Allardyce finnur fyrir pressu Sam Allardyce viðurkenndi í fjölmiðlum eftir stórt tap gegn Nottingham Forest í enska bikarnum í dag að þetta gæti haft einhver áhrif á stöðu hans. Allardyce gerði níu breytingar frá síðasta leik á byrjunarliði West Ham sem átti aldrei möguleika gegn ferskum leikmönnum Forest. Enski boltinn 5. janúar 2014 17:45
Bony skaut Swansea áfram á Old Trafford Wilfried Bony skoraði sigurmark Swansea gegn Manchester United í uppbótartíma á Old Trafford í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í dag. Fabio, vinstri bakvörður Manchester United fékk rautt spjald þegar stutt var til leiksloka og náðu gestirnir að nýta sér liðsmuninn á lokamínútum leiksins. Enski boltinn 5. janúar 2014 16:00
Gylfi langlaunahæsti íslenski íþróttamaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson, nýkrýndur Íþróttamaður ársins og leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham, er annað árið í röð launahæsti íslenski íþróttamaðurinn en Viðskiptablaðið hefur tekið þetta saman. Enski boltinn 5. janúar 2014 15:42
Lescott óánægður með stuðningsmenn Manchester City Joleon Lescott, varnamaður Manchester City og enska landsliðsins gagnrýndi stuðningsmenn City eftir óvænt jafntefli gegn Blackburn í enska bikarnum í gær. Enski boltinn 5. janúar 2014 15:30
Mourinho skorar á enska þjálfara Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, telur að enskir knattspyrnustjórar myndu læra mikið af reynslunni að prófa að þjálfa í öðrum löndum. Enski boltinn 5. janúar 2014 15:00
Stórliðin sluppu við hvort annað Dregið var í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar rétt í þessu og sluppu öll stórliðin vel. Chelsea gæti mætt Stoke á heimavelli í eina úrvalsdeildarslag umferðarinnar nái þeir að leggja Derby á iPro stadium en leikurinn var að hefjast rétt í þessu. Enski boltinn 5. janúar 2014 14:22
Obi Mikel skoraði með fyrirliðabandið John Obi Mikel sem fékk fyrirliðabandið í seinni hálfleik skoraði í sínum þrjú hundruðasta leik fyrir Chelsea í 2-0 sigri gegn Derby í ensku bikarkeppninni í dag. Með sigrinum tryggði Chelsea sæti sitt í fjórðu umferð bikarkeppninnar þar sem þeir mæta Stoke á heimavelli. Enski boltinn 5. janúar 2014 13:45
Á ekki von á því að styrkja liðið í janúar David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United telur ólíklegt að hann muni styrkja liðið í janúarglugganum. Enski boltinn 5. janúar 2014 12:45
Aron á óskalista Mark Hughes Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke City, er á höttunum eftir Aroni Jóhannessyni, framherja AZ Alkmaar og bandaríska landsliðsins samkvæmt Sunday People. Enski boltinn 5. janúar 2014 12:15
Campbell skoraði líka sigurmarkið í heiðursleik Solskjær Fraizer Campbell var hetja í anda Ole Gunnar Solskjær í gær þegar hann tryggði Cardiff 2-1 bikarsigur á Newcastle eftir að hafa komið inná sem varamaður. Enski boltinn 5. janúar 2014 09:00
Aspas opnaði markareikning sinn í sigri Iago Aspas opnaði markareikning sinn fyrir Liverpool í 2-0 sigri á Oldham í þriðju umferð enska bikarsins í dag. Aspas skoraði þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og var óheppinn að bæta ekki við stuttu seinna þegar skalli hans hafnaði í stönginni. Enski boltinn 5. janúar 2014 00:01
Nottingham Forest slátraði West Ham Nottingham Forest slátraði úrvalsdeildarliði West Ham United 5-0 í ensku bikarkeppninni á The City Ground í Nottingham í dag. Jamie Paterson átti stórleik í liði Forest, ásamt því að skora þrjú mörk krækti hann í víti á upphafsmínútum leiksins. Enski boltinn 5. janúar 2014 00:01
Arteta: Alonso ætti að geta valið úr liðum á Englandi Mikel Arteta, spænski miðjumaðurinn hjá Arsenal, er ekki vafa um annað en að landi hans Xabi Alonso gæti valið úr tilboðum frá enskum liðum ákveði hann að yfirgefa Real Madrid í sumar. Enski boltinn 4. janúar 2014 23:00
Wenger býst ekki við að Walcott lendi í vandræðum Arsenal-maðurinn Theo Walcott stal senunni í kvöld þegar hann var borinn af velli undir lokin í bikarsigri Arsenal á móti Tottenham. Enski boltinn 4. janúar 2014 21:49
Solskjær: Fullkomin byrjun Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær stýrði Cardiff City til sigurs í dag í fyrsta leiknum sínum sem knattspyrnustjóri Arons Einars Gunnarssonar og félaga. Cardiff vann þá 2-1 endurkomusigur á útivelli á móti Newcastle í 3. umferð enska bikarsins. Enski boltinn 4. janúar 2014 20:34
