Fótbolti

Fimm sem stálu fyrir­sögnunum í 16-liða úr­slitum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Enska þjóðin leyfir sér að dreyma eftir 2-0 sigur á Þýskalandi.
Enska þjóðin leyfir sér að dreyma eftir 2-0 sigur á Þýskalandi. EPA-EFE/Andy Rain

Nú þegar 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu er lokið er vert að skoða hvaða fimm leikmann hafa stolið fyrirsögnunum í síðustu leikjum mótsins.

5. Thorgan Hazard

Thorgan Hazard, einn af þremur yngri bræðum Eden Hazard, tryggði Belgíu sæti í 8-liða úrslitum en hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri á Portúgal er liðin mættust í 16-liða úrslitum.

Þrátt fyrir fínan feril er Thorgan töluvert minna þekktur en eldri bróðir sinn Eden. Það sem vekur ef til vill hvað mesta athygli er horft er í frammistöðu Thorgan gegn Portúgal er sú staðreynd að hann lék í stöðu vinstri vængbakvarðar þrátt fyrir að vera réttfættur og leiki iðulega á vængnum eða í ´holunni´ með liði sínu Borussia Dortmund.

Alls hefur Thorgan spilað 38 A-landsleiki og skorað átta mörk.

Klippa: Thorgan Hazard

4. Unai Simon

Spánverjar unnu frækinn 5-3 sigur á Króatíu í leik sem hafði allt: Fjölda marka, framlengingu, drama og eitt ótrúlegasta sjálfsmark síðari ára. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark sem skráist á Pedri en Simon þarf að taka sökina.

Það er í raun erfitt að koma í orð hversu slæm mistökin voru. Myndband af þeim má sjá hér að neðan.

3. Danska landsliðið

Eftir erfiða byrjun á mótinu, bæði innan vallar sem utan, hefur danska dýnamítið svo sannarlega fundið taktinn. Liðið valtaði yfir Rússland í síðasta leik sínum í riðlakeppninni og hélt góðu gengi sínu áfram í 16-liða úrslitum.

Fyrirfram var reiknað með hörkuleik milli Danmerkur og Wales en annað kom á daginn. Kasper Dolberg kom Danmörku yfir um miðbik fyrri hálfleiks og tvöfaldaði forystuna í upphafi síðari hálfleiks.

Joakim Mæhle og Martin Braithwaite gulltryggðu svo sigurinn með mörkum undir lok leiks. Lokatölur 4-0 og Danir flugu inn í 8-liða úrslitin þar sem þeir mæta Tékkum.

2. Mario Gavranovic | Kylian Mbappé

Það er í raun erfitt að ákvarða hvern átti að taka út fyrir sviga í annars ótrúlegum leik Frakklands og Sviss. Heimsmeistararnir eru úr leik eftir að leikur liðanna fór alla leið í vítaspyrnukeppni.

Mario Gavranovic fær heiðurinn þar sem hann jafnaði metin fyrir Sviss í uppbótartíma og fullkomnaði endurkomu liðsins eftir að lenda 3-1 undir. Þá skoraði hann úr fyrsta víti vítaspyrnukeppninnar.

Kylian Mbappé fær svo þann vafasama heiður að fljóta með þar sem hann var sá eini sem klúðraði vítinu sem sendi Frakka heim á leið.

1. ´It´s coming home´

Þarf að segja eitthvað meira? Enska þjóðin er á yfirsnúning þar sem Gareth Southgate hefur svæft andstæðinga sína leik eftir leik. 

Nú síðast lágu þreyttir Þjóðverjar í valnum og ljóst er að England gæti vart beðið um auðveldari leið inn í undanúrslitin en liðið mætir Úkraínu í 8-liða úrslitum.



Tengdar fréttir

Segir þá ensku finna lykt af gulli

Margrét Lára Viðarsdóttir, spekingur Stöðvar 2 Sports, hrífst ekki af leikstíl enska landsliðsins í fótbolta en segir hann árangursríkan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×