Enn tveimur skrefum frá sameiningu skólanna Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri segir að enn eigi eftir að klára samtalið um samruna áður en verði af honum. Tilkynnt var í dag Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafi samþykkt að hefja sameiningarviðræður. Innlent 9. janúar 2024 16:02
Næststærsti háskóli landsins í pípunum Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafa samþykkt að hefja sameiningarviðræður. Frá þessu greindi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, að loknum ríkisstjórnarfundi. Innlent 9. janúar 2024 11:42
Rannsókn á meintum hótunum Páls skipstjóra blásin af Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur fellt niður kæru tveggja blaðamanna Heimildarinnar og útvarpsstjóra á hendur Páli Steingrímssyni skipstjóra hjá Samherja fyrir hótun sumarið 2022. Blaðamennirnir lásu hótun út úr orðum Páls í tölvupósti til þeirra að hann þyrfti að grípa til annarra ráða til að stoppa þá. Innlent 6. janúar 2024 07:01
Sambíóin „verði að girða sig í brók“ og fá nýja lyftu Sigrún María Óskarsdóttir segir að Sambíóin á Akureyri verði að „girða sig í brók“ og koma stigalyftunni í bíóhúsinu í lag. Sigrún María er í hjólastól og fór í bíó með bróður sínum á milli jóla og nýárs en þurfti að láta bera sig upp stigann því lyftan var biluð. Stiginn er um 25 til 30 þrep og í boga. Innlent 4. janúar 2024 23:32
Skel gerði tilboð sem KEA gat ekki hafnað KEA hefur selt fjárfestingafélaginu Skel allt hlutafé sitt í Eignarhaldsfélaginu Bjarma ehf. sem haldið hefur utan um fimm prósenta eignarhlut KEA í matvörukeðjunni Samkaup hf. Viðskipti innlent 3. janúar 2024 11:45
Rannsaka umskurð í heimahúsi á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra er með til rannsóknar hvort drengur á öðru aldursári hafi verið umskorinn í heimahúsi á Akureyri haustið 2022. Innlent 2. janúar 2024 18:34
Hundraðasta ferð ársins á Esjuna tileinkuð Klöru Vaskir göngugarpar arka nú upp Esjuna og einn þeirra í hundraðasta sinn á árinu. Ferð þessi er tileinkuð ungri hetju sem slasaðist alvarlega í hoppukastalaslysi. Innlent 29. desember 2023 20:03
JóiPé og Molly Mitchell nýtt par Tónlistarmaðurinn Jóhannes Damian Patreksson, betur þekktur sem JóiPé, hefur fundið ástina í örmum leikkonunnar og dansarans, Molly Carol Birnu Mitchell. Lífið 28. desember 2023 10:50
Aðstæður eins og í Austurríki Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli verða opnuð í dag, í fyrsta sinn í vetur. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðafæri gæti vart verið betra og lofar sannkallaðri hátíðarstemningu í brekkunum í dag. Innlent 22. desember 2023 11:22
Líf færist í skíðabrekkur landsins Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið í dag, í fyrsta sinn í vetur. Góðar aðstæður eru á svæðinu,-12° og logn. Skíðagarpar í jólafríi ættu því að kætast, en einnig verður opið í Hlíðarfjalli á Akureyri. Innlent 22. desember 2023 09:20
Samherji finnur not fyrir gamla Landsbankahúsið Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, hafa stofnað frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki sem verður til húsa í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Fyrirtækið mun bera nafnið Drift EA. Viðskipti innlent 21. desember 2023 10:10
Lögreglan á Akureyri leitar manns með heilabilun Lögreglan á Akureyri hefur lýst eftir manni um sjötugt, sem þjáist af heilabilun. Maðurinn er talinn hafa farið fótgangandi úr húsi á Suðurbrekkunni á Akureyri síðdegis en hann á heima í Giljahverfi. Innlent 19. desember 2023 18:13
Glitský gleðja Akureyringa Björt og litrík glitský sáust vel á Akureyri í dag. Slík ský sjást einkum þegar kalt er í veðri um vetur við sólarupprás eða sólsetur. Veður 19. desember 2023 14:03
Einn á öræfum í ellefu nætur Göngumaðurinn og þjóðfræðingurinn Einar Skúlason lauk göngu sinni frá Seyðisfirði til Akureyrar í kvöld. Honum var fylgt síðasta spölinn og kom á Ráðhústorgið í miðbæ Akureyrar upp úr sjö. Blaðamaður náði af honum tali þar sem hann gekk yfir Pollinn. Innlent 14. desember 2023 22:54
