftir hitaleikinn gegn Breiðabliki í Bestu deildinni í fótbolta á föstudagskvöld. Íslenski boltinn 6. júní 2023 16:42
Goðsögnin rekin frá Milan Paolo Maldini, ein mesta goðsögn í sögu ítalska knattspyrnufélagsins AC Milan, hefur verið rekinn frá félaginu. Það mun hafa gerst í kjölfar hitafundar með eigandanum Gerry Cardinale í gær. Fótbolti 6. júní 2023 16:01
Fullur völlur í fyrsta sinn í fjögur ár Þrátt fyrir að stórþjóðir í knattspyrnuheiminum hafi lagt leið sína á Laugardalsvöll síðustu ár þá hefur ekki verið uppselt á leik þar síðan árið 2019. Kórónuveirufaraldurinn ræður þar eflaust mestu. Fótbolti 6. júní 2023 15:30
Kanté fær einnig sádiarabískt gylliboð Franski knattspyrnumaðurinn N'Golo Kanté, leikmaður Chelsea, er sagður hafa fengið boð frá liði í Sádi-Arabíu sem gæti hljóðað upp á allt að hundrað milljónir evra í árslaun. Fótbolti 6. júní 2023 14:31
Pabbi Haalands harðlega gagnrýndur fyrir að flytja í skattaparadísina Sviss: „Mjög taktlaust“ Sú ákvörðun Alf-Inges Haaland, föður Erlings Haaland, að flytja til Sviss hefur verið harðlega gagnrýnd í Noregi, meðal annars af stjórnmálamönnum þar í landi. Fótbolti 6. júní 2023 14:00