Nigel Clough: Getum loksins brosað eftir sex erfiða mánuði Nigel Clough, knattspyrnustjóri Sheffield United, fagnaði vel þegar hans menn unnu enska úrvalsdeildarliðið Aston Villa í ensku bikarkeppninni í dag og tryggðu sér um leið í 32 liða úrslitum keppninnar. Enski boltinn 4. janúar 2014 20:00
Walcott brosti á sjúkrabörunum og sýndi stöðuna Theo Walcott var borinn af velli þegar Arsenal komst áfram í 32 liða úrslit ensku bikarkeppninnar í kvöld eftir sannfærandi 2-0 sigur á nágrönnum sínum í Tottenham. Walcott leyfði sér samt að brosa á börunum þegar hann var borinn af velli. Enski boltinn 4. janúar 2014 19:58
Björninn burstaði SR í Reykjavíkurslagnum Björninn byrjar árið vel í íshokkíinu því liðið vann 11-1 stórsigur á Skautafélagi Reykjavíkur í Reykjavíkurslag í Skautahöllinni í Laugardal. Björninn er með fjögurra stiga forskot á toppnum. Enski boltinn 4. janúar 2014 18:30
Gylfi ekki með þegar Arsenal sló Tottenham út úr bikarkeppninni Gylfi Þór Sigurðsson spilar ekki í ensku bikarkeppninni á þessu tímabili þar sem að Tottenham er úr leik í keppninni eftir 2-0 tap á móti erkifjendunum í Arsenal í stórleik þriðju umferðar enska bikarsins. Enski boltinn 4. janúar 2014 16:45
Þrjú úrvalsdeildarlið úr leik - úrslitin í enska bikarnum í dag Ensku úrvalsdeildarliðin Aston Villa, Newcastle og West Bromwich Albion eru úr leik í enska bikarnum eftir tap í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í dag. Enski boltinn 4. janúar 2014 14:45
Sigur hjá Solskjær í fyrsta leik - varamennirnir sáu um þetta Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City eru komnir áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 2-1 sigur í Newcastle í dag í fyrsta leik liðsins undir stjórn Norðmannsins Ole Gunnar Solskjær. Enski boltinn 4. janúar 2014 14:30
D-deildarliðið Rochdale sló út Leeds Rochdale er komið áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 2-0 sigur á Leeds United í dag en Rochdale-liðið er tveimur deildum neðar en Leeds. Enski boltinn 4. janúar 2014 14:30
Mourinho: Engir dýfingamenn hjá Chelsea Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er harður á því að það leynist engir leikarar í hans leikmannahópi þrátt fyrir að leikmenn liðsins hafi fengið gul spjöld fyrir að reyna að blekkja dómarann. Enski boltinn 4. janúar 2014 14:00
Stjóri Oldham líkir Suarez við skítuga göturottu Lee Johnson, knattspyrnustjóri Oldham, er ekkert hræddur við að æsa upp markahæsta leikmann ensku úrvalsdeildarinnar fyrir bikarleik Liverpool og Oldham á morgun. Enski boltinn 4. janúar 2014 12:45
Manchester City slapp með jafntefli frá Blackburn Blackburn Rovers og Manchester City þurfa að mætast aftur í enska bikarnum eftir að liðin gerðu 1-1 jafntefli í 3. umferð keppninnar á Ewood Park í dag. Manchester City endaði leikinn einum manni færri og gat kannski þakkað fyrir að fá annan leik á heimavelli sínum. Enski boltinn 4. janúar 2014 12:15
Manchester United án bæði Rooney og van Persie um helgina Ensku meistararnir í Manchester United verða án beggja stjörnuleikmanna sinna þegar liðið mætir Swansea City í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar á morgun. Enski boltinn 4. janúar 2014 12:00
Pellegrini: Leikmenn eru alltaf að reyna að svindla Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, er á því að leikmenn séu stanslaust að reyna að svindla á dómurum. Pellegrini hefur kallað eftir aðgerðum til að sporna við leikaraskap í ensku úrvalsdeildinni og tók þar með undir með þeim Roberto Martinez, knattspyrnustjóra Everton og Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea. Enski boltinn 4. janúar 2014 11:30
Þetta hefur verið skrautlegt Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff, hefur rætt stuttlega við nýja knattspyrnustjórann sinn, Norðmanninn Ole Gunnar Solskjær, sem var ráðinn til félagsins í fyrradag. Fyrstu viðbrögð stjórans voru jákvæð. Enski boltinn 4. janúar 2014 07:00
Alvöru eldskírn hjá Solskjær Ole Gunnar Solskjær hefur nú verið treyst fyrir því verkefni að halda nýliðum Cardiff City uppi í ensku úrvalsdeildinni en liðið er nú aðeins einu stigi frá fallsæti. Enski boltinn 4. janúar 2014 06:30
Mourinho: Ég get ekki fengið Higuain Það fór af stað sterkur orðrómur í dag þess efnis að Chelsea hefði boðið Napoli heilar 50 milljónir punda fyrir argentínska framherjann Gonzalo Higuain. Enski boltinn 3. janúar 2014 22:45