Úkraína sló Svíþjóð út á 121. mínútu og mætir Englandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Artem Dovbyk réð ekki við sjálfan sig í fagnaðarlátunum.
Artem Dovbyk réð ekki við sjálfan sig í fagnaðarlátunum. Steve Bardens/Getty

Úkraína er komið í átta liða úrslit Evrópumótsins eftir 2-1 dramatískan sigur á Svíþjóð. Sigurmarkið kom í uppbótartíma framlengingarinnar.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en það voru hins vegar Úkraínumenn sem náðu forystunni á 27. mínútu á Hampden Park í Skotlandi.

Eftir frábæran undirbúning Andriy Yarmolenko fékk Englandsmeistarinn Oleksandr Zinchenko boltann og kom boltanum í netið. Frábær afgreiðsla.

Svíarnir náðu hins vegar að jafna metin fyrir hlé er skot Emil Forsberg fór af varnarmanni í netið. Markið kom á markamínútunni, þeirri 43. og staðan jöfn í hléi.

Úkraínumenn voru nálægt því að komast yfir á tíundu mínútu síðari hálfleiks er Serhiy Sydorchuk skaut í stöngina.

Í næstu sókn var það svo komið að Svíum að skjóta í stöngina en þeir geystust upp og markaskorarinn Emil Forsberg skaut í stöng.

Forsberg var ekki hættur. Á 69. mínútu þrumaði hann svo boltanum í slá eftir glæsilegan sprett og Svíarnir færðust nær og nær.

Þeir náðu þó ekki að skora það sem eftir lifði venjulegs leiktíma og heldur ekki Úkraínumenn. Því þurfti að framlengja.

Svíarnir misstu mann af velli á 98. mínútu eftir glæfralega tæklingu Marcus Danielsson. Dómarinn fór í VARsjánna og sendi hann í bað.

Það virtist ekkert mark ætla vera skorað í framlengingunni en á 121. mínútu skoraði Artem Dovbyk sigurmarkið með skalla eftir fyrirgjöf. Rosaleg dramatík og Úkraína komið áfram.

Úkraína mætir því Englandi í átta liða úrslitunum í Róm á laugardaginn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira