Fótbolti

Sjáðu mörkin og er allt ærðist á Wembl­ey

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þeir ensku gátu heldur betur fagnað í dag.
Þeir ensku gátu heldur betur fagnað í dag. Catherine Ivill/Getty Images

England náði loksins að hafa betur gegn Þýskalandi í útsláttarleik á stórmóti er liðin mættust í 16-liða úrslitum Evrópumótsins 2020 í dag.

Liðin mættust á Wembley og eftir að leikar voru markalausir í hálfleik gerðu Englendingar tvö mörk í síðari hálfleiknum.

Raheem Sterling kom Englandi yfir með sínu þriðja marki á mótinu og Harry Kane gerði svo út um leikinn skömmu fyrir leikslok.

Rúmlega 40 þúsund áhorfendur studdu all hressilega við bakið á sínum mönnum í Lundúnum og þeir voru heldur betur glaðir í leikslok.

Mörkin og fagnaðarlæti Englendinga má sjá hér að neðan.

Klippa: England - Þýskaland 2-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×