Van Gaal ætlar ekki að hætta Hollendingurinn ætlar að halda áfram sem knattspyrnustjóri Manchester United. Enski boltinn 28. desember 2015 20:01
Rooney: Úrslitin vonbrigði Wayne Rooney segir að Manchester United muni koma til baka eftir jafntefli gegn Chelsea í dag. Enski boltinn 28. desember 2015 19:47
Loksins sigur hjá West Ham Andy Carroll tryggði West Ham fyrsta sigur liðsins í ensku úrvalsdeildinni í rúma tvo mánuði. Enski boltinn 28. desember 2015 19:29
Markverðirnir í aðalhlutverki í stórslagnum Manchester United og Chelsea skildu jöfn í fjörugum leik en United var nær því að skora. Enski boltinn 28. desember 2015 19:15
Arsenal á toppinn og Cech bætti met | Sjáðu mörkin Hefur haldið markinu hreinu í 170 deildarleikjum. Mesut Özil var öflugur í 2-0 sigri á Bournemouth. Enski boltinn 28. desember 2015 19:15
Jóhann Berg ekki með og enn eitt tapið hjá Charlton Útlitið varð enn svartara hjá Charlton eftir 2-0 tap gegn Wolves í dag. Enski boltinn 28. desember 2015 17:43
Shaqiri: Þetta var fallegt mark Svisslendingurinn skoraði frábært mark þegar Stoke vann 4-3 sigur á Everton. Enski boltinn 28. desember 2015 17:26
Tottenham í þriðja sætið | Úrslit dagsins Stoke skoraði fjögur gegn Everton á útivelli og Tottenham komst upp í þriðja sæti deildarinnar. Enski boltinn 28. desember 2015 17:00
Sjáið tvö frábær mörk hjá Xherdan Shaqiri | Myndband Svisslendingurinn Xherdan Shaqiri skoraði tvö mörk fyrir Stoke City í fyrri hálfleik á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 28. desember 2015 16:11
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikir á sama stað Fjölmargir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og býður íþróttavefur Vísis lesendum sínum upp á að fylgjast með þeim öllum samtímis. Enski boltinn 28. desember 2015 14:45
Gylfi tekinn út úr byrjunarliði Swansea | Átta breytingar Gylfi Þór Sigurðsson byrjar á varamannabekknum í dag þegar Swansea City heimsækir Crystal Palce í 19. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 28. desember 2015 14:24
Kane er ekki til sölu Eftir rólega byrjun á tímabilinu hefur heldur betur kviknað á Harry Kane, framherja Tottenham. Enski boltinn 28. desember 2015 12:30
Yfirgefur Maccabi til að taka við Fulham Fulham er loksins búið að ráða nýjan knattspyrnustjóra en það eru 49 dagar síðan félagið rak Kit Symons. Enski boltinn 28. desember 2015 11:00
Gylfi hársbreidd frá því að tryggja Swansea öll stigin á Selhurst Park Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City náðu í stig á Selhurst Park í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið gerði marklaust jafntefli við heimamann í Crystal Palace. Enski boltinn 28. desember 2015 10:54
EM í hættu hjá Wilshere Líkurnar á því að miðjumaður Arsenal, Jack Wilshere, missi af EM aukast með hverri vikunni. Enski boltinn 28. desember 2015 10:30
Erum víst að leggja okkur fram fyrir Van Gaal Michael Carrick, miðjumaður Man. Utd, er ekki ánægður með umfjöllun fjölmiðla um liðið og segir það vanvirðingu að halda öðru fram en að leikmenn séu ekki að reyna sitt besta fyrir stjórann, Louis van Gaal. Enski boltinn 28. desember 2015 08:45
El Hadji Diouf: Hata Carragher og Gerrard hugsaði bara um að skora Fyrrum leikmaður Liverpool og fleiri félaga, El Hadji Diouf, vandar ekki fyrrum félögum sínum hjá Liverpool kveðjurnar í viðtali við insidefutbol vefsíðuna. Enski boltinn 27. desember 2015 22:30
