Fótbolti

Brann hjálpar Våleranga upp á topp | Ingibjörg sú eina af þremur miðvörðum sem komst ekki á blað

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir í leik með Vålerenga.
Ingibjörg Sigurðardóttir í leik með Vålerenga. Vålerenga

Våleranga tryggði sér toppsætið með öruggum 3-0 sigri á Lyn í 24. umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leikinn hægra megin í miðvarðaþrenningu liðsins og var sú eina sem tókst ekki að skora mark. 

Rosenborg spilaði samtímis gegn Brann og tapaði 2-0 á útivelli. Þær voru í efsta sætinu fyrir leik en Våleranga nýtti sér tækifærið og komst stigi upp fyrir Rosenborg. Selma Sól Magnúsdóttir spilaði fyrri hálfleikinn í liði Rosenborg, Natasha Anashi sat á varamannabekk Brann líkt og í síðasta leik, hún er að stíga upp úr erfiðum meiðslum, hásinasliti sem hún varð fyrir í byrjun árs. 

Þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppni og liðin mætast í lokaumferðinni. Fyrir það þurfa Ingibjörg og stöllur hennar í Våleranga að taka á stóra sínum þegar þær mæta Brann og Stabæk sem sitja í 4. og 5. sæti deildarinnar. Rosenborg mætir fallbaráttuliðinu Avaldsnes í næstu umferð áður en þær heimsækja LSK, sem fylgir þeim fast á eftir með þriggja stiga mun í 3. sæti deildarinnar.

Þrátt fyrir að LSK eigi enn möguleika eru allar líkur á að tvöfaldur meistari verði svo krýndur þegar Rosenborg og Våleranga mætast í bikarúrslitaleik þann 26. nóvember. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×