Sjáðu færið sem Albert brenndi af í naumu tapi AZ í gær Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson brenndi af ótrúlegu færi í naumu tapi AZ Alkmaar gegn Rijeka í Evrópudeildinni í gær. Tap AZ þýðir liðið missti af sæti í 32-liða úrslitum keppninnar en jafntefli hefði dugað liðinu til að komast áfram. Fótbolti 11. desember 2020 16:01
Heimir og Rúnar hafa ekkert heyrt í KSÍ Heimir Guðjónsson og Rúnar Kristinsson hafa ekkert heyrt í Knattspyrnusambandi Íslands varðandi stöðu þjálfara A-landsliðs karla í knattspyrnu. Fótbolti 11. desember 2020 14:30
Man United stefnir á að bæta við sig varnarmönnum Fréttir erlendis herma að enska knattspyrnuliðið Manchester United sé á höttunum á eftir miðverði. Eru þrír á óskalista félagsins að svo stöddu. Enski boltinn 11. desember 2020 14:01
Hólmfríður aftur á Selfoss eftir stutta Noregsdvöl Hólmfríður Magnúsdóttir er gengin í raðir Selfoss á ný eftir stutta dvöl hjá Avaldsnes í Noregi. Hún samdi til eins árs við Selfoss. Íslenski boltinn 11. desember 2020 13:52
Harder besta fótboltakona í heimi að mati Guardian Danska knattspyrnukonan Pernille Harder er besti leikmaður heims að mati enska miðilsins The Guardian. Fótbolti 11. desember 2020 13:30
Framkvæmdastjóri KA segir ímynd íslenskrar knattspyrnu vera laskaða Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, telur að ímynd íslenskrar knattspyrnu sé löskuð eftir umræðuna í kringum kvennalandsliðið undanfarið. Íslenski boltinn 11. desember 2020 13:01
Hlín í atvinnumennskuna Hlín Eiríksdóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Piteå. Íslenski boltinn 11. desember 2020 11:56
Jamie Redknapp sagði söguna af því þegar hann kom sautján ára til Liverpool Jamie Redknapp lék með Liverpool í áratug en knattspyrnustjórinn sem sóttist svo mikið eftir því að fá hann stýrði honum þó aldrei í leik. Enski boltinn 11. desember 2020 11:31
Staðfestu níu ára fangelsisdóm Robinho Fyrrum stjörnuleikmaður Real Madrid og Manchester City tapaði áfrýjun sinni á Ítalíu í gær. Fótbolti 11. desember 2020 11:00
Fyrirliði Napoli mætti með nýtt risa Maradona húðflúr Lorenzo Insigne, fyrirliði Napoli, heiðraði Diego Armando Maradona, með sérstökum og varanlegum hætti. Fótbolti 11. desember 2020 10:31
Mourinho: Ómögulegt að halda öllum leikmönnum ánægðum Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, ráðlagði óánægðum leikmönnum sínum að drífa sig í heita sturtu. Enski boltinn 11. desember 2020 09:30
Steinlágu á móti Juventus en eru samt líklegri sigurvegarar en Liverpool Manchester City er sigurstranglegasta liðið af þeim sextán sem eru eftir í Meistaradeildinni. Enski boltinn 11. desember 2020 09:01
Andri biðst afsökunar á að hafa kallað landsliðskonur Íslands litlar mýs Andri Júlíusson hefur nú komið fram og beðist afsökunar á skrifum sínum á Twitter. Honum sárnar að hafa verið sakaður um kvenfyrirlitningu. Fótbolti 11. desember 2020 08:01
KR skoðar sín mál en Fram virðist ekki ætla að halda áfram KR-ingar ætla að skoða sín mál og hafa ekki tekið ákvörðun með framhaldið eftir að áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti úrskurð aga- og úrskurðarnefndar. Þá var máli Fram vísað frá og virðist sem Fram ætli ekki lengra með málið. Fótbolti 11. desember 2020 07:01
Dagskráin í dag: Domino's Körfuboltakvöld, spænskur fótbolti og körfubolti Sjö beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports og hliðarrása í dag. Þar er hægt að finna golf, spænskan körfubolta, ítalskan og spænskan fótbolta sem og Domino's Körfuboltakvöld. Sport 11. desember 2020 06:01
Horfðu á lokasekúndurnar á Ítalíu í gegnum iPad áður en gífurlegur fögnuður braust út Borussia Mönchengladbach er komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Þrátt fyrir 2-0 tap gegn Real Madrid á útivelli í gær urðu Þjóðverjarnir í öðru sætinu við mikinn fögnuð. Fótbolti 10. desember 2020 23:00