Vardy tæpur fyrir toppslaginn gegn City Jamie Vardy, framherji Leicester og markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, á þessari leiktíð, er tæpur fyrir hörkuleik Leicester gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á þriðjudag. Enski boltinn 27. desember 2015 21:45
Sagði að ég spilaði eins og stelpa Umboðsmaður Romelu Lukaku lét framherjann heyra það þegar hann var að vorkenna sjálfum sér. Enski boltinn 27. desember 2015 20:15
Stones: Cleverley á að vera í landsliðinu John Stones, miðvörður Everton og enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að samherji hans hjá Everton, Tom Cleverley, ætti að fá kallið upp í enska landsliðið eftir góða frammistöðu undanfarið. Enski boltinn 27. desember 2015 16:00
Van Gaal: Verðum að þora að spila okkar fótbolta Louis van Gaal, hollenski stjóri Manchester United, sem hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga og vikur segir að Manchester United verði að þora að spila sinn fótbolta gegn Chelsea á morgun. Enski boltinn 27. desember 2015 14:15
Sturridge að verða klár á nýjan leik Daniel Sturridge, framherji Liverpool, gæti byrjað að spila með liðinu á allra næstu dögum, en hann greindi frá því á Twitter-síðu sinni í gær. Ekki eru margir leikfærir framherjar hjá Liverpool þessa daganna. Enski boltinn 27. desember 2015 12:45
Hiddink: Þessi leikur United og Chelsea sérstaklega stór Guus Hiddink, bráðabirgðarstjóri Chelsea út leiktíðina, segir að leikur Chelsea og Manchester United á morgun sé sérstaklega stór miðað við allt sem hefur gengið á hjá liðunum þessa leiktíðina. Enski boltinn 27. desember 2015 12:30
Merson býst við Chelsea sigri á Old Trafford Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, segir í pistli sínum á vefsíðu Sky Sports fréttastofunar að hann reikni með sigri Chelsea á morgun. Chelsea mætir þá Manchester United í stórleik 20. umferðar. Enski boltinn 27. desember 2015 08:00
Sjáðu mörkin og tilþrifin úr leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni Alls var 21 mark skorað í leikjunum tíu sem fóru fram í dag, annan í jólum, en heil umferð fór fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 26. desember 2015 23:30
Wenger: Spiluðum ekki vel en vorum einnig óheppnir Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að hans menn hafi ekki verið nægilega öflugir í dag, en hafi verið óheppnir með mörkin sem þeir fengu á sig. Enski boltinn 26. desember 2015 22:30
Southampton skellti Arsenal og kom í veg fyrir að þeir færu á toppinn | Sjáðu mörkin Southampton skellti Arsenal í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Með sigri gat Arsenal farið á toppinn, en allt annað var uppi á teningnum og lokatölur 4-0 sigur Dýrlinganna. Enski boltinn 26. desember 2015 21:30
Cleverley tryggði Everton sigur nokkrum sekúndum fyrir leikslok | Sjáðu markið Tom Cleverley reyndist hetja Everton þegar hann skoraði sigurmark liðsins á ögurstundu gegn Newcastle í síðdegisleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni, en heil umferð fer fram á annan í jólum. Enski boltinn 26. desember 2015 19:30
Eitt stig af sex mögulegum hjá Íslendingarliðunum Íslendingarliðin í ensku B-deildinni í knattspyrnu, Cardiff og Charlton, náðu ekki að vinna sína leiki í dag, en tíu leikir fóru fram í dag á öðrum degi jóla. Leik Blackburn og Middlesbrough var frestað vegna veðurs. Enski boltinn 26. desember 2015 17:29
Fyrsti deildarsigur Swansea í tvo mánuði Swansea vann sinn fyrsta sigur í deildinni í tvo mánuði þegar liðið vann góðan 1-0 sigur á WBA á Liberty leikvanginum í Wales fyrr í dag. Enski boltinn 26. desember 2015 17:00