Þjálfarateymi ÍBV kveður vegna persónulegra ástæðna Lið ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu hefur komist að sameiginlegri niðurstöðu um starfslok þeirra Andra Ólafssyni, aðalþjálfara, og Birkis Hlynssonar, aðstoðarþjálfara. Íslenski boltinn 30. júní 2021 14:45
Tímamótasamningur sem þýðir að Meistaradeild kvenna verður í opinni dagskrá á Youtube Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur samið við streymisveituna DAZN og Youtube um að sýna frá Meistaradeild Evrópu kvenna í knattspyrnu næstu fjögur árin. Fótbolti 30. júní 2021 14:20
Tekst Schick, Sterling, Seferovic eða Lukaku að skáka Ronaldo í baráttunni um gullskóinn? Cristiano Ronaldo er enn á toppnum yfir flest mörk skoruð á Evrópumótinu í knattspyrnu en þar sem hann hefur lokið leik verður áhugavert að sjá hvort einhver geti skákað Portúgalanum geðþekka. Fótbolti 30. júní 2021 14:00
Mætir KR og ætlar svo að læra hratt á ítalska boltann, veðrið og menninguna Brynjar Ingi Bjarnason fann fyrir miklum áhuga eftir markið sem hann skoraði gegn Pólverjum. Hann nær kveðjuleik með KA gegn KR næsta mánudag áður en hann flytur til Ítalíu til að spila með liði Lecce næstu árin. Fótbolti 30. júní 2021 13:31
Fullyrti að David Beckham hafi farið tvisvar í hárígræðslu Nokkur umræða skapaðist í EM í dag eftir leik Englands og Þýskalands um það hvort David nokkur Beckham hafi farið í hárígræðslu. Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var viss um að Beckham hafi farið í allavega tvær. Fótbolti 30. júní 2021 13:00
Fimm sem stálu fyrirsögnunum í 16-liða úrslitum Nú þegar 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu er lokið er vert að skoða hvaða fimm leikmann hafa stolið fyrirsögnunum í síðustu leikjum mótsins. Fótbolti 30. júní 2021 11:30
Lecce staðfestir komu Brynjars Ítalska knattspyrnufélagið Lecce hefur staðfest komu Brynjars Inga Bjarnasonar, miðvarðar úr KA. Fótbolti 30. júní 2021 11:20
Benítez nýr stjóri Gylfa Rafael Benítez er snúinn aftur til Liverpool-borgar og hefur samið um að verða knattspyrnustjóri Everton næstu þrjú árin. Enski boltinn 30. júní 2021 10:25
Reisti minnisvarða og reif hann svo niður næstu sjö árin Þýskir fjölmiðlar vonast eftir endurreisn þýska landsliðsins og að hún hefjist í september þegar liðið mætir meðal annars Íslandi á Laugardalsvelli, í undankeppni heimsmeistaramótsins í Katar. Fótbolti 30. júní 2021 10:15
Spilar ekki meira á EM eftir tæklingu Svíans Úkraínumaðurinn Artem Besedin fær ekki tækifæri til að mæta Englendingum í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta á laugardaginn, samkvæmt úkraínskum miðlum. Fótbolti 30. júní 2021 09:00
Foreldrar stjarnanna rifust eftir tap Frakka Fjölskyldur Pauls Pogba og Kylians Mbappé fengu að heyra það í stúkunni á leik Frakklands og Sviss í Búkarest á mánudagskvöld, þegar Frakkar féllu úr leik á EM. Móðir liðsfélaga þeirra reifst og skammaðist. Fótbolti 30. júní 2021 08:34
Sævar Atli skorað 73 prósent marka Leiknis í sumar Nýliðar Leiknis Reykjavíkur hafa komið verulega á óvart í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Eftir sigur liðsins á Víkingum – sem voru taplausir fyrir leikinn - er liðið komið með 11 stig að loknum 10 leikjum og situr í 9. sæti. Íslenski boltinn 30. júní 2021 08:00
„Með svarta beltið í að tala andstæðingana upp“ Stig Tøfting, einn af spekingum sjónvarpsstöðvarinnar TV3 Sport, segir að þjálfari danska landsliðsins í fótbolta, Kasper Hjulmand, sé meistari í að tala andstæðinga sína upp. Fótbolti 30. júní 2021 07:00
Ronaldo ákveður sig á næstu dögum Forráðamenn Juventus bíða spenntir. Því á næstu dögum er talið að Cristiano Ronaldo ákveði sig hvort að hann vilji vera áfram hjá félaginu eður ei. Fótbolti 29. júní 2021 23:00
Sjáðu rauða spjaldið og dramatíkina er Úkraína sló út Svíþjóð Úkraína varð í kvöld áttunda óg síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í 8-liða úrslit Evrópumótsins 2020. Fótbolti 29. júní 2021 22:21