Leicester og Tottenham unnu sína riðla en tap hjá Íslendingaliðinu Ensku liðin lentu ekki í miklum vandræðum í kvöld er sjötta og síðasta umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar kláraðist. Íslendingarnir í CSKA Moskvu voru hins vegar í tapliði. Fótbolti 10. desember 2020 21:53
Mikil reiði er FCK tilkynnti um æfingaferð til Dúbaí FCK tilkynnti í gær að þeir myndu hætta við æfingaferð til Portúgal og fara til Dúbaí í staðinn. Stuðningsmenn sem og annað málsmetandi fólk í Danmörku er allt annað en við sátt við þessa ákvörðun. Fótbolti 10. desember 2020 21:31
Arnar Þór: Ætlum að reyna ná í stig og fara áfram Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska U21 árs landsliðsins, segir að íslenska liðið stefni ekki á að vera bara með í úrslitakeppni EM heldur ætli liðið sér einhverja hluti. Fótbolti 10. desember 2020 20:16
Rúnar fékk á sig tvö mörk á Írlandi | Albert og félagar úr leik á grátlegan hátt Þrír Íslendingar voru í eldlínunni í þeim leikjum sem lokið er í sjöttu og síðustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Rúnar Alex Rúnarsson með Arsenal, Albert Guðmundsson með AZ Alkmaar og Sverrir Ingi Ingason með PAOK. Fótbolti 10. desember 2020 19:51
Bjarki öflugastur af landsliðsmönnunum Nokkrir landsliðsmenn í handbolta voru í eldlínunni í kvöld; bæði í þýska boltanum sem og þeim sænska. Bjarki Már Elísson var atkvæðamestur þeirra en hann telur uppteknum hætti með Lemgo. Handbolti 10. desember 2020 19:34
Matthías að kveðja Vålerenga með stæl Matthías Vilhjálmsson kveður Vålerenga eftir yfirstandandi leiktíð og gengur í raðir FH. Hann er að kveðja Noreg með stæl eftir að hafa lagt upp annað mark í síðustu þremur leikjum. Fótbolti 10. desember 2020 18:55
Arnar hefur rætt við forráðamenn KSÍ: „Ef einhver býður mér að taka við íslenska A-landsliðinu þá segi ég já“ Arnar Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ og þjálfari U21 árs landsliðsins, hefur áhuga á því að gerast A-landsliðsþjálfari. Segir Arnar að hann hafi rætt við forráðamenn KSÍ líkt og aðrir kandídatar. Þetta sagði hann í samtali við Guðjón Guðmundsson í Sportpakkanum í kvöld. Fótbolti 10. desember 2020 18:17
Sjáðu Lukaku þvælast fyrir skalla Sanchez á ögurstundu Romelu Lukaku kom hálfpartinn í veg fyrir að Alexis Sanchez yrði hetja Inter Milan er liðið datt út úr Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Fótbolti 10. desember 2020 17:45
Undanþágubeiðni KSÍ einnig samþykkt Knattspyrnusamband Íslands fékk undanþágubeiðni samþykkta svo lið í næstefstu deild, Lengjudeildinni, mega hefja æfingar. Íslenski boltinn 10. desember 2020 17:00
Mbappe: Stoltur af liðinu fyrir að hafa gengið af velli Kylian Mbappe, framherji franska liðsins Paris Saint Germain, var mjög ánægður með viðbrögð liðsfélaga sinna þegar þeir gengu af velli með leikmönnum Istanbul Basaksehir í þriðjudagskvöldið. Fótbolti 10. desember 2020 16:45
Get ekki setið undir slíkum ásökunum enda eru þær fjarri sannleikanum Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir segist ekki getað setið undir þeim ásökunum að leikmenn íslenska landsliðsins hafi á einn eða annan hátt hrakið Jón Þór Hauksson, þjálfara liðsins, úr starfi. Fótbolti 10. desember 2020 16:00
Conte reiður út í Capello: „Hugsaðu áður en þú spyrð“ Antonio Conte, knattspyrnustjóri Inter, var langt frá því að vera sáttur eftir að hans menn duttu út úr Meistaradeild Evrópu og reifst meðal annars við Fabio Capello í sjónvarpsviðtali. Fótbolti 10. desember 2020 15:31
Strákarnir með Frökkum, Dönum og Rússum í riðli á EM Ísland verður í riðli með Frakklandi, Danmörku og Rússlandi á Evrópumóti karla í fótbolta skipað leikmönnum U-21 árs og yngri. Fótbolti 10. desember 2020 14:30
Sjáðu markið sem Scholz skoraði gegn Liverpool og markið sem var dæmt af Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lauk í gær með átta leikjum. Úrslitin í A-D-riðlum réðust þá. Fótbolti 10. desember 2020 13:57