EasyJet stefnir áfram á flug til og frá Akureyri næsta vetur Breska flugfélagið easyJet hefur hafið sölu á flugferðum til Akureyrarflugvallar frá London Gatwick í október og nóvember á næsta ári. Flugfélagið hóf beint flug til Norðurlands í október síðastliðnum og er með ferðir á áætlun tvisvar í viku út mars, á þriðjudögum og laugardögum. Stefnt er að flugi sama tímabil næsta vetur og mun félagið setja fleiri mánuði í sölu þegar nær dregur. Viðskipti innlent 14. desember 2023 11:48
Einstakt heimili Margrétar á Akureyri Margrét Jónsdóttir leirlistakona kann að gera aðventuna alveg einstaka á mjög einfaldan og spennandi máta. Lífið 14. desember 2023 11:27
Ekki forsendur til skólahalds í Grímsey Upplýsingaöflun bæjarráðs Akureyrarbæjar hefur leitt í ljós að ekki séu forsendur til skólahalds í Grímsey. Skólahald var fellt niður árið 2019 en foreldrar þriggja barna óskuðu eftir því að það yrði endurvakið. Innlent 14. desember 2023 10:01
Hamborgarafabrikkunni skellt í lás á Akureyri Hamborgarafabrikkan hefur ákveðið að loka útibúi sínu á Akureyri. Húsaleigusamningur rennur út um áramótin sem framkvæmdastjóri veitingastaðarins segir meginástæðu lokunar. Viðskipti innlent 13. desember 2023 11:25
Vegagerðin tekur við rekstri Sævars Vegagerðin mun sjá um rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars frá og með 1. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Innlent 12. desember 2023 15:51
Sagðist „alveg við það að drepa þennan hobbita“ rétt fyrir andlátið Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður sem er ákærður fyrir að hafa orðið Tómasi Waagfjörð að bana á Ólafsfirði í október í fyrra, lét þau orð falla hálftíma áður en andlátið átti sér stað að hann væri „alveg við það að drepa þennan hobbita“. Þar vísaði hann til Tómasar. Innlent 11. desember 2023 11:10
Þurfa að reiða fram marga tugi milljóna þar sem engin læknismeðferð býðst á Íslandi „Við erum öll búin að leggja lífið okkar á hliðina út af þessu öllu saman,“ segir Halldór Kristinn Harðarsson. Árni Elliot Swinford, bróðir Halldórs, greindist fyrr á árinu með sjaldgæfan lungasjúkdóm og hefur neyðst til að sækja meðferð erlendis þar sem engin þekking er á meðhöndlun sjúkdómsins hér á landi. Innlent 10. desember 2023 08:01
Klámplága og kynferðislegt ofbeldi tröllríður Akureyri Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri, ætlar að óska eftir umræðu í bæjarstjórn um niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Í kjölfarið vill hún leggja fram tillögur um áætlun til að sporna við fótum gegn kynferðisofbeldi sem er algengara á Akureyri en annars staðar. Innlent 8. desember 2023 15:12
Ljósmæðrum brugðið við framgöngu stjórnenda á Akureyri Tveir yfirmenn ljósmæðra á mæðravernd annars vegar og í ungbarnavernd hins vegar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands eru að hætta störfum. Enginn sótti um sameinaða stöðu. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir ljósmæður mjög ósáttar við framgöngu stjórnenda stofnunarinnar. Innlent 7. desember 2023 07:00
Ár mikilla tímamóta hjá Berglindi og Daníel Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og Daníel Matthíasson verkefnastjóri giftu sig á föstudaginn á Akureyri. Þau greina frá tíðindunum á samfélagsmiðlum. Lífið 6. desember 2023 15:51
„Mjög þungt högg fyrir Akureyri“ Tveir heimilislæknar hafa sagt upp störfum á heilsugæslunni á Akureyri og nýverið var tveimur yfirlæknum sagt upp. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir ástandið þungt högg fyrir bæinn. Innlent 5. desember 2023 18:54
Úrræði fyrir þolendur á landsbyggðinni Þolendur á landsbyggðinni búa misvel að úrræðum þegar þeir verða fyrir ofbeldi. Frí og þolendamiðuð þjónusta er mikilvæg og aðgengi einstaklinga að slíkri þjónustu er mjög ólík á milli landshluta. Aflið þjónustar nokkur sveitarfélög en það má segja að þjónusta Aflsins sé sterkust á Norðurlandi eystra þar sem aðal starfsstöð Aflsins er. Skoðun 28. nóvember 2023 09:01
Óli kommi fallinn frá Ólafur Þ. Jónsson, fyrrverandi vitavörður í Hornbjargsvita og betur þekktur sem Óli kommi, lést í síðustu viku 89 ára gamall. Innlent