Fjarðabyggð

Fjarðabyggð

Mannfjöldi: 5.247 (2025). Flatarmál: 1.615 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Mjóifjörður, Breiðdalsvík.

Fréttamynd

Þegar pilturinn Eiríkur var hálshöggvinn á Eskifirði

Ferðamenn sem áhuga hafa á myrkum atburðum Íslandssögunnar gætu bætt Mjóeyri við Eskifjörð á listann. Þar má sjá leiði liðlega tvítugs pilts sem leiddur var á höggstokkinn árið 1786 í hroðalegri aftöku, þeirri síðustu á Austurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Segir rétt viðbrögð hafa skipt sköpum

Rétt viðbrögð skiptu sköpum eftir að eldur kom upp í ísfisktogaranum Vestmannaey VE í gær. Það segir skipstjóri togarans en eldurinn hófst á sprengingu í vélarrúminu var skipið þá austur af landinu. Það var dregið til hafnar í Norðfirði.

Innlent
Fréttamynd

„Við héldum að við myndum sleppa“

Skólahald í leik- og grunnskóla á Reyðarfirði hófst aftur í morgun eftir að skólunum var lokað í byrjun vikunnar vegna hópsmits kórónuveirunnar. Leikskólastjóri kveðst bjartsýnn en þó megi lítið út af bregða til að allt fari úr skorðum á ný. Hópsmitið hafi komið aftan að bæjarbúum.

Innlent
Fréttamynd

Fimm greindust smitaðir og skólastarf hefst aftur

Fimm greindust smitaðir af Covid-19 á Reyðarfirði í gær og allir voru í sóttkví. Rúmlega tvö hundruð sýni voru tekin og þar að auki rúmlega níutíu hraðpróf sem smitgátar sem reyndust öll neikvæð.

Innlent
Fréttamynd

Árnar á Eskifirði hamdar með steyptum stokkum

Fimm ár sem renna í gegnum Eskifjarðarbæ eru að missa náttúrulega farvegi sína og flæða í framtíðinni um steypta stokka, með framkvæmdum sem kosta vel á þriðja milljarð króna. Tilgangurinn er að verja byggðina fyrir ofanflóðum.

Innlent