Sjáðu frábæra afgreiðslu Skriniar og fyrsta rauða spjaldið á EM í ár Slóvakar byrja Evrópumótið frábærlega er þeir unnu 2-1 sigur á Póllandi í fyrsta leiknum í E-riðlinum. Fótbolti 14. júní 2021 18:24
Slæm byrjun hjá Lewandowski og félögum Slóvenía vann 2-1 sigur á Póllandi er liðin mættust í E-riðlinum í St. Pétursborg í dag en í E-riðlinum eru einnig Spánn og Svíþjóð. Fótbolti 14. júní 2021 17:53
Varð sú elsta í sögunni til að skora fyrir bandaríska landsliðið Carli Lloyd setti nýtt met í nótt þegar hún skoraði í 4-0 sigri bandaríska kvennalandsliðsins í fótbolta í vináttulandsleik á móti Jamaíku. Fótbolti 14. júní 2021 17:30
Nokkuð breytt lið mætir Írum á ný og Sveindís klár í að spila Seinni rimma Íslands og Írlands fer fram á Laugardalsvelli kl. 17 á morgun. Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, vill sjá sitt lið skora mörk og setja saman góðan 90 mínútna leik á morgun. Fótbolti 14. júní 2021 17:01
„Hef prófað að jarða tvo skoska varnarmenn og það er ekki auðvelt“ Patrik Schick var maður leiksins þegar Tékkland sigraði Skotland, 2-0, í D-riðli Evrópumótsins í dag. Schick skoraði bæði mörk Tékka, það fyrra með skalla og það síðara með stórkostlegu skoti rétt fyrir innan miðju. Fótbolti 14. júní 2021 16:26
Engin niðurstaða komin í mál Eiðs Smára Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að mál Eiðs Smára Guðjohnsen aðstoðarlandsliðsþjálfara karla sé til skoðunar hjá sambandinu. Hann telur ekki rétt að tjá sig frekar um málið á þessu stigi. Fótbolti 14. júní 2021 15:39
Schick gaf Tékkum draumabyrjun með stórkostlegum tilþrifum Patrik Schick skoraði bæði mörk Tékka í 2-0 sigri gegn Skotum, í Glasgow, í D-riðli Evrópumótsins í fótbolta. Seinna markið var algjörlega stórkostlegt. Fótbolti 14. júní 2021 14:52
Jóhannes rekinn frá Start Jóhannes Harðarson hefur verið látinn taka pokann sinn hjá norska félaginu Start en norskir miðlar segja frá þessu. Fótbolti 14. júní 2021 14:27
Sjáðu stórkostlegt mark Schicks frá miðju Tékkneski framherjinn Patrik Schick skoraði mark Evrópumótsins til þessa í leiknum gegn Skotum á Hampden Park. Fótbolti 14. júní 2021 14:25
Fótboltasjúkir foreldrar í Vestmannaeyjum Snemma í júní fyllist Heimaey í fyrsta skipti af nokkrum yfir sumarið þegar ellefu og tólf ára stelpur etja kappi í fótbolta. Foreldrar og forráðamenn fjölmenna, gisting bókast upp í bænum og starfsfólk veitingahúsa þarf að hafa sig allt við að koma mat og drykk í skarann. Krakkarnir skemmta sér en foreldrarnir ekki síður. Nýliðið mót er það fjölmennasta sem haldið hefur verið í Eyjum. Lífið 14. júní 2021 13:33
Segir að UEFA hafi hótað að dæma Dönum ósigur Peter Schmeichel segir að UEFA hafi hótað danska fótboltalandsliðinu 3-0 tapi ef það kláraði ekki leikinn gegn Finnlandi á EM um helgina. Fótbolti 14. júní 2021 13:30
Peter Schmeichel um ákvörðun UEFA eftir hjartastopp Eriksen: Þetta var algjörlega fáránlegt Danska knattspyrnugoðsögnin Peter Schmeichel gagnrýndi harðlega ákvörðunartöku UEFA eftir að Christian Eriksen hné niður í leik Dana og Finna. Schmeichel var mjög ósáttur við að danska liðið hafi þurft að klára leikinn seinna um kvöldið. Fótbolti 14. júní 2021 11:30
Hetja frá EM: Fyrsta markið fyrir Holland var þó ekki fyrsta landsliðsmarkið hans Denzel Dumfries var hetja hollenska landsliðsins í gær en hann kórónaði flottan leik sinn með því að skora sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok. Fótbolti 14. júní 2021 10:30
Gary Neville telur Liverpool hafa gert stór mistök Georginio Wijnaldum minnti á sig í sigri Hollendinga á Evrópumótinu í gærkvöldi með því að skora fyrsta markið í 3-2 sigri á Úkraínu. Wijnaldum hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool og ein orðhvöt Manchester United goðsögn er á því að Liverpool liðið eigi eftir að sakna hollenska miðjumannsins mikið á næstu leiktíð. Enski boltinn 14. júní 2021 10:00