Elín Metta afgreiddi Keflavík Valur lenti ekki í miklum vandræðum með nýliða Keflavíkur í áttundu umferð Pepsi Max deildar kvenna er liðin mættust á Hlíðarenda í kvöld. Lokatölur 4-0. Íslenski boltinn 29. júní 2021 21:51
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Þróttur 1-2 | Þrjú víti forgörðum en Þróttur í 4. sætið Þrjú víti fóru forgörðum í Eyjum er Þróttur skaust í fjórða sætið með 2-1 sigri á ÍBV. Íslenski boltinn 29. júní 2021 21:38
Svona líta átta liða úrslitin út Úkraína varð í kvöld síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins 2020 í knattspyrnu karla. Fótbolti 29. júní 2021 21:36
Úkraína sló Svíþjóð út á 121. mínútu og mætir Englandi Úkraína er komið í átta liða úrslit Evrópumótsins eftir 2-1 dramatískan sigur á Svíþjóð. Sigurmarkið kom í uppbótartíma framlengingarinnar. Fótbolti 29. júní 2021 21:36
Nik Chamberlain: Í heildina vorum við betra liðið og áttum skilið að vinna Nik Anthony Chamberlain, þjálfari Þróttar, var sáttur með frammistöðuna hjá sínum stelpum eftir 2-1 sigur á ÍBV á Hásteinsvelli í dag. Fótbolti 29. júní 2021 20:46
Andri Hjörvar: Barátta og stríð framundan „Ég hefði viljað þrjú stig. Við vorum svo nálægt því og við lögðum svo mikið púður í það að ná í þessi þrjú stig hefði verið sanngjarnt en eitt stig er rauninn í dag og við þurfum bara að taka því,“ sagði Andri Hjörvari þjálfari Þór/KA eftir 0-0 jafntefli á móti Fylki á heimavelli í dag. Íslenski boltinn 29. júní 2021 20:35
Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Fylkir 0-0 | Markalaust fyrir norðan Þór/KA og Fylkir gerðu markalaust jafntefli í fallbaráttuslag fyrir norðan. Íslenski boltinn 29. júní 2021 19:52
Segir þá ensku finna lykt af gulli Margrét Lára Viðarsdóttir, spekingur Stöðvar 2 Sports, hrífst ekki af leikstíl enska landsliðsins í fótbolta en segir hann árangursríkan. Fótbolti 29. júní 2021 19:00
Sjáðu mörkin og er allt ærðist á Wembley England náði loksins að hafa betur gegn Þýskalandi í útsláttarleik á stórmóti er liðin mættust í 16-liða úrslitum Evrópumótsins 2020 í dag. Fótbolti 29. júní 2021 18:13
England kvað þýsku grýluna í kútinn og er komið áfram England er komið í átta liða úrslit Evrópumótsins 2020 eftir að hafa slegið út Þýskaland 2-0 í 16-liða úrslitunum á Wembley í dag. Raheem Sterling og Harry Kane sáu um markaskorunina í síðari hálfleiknum. Fótbolti 29. júní 2021 17:51
Hollenskur varnarmaður upp á Skaga og Ísak Snær segist ætla að vera áfram Botnlið Pepsi Max deildar karla hefur sótt hollenska varnarmanninn Wout Droste. Þá segist Ísak Snær Þorvaldsson ætla að vera áfram í herbúðum ÍA en lánssamningur hans á að renna út á næstu dögum. Íslenski boltinn 29. júní 2021 17:01
Jamaíka falast eftir kröftum Mason Greenwood Knattspyrnusamband Jamaíka hefur undanfarið gert hosur sínar grænar fyrir fjölda leikmanna sem eiga ættir að rekja til eyjunnar í Karíbahafinu. Fótbolti 29. júní 2021 16:32
Vonarstjarna Stjörnunnar gleymdi hvað hann var gamall og sagðist eiga fleiri trikk í pokahorninu Eggert Aron Guðmundsson nýtti svo sannarlega tækifærið er hann kom inn af bekknum í leik KR og Stjörnunnar í Pepsi Max deildinni. Þessi 17 ára gamli táningur gerði sér lítið fyrir og skoraði sigurmarkið ásamt því að ógna sífellt með hraða sínum og krafti. Íslenski boltinn 29. júní 2021 16:00
Sjáðu mörkin úr endurkomum Keflavíkur og Stjörnunnar sem og mörkin sem sökktu Víkingum í Breiðholti Alls voru 10 mörk skoruð í leikjunum þremur sem fram fóru í Pepsi Max deild karla í gærkvöld. Íslenski boltinn 29. júní 2021 15:17
De Boer hættur með hollenska landsliðið eftir meðgöngutíma Hollenska knattspyrnusambandið var ekki lengi að slíta samstarfinu við Frank de Boer eftir að Holland féll úr leik á Evrópumótinu. Fótbolti 29. júní 2021 14:50