Vinícius fetar í fótspor Ronaldo Brasilíski framherjinn Vinícius Júnior mun feta í fótspor Cristiano Ronaldo á komandi tímabili í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Vini Jr., eins og hann er kallaður, mun nefnilega klæðast treyju númer 7 hjá stórveldinu Real Madríd. Fótbolti 12. júní 2023 23:01
„Ekki nægilega góðar til að eiga skilið þrjú stig“ Keflavík vann óvæntan 2-1 sigur á Þrótti í áttundu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, þurfti að sætta sig við svekkjandi tap þrátt fyrir að Þróttur hafði yfirhöndina lungann úr leiknum. Íslenski boltinn 12. júní 2023 22:30
„Ég þurfti að gefa brjóst í hálfleik“ Fanndís Friðriksdóttir spilaði sinn fyrsta leik, fyrir Val í kvöld, síðan 10. september 2021. Síðan þá hefur hún slitið krossbönd og eignast sitt annað barn. Hún gerði sér lítið fyrir og skoraði mark eftir að hafa komið inn á sem varamaður gegn Tindastól í Bestu deild kvenna. Íslenski boltinn 12. júní 2023 21:54
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Þróttur R. - Keflavík 1-2 | Óvæntur sigur gestanna Keflavík vann óvæntan sigur á Þrótti á Avis vellinum í Laugardal í 8. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Leikurinn endaði 2-1 fyrir Keflavík en sigurinn lyftir þeim upp í 7. sæti deildarinnar og eru þær aðeins tveimur stigum frá Þrótti í 3. sæti. Íslenski boltinn 12. júní 2023 21:30
Mbappé mun ekki framlengja í París Kylian Mbappé, stórstjarna Frakklandsmeistara París Saint-Germain, hefur tilkynnt félaginu að hann muni ekki framlengja samning sinn sem rennur út sumarið 2024. Ákvörðunin gæti leitt til þess að PSG ákveði að selja leikmanninn í sumar. Fótbolti 12. júní 2023 21:15
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Tindastóll 5-0 | Íslandsmeistararnir sýndu enga miskunn Íslandsmeistarar Vals fóru illa með nýliða Tindastóls í 8. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Valskonur styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar þar sem bæði Stjarnan og Þróttur Reykjavík töpuðu. Íslenski boltinn 12. júní 2023 21:10
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - FH 0-2 | Spútnikliðið getur ekki hætt að vinna Nýliðar FH héldu góðu gengi sínu í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu áfram með frábærum 2-0 sigri á Stjörnunni þegar liðin mættust í 8. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu á Samsung-vellinum í Garðabæ. Íslenski boltinn 12. júní 2023 21:05
Segir FH vilja framherja Lyngby Greint var frá því í síðasta þætti Þungavigtarinnar að FH vilji fá Petur Knudsen, framherja Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni, í sínar raðir. FH leitar nú að arftaka Úlfs Ágústs Björnssonar sem heldur í nám vestanhafs á næstunni. Íslenski boltinn 12. júní 2023 20:31
Umfjöllun: ÍBV - Breiðablik 0-3 | Breiðablik gerði góða ferð til Eyja Breiðablik náði í öll stigin sem í boði voru fyrr í dag í Vestmannaeyjum í áttundu umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Leikurinn var jafn en það voru gæði í sóknarmönnum Blika sem gerðu útslagið. Birta Georgsdóttir gerði tvö mörk og Katrín Ásbjörnsdóttir eitt til að innsigla sigurinn undir lok leiks en staðan var 0-2 í hálfleik.. Eyjakonur geta verið svekktar að hafa ekki náð að skora því tækifærin komu til þeirra. Fótbolti 12. júní 2023 19:54
Berghuis í bann fyrir að bregðast illa við rasisma Steven Berghuis, miðjumaður Ajax í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, mun byrja næsta tímabil í þriggja leikja banni. Hann veittist að stuðningsmanni FC Twente eftir leik liðanna í lokaumferð nýafstaðins tímabils. Gerði hann það þar sem stuðningsmaðurinn var með kynþáttaníð í garð samherja hans. Fótbolti 12. júní 2023 19:30
Sjáðu markið: Afmælisbarnið Hlín áfram á skotskónum Hlín Eiríksdóttir hélt upp á 23 ára afmæli sitt með því að skorað annað mark Kristianstad í 2-0 útisigri liðsins á Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta var hennar þriðja mark í síðustu fjórum leikjum. Fótbolti 12. júní 2023 19:00
Gerrard að taka við liði í Sádi-Arabíu Steven Gerrard, fyrrverandi leikmaður Liverpool, er sagður vera á leið til Sádi-Arabíu til að taka við liði Al-Ettifaq í úrvalsdeildinni þar í landi. Fótbolti 12. júní 2023 16:31
Ancelotti stefnir Everton fyrir vanefndir Carlo Ancelotti, fyrrverandi knattspyrnustjóri Everton og núverandi knattspyrnustjóri Real Madrid, hefur stefnt enska úrvalsdeildarfélaginu vegna vanefnda á almennum viðskiptasamningum og fyrirkomulagi þeirra. Fótbolti 12. júní 2023 16:00
Neyddust til að sýna á sér píkuna á HM Nilla Fischer, fyrrverandi landsliðskona Svíþjóðar, segir frá því í ævisögu sinni að á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi 2011 hafi leikmenn, að kröfu FIFA, bókstaflega þurft að sýna að þær væru með kynfæri konu en ekki karls, vegna gruns um svindl. Fótbolti 12. júní 2023 15:00