Schmeichel og Kjær heimsóttu Eriksen á sjúkrahúsið: Braithwaite brotnaði niður Danskir landsliðsmenn hittu fjölmiðlamenn í morgun og ræddu þá um það sem kom fyrir liðsfélaga þeirra Christian Eriksen á laugardaginn og hvernig gærdagurinn var. Fótbolti 14. júní 2021 09:00
Eriksen tjáir sig í fyrsta sinn eftir hjartastoppið: Ég mun ekki gefast upp Danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen hefur tjáð sig í fyrsta sinn opinberlega eftir að hann hné niður eftir hjartastopp í leik Dana og Finna en danski miðjumaðurinn var síðan lífgaður við niðri á vellinum. Fótbolti 14. júní 2021 08:25
Sjáðu mörkin úr sigurleikjum Englands, Hollands og Austurríkis á EM í gær Þrír leikir fóru fram á Evrópumótinu í knattspyrnu í gær og í þeim voru skoruð tíu mörk sem gerir þetta að markahæsta degi Evrópumótsins til þessa. Fótbolti 14. júní 2021 08:00
Bellingham sá yngsti frá upphafi Jude Bellingham skráði sig í sögubækurnar þegar England lagði Króatíu 1-0 er liðin mættust á Wembley í fyrsta leik liðanna á Evrópumótinu í knattspyrnu. Fótbolti 14. júní 2021 07:01
Óhugnalegt fall Eriksen til jarðar kveikti strax grun um hjartastopp Kristján Guðmundsson, hjartalækni á Landspítalanum, grunaði strax sterklega hvað hafði komið fyrir danska landsliðsmanninn Christian Eriksen þegar hann féll meðvitundarlaus til jarðar án þess að bera hendur fyrir sig. Innlent 13. júní 2021 23:31
Brasilía byrjar á sigri Brasilía byrjar Suður-Ameríkukeppnina, Copa América, með 3-0 sigir á Venesúela. Fótbolti 13. júní 2021 23:30
Telur Víkinga hafa fullorðnast og hrósar þeim fyrir spilamennskuna gegn FH Frammistaða toppliðs Víkinga í 2-0 sigri liðsins á FH í leik liðanna í Pepsi Max deild karla var til umræðu í Stúkunni í gærkvöld. Sjá má umræðuna í spilaranum hér að neðan. Íslenski boltinn 13. júní 2021 23:01
Milos nýr þjálfari Jóns Guðna Knattspyrnuþjálfarinn Milos Milojevic hefur verið ráðinn sem þjálfari sænska úrvalsdeildarfélagsins Hammarby. Jón Guðni Fjóluson er í lykilhlutverki í vörn liðsins. Fótbolti 13. júní 2021 22:46
Donnarumma búinn að semja við PSG Svo virðist sem markvörðurinn Gianluigi Donnarumma sé búinn að semja við franska stórliðið París Saint-Germain. Samningur hans gildir til ársins 2026 en læknisskoðunin fer ekki fram fyrr en eftir leik Ítalíu og Sviss. Fótbolti 13. júní 2021 22:01
Cancelo með veiruna João Cancelo, bakvörður Englandsmeistara Manchester City og portúgalska landsliðsins, hefur greinst með kórónuveiruna. Hann er því farinn í einangrun og verður ekki með Pórtúgal er liðið hefur leik á EM. Fótbolti 13. júní 2021 21:30
Dumfries óvænt hetja Hollands í ótrúlegum leik Holland lagði Úkraínu 3-2 er liðin mættust í C-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn var mögnuð skemmtun en öll mörkin litu dagsins ljós í síðari hálfleik. Fótbolti 13. júní 2021 20:55
Alfons á toppinn, Samúel Kári á skotskónum og Strømsgodset vann óvæntan sigur á Rosenborg Alls fóru fimm leikir fram í Eliteserien, norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, fram í dag. Þar voru fjórir Íslendinga í eldlínunni á meðan tveir sátu á varamannabekkjum liða sinna. Fótbolti 13. júní 2021 20:01
Alaba reif í Arnautovic er þeir fögnuðu marki þess síðarnefnda Það var nokkur hiti í leikmönnum Austurríkis er þeir fögnuðu þriðja marki sínu í 3-1 sigrinum á Norður-Makedóníu í dag. Aðallega var það þó David Alaba og Marko Arnautovic sem var heitt í hamsi. Fótbolti 13. júní 2021 19:31
Danskur miðjumaður með átta A-landsleiki til liðs við Stjörnuna Miðjumaðurinn Casper Bisgaard Sloth hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu út tímabilið í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 13. júní 2021 19:16
Sjáðu mörkin: Víkingar á toppinn, fyrsti sigur Stjörnunnar og Blikar með tak á Fylki Hér að neðan má sjá mörkin úr leikjunum þremur í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu sem fram fóru í gær. Íslenski boltinn 13. júní 2021 19:02
Austurríki byrjar með góðum sigri Austurríki vann 3-1 sigur á Norður-Makedóníu er liðin hófu leik í C-riðils Evrópumótsins í knattspyrnu. Fótbolti 13. júní 2021 18:00