Fótbolti

Full­yrti að David Beck­ham hafi farið tvisvar í hárígræðslu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ed Sheeran og David Beckham í stúkunni á leik Englands og Þýskalands.
Ed Sheeran og David Beckham í stúkunni á leik Englands og Þýskalands. Skjáskot

Nokkur umræða skapaðist í EM í dag eftir leik Englands og Þýskalands um það hvort David nokkur Beckham hafi farið í hárígræðslu. Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var viss um að Beckham hafi farið í allavega tvær.

„Talandi um Beckham, ég held við séum með stuðningsmenn dagsins,“ sagði Guðmundur Benediktsson, annar af þáttastjórnendum, er myndir af fyrrum knattspyrnumanninum David Beckham við hlið tónlistarmannsins Ed Sheeran birtust á skjánum. 

Munnsvipur David Seaman, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, sást einnig á myndinni en Seaman hlaut ekki sömu ást og Beckham.

„Ég verð samt að grípa inn í sem eina konan í þessu setti. Beckham, hann eldist vel,“ sagði Helena Ólafsdóttir en hún stýrir þættinum með Gumma Ben. Í kjölfarið færðist umræðan að hárinu á Beckham.

„Ég er búinn að heyra – við erum fjórir sköllóttir hérna inni – að hann er búinn að fara í tvær hárígræðslur. Vissuð þið af því?“ spurði Aron Einar.

„Já ókei, það er von,“ svaraði Jóhannes Ásbjörnsson, hinn gestur EM í dag að þessu sinni á meðan Gummi og Ólafur Kristjánsson spurðu í kór „hjá hverjum er hann?“

Aron stakk upp á að hringja í Björgólf Thor Björgólfsson, góðvin Beckham, og fá úr því skorið hvar hann lætur lappa upp á hárið á sér.

Þetta skondna innslag má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Fór David Beckham í hárígræðslu?


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×