Besti-bíllinn fékk uppfærslu og er mættur á völlinn Nýtt myndver Bestu-deildarinnar í knattspyrnu á hjólum var tekið í notkun um helgina þegar FH tók á móti Breiðablik í Kaplakrika. Fótbolti 12. júní 2023 14:30
Lille vill kaupa Hákon fyrir rúma tvo milljarða Franska úrvalsdeildarfélagið Lille er sagt í viðræðum við dönsku meistarana í FCK um að festa kaup á Skagamanninum Hákoni Arnari Haraldssyni. Fótbolti 12. júní 2023 13:30
Rifust um vítið sem ÍBV fékk: „Þú lýgur því viku eftir viku að þú sért að tala við einhvern dómara“ Lárus Orri Sigurðsson og Albert Ingason voru ekki sammála hvort vítaspyrnan sem ÍBV fékk undir lok leiksins gegn KR í Bestu deild karla hefði verið réttmæt. Íslenski boltinn 12. júní 2023 13:01
Varað við grófu svindli vegna Messi-æðis í Kína Mörg hundruð manns biðu fyrir utan hótelið sem Lionel Messi gisti á í Peking í nótt, í von um að berja argentínska knattspyrnugoðið augum. Lögregla hefur hins vegar varað við grófu svindli í tengslum við komu hans. Fótbolti 12. júní 2023 12:30
Guardiola kveður eftir tvö ár Pep Guardiola vildi lítið tjá sig um framtíð sína eftir að hafa klárað að vinna þrennuna með Manchester City um helgina, með sigri gegn Inter í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Enski boltinn 12. júní 2023 11:31
Glódís einstök í þýsku deildinni í vetur Glódís Perla Viggósdóttir afrekaði nokkuð sem enginn annar útileikmaður í þýsku 1. deildinni í fótbolta gerði á nýafstaðinni leiktíð. Fótbolti 12. júní 2023 10:31
Sjáðu skalla Kjartans í Damir: „Átta mig ekki á því á hvaða vegferð hann er“ Sérfræðingarnir í Stúkunni rýndu í uppákomuna í Kaplakrika um helgina þegar Kjartan Henry Finnbogason skallaði til Damirs Muminovic sem féll í jörðina, í leik FH og Breiðabliks í Bestu deildinni. Báðir fengu gult spjald. Íslenski boltinn 12. júní 2023 09:30
Utan vallar: Mannlegur Grealish ber af hjá Evrópumeisturunum Jack Grealish var ekki meðal þeirra sjö leikmanna Manchester City sem komst í lið ársins í Meistaradeild Evrópu. Það er samt eitthvað svo mannlegt við Grealish að það er ekki annað hægt en að líka vel við hann, þó þú haldir með rauða liðinu í Manchester-borg. Enski boltinn 12. júní 2023 09:01
Tárin flæddu hjá Ranieri eftir nýtt ævintýri Hinn 71 árs gamli Claudio Ranieri hélt áfram að skapa ævintýri sem knattspyrnustjóri í gær þegar hann stýrði liði Cagliari upp í ítölsku A-deildina, eftir að hafa tekið við liðinu í 14. sæti B-deildarinnar. Cagliari tekur sæti Spezia sem tapaði úrslitaleik við Hellas Verona. Fótbolti 12. júní 2023 08:30
Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Þriðja sýning Vals og Davíð refsaði Blikum Víkingar verða með fimm stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í fótbolta næstu ellefu daga eftir öruggan sigur gegn Fram í gærkvöld. Öll mörkin úr 11. umferð má nú sjá hér á Vísi. Íslenski boltinn 12. júní 2023 08:01
Bitinn í kálfann á Akranesi: „Var bara í hálfgerðu áfalli“ Hilmari Halldórssyni, knattspyrnumanni á Akranesi, var ráðlagt af lækni að fá stífkrampasprautu í dag eftir að hafa verið bitinn af andstæðingi sínum í leik með Kára gegn Kormáki/Hvöt í 3. deild. Myndband af atvikinu má sjá í greininni. Íslenski boltinn 12. júní 2023 07:22
UEFA aftur gagnrýnt vegna miðamála og aðstæðna í kringum úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, sætir nú gagnrýni vegna hvernig staðið var að málum í kringum úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu karla megin. Er þetta annað árið í röð sem það gerist. Fótbolti 12. júní 2023 07:01
Sjö Evrópumeistarar í liði ársins | Rodri leikmaður ársins Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur opinberað lið ársins í Meistaradeild Evrópu. Þá var tilkynnt hver hefði verið valinn bestur sem og besti ungi leikmaðurinn. Það kemur ekki á óvart að Evrópumeistarar Manchester City á flesta leikmenn í liði ársins. Fótbolti 11. júní 2023 23:31
Hákon Arnar og Mikael meðal fimm bestu Hákon Arnar Haraldsson og Mikael Neville Anderson voru meðal þeirra fimm leikmanna sem danski miðillinn Tipsbladet valdi sem fimm bestu sóknarþenkjandi miðjumenn dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 11. júní 2023 22:45
Ánægður með sigurinn en mjög flatur leikur Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var ánægður með sigurinn á Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld en sá þó mikla þreytu í sínum mönnum. Leiknum lauk með 3-1 sigri Víkinga sem höfðu ekki unnið í tveimur leikjum í röð. Íslenski boltinn 11. júní 2023 22:16
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Fram 3-1 | Toppliðið aftur á sigurbraut Víkingar höfðu ekki unnið tvo leiki í röð í Bestu deild karla í fótbolta fyrir leik dagsins gegn Fram en komust á sigurbraut eftir þægilegan sigur í Reykjavíkurslag dagsins. Íslenski boltinn 11. júní 2023 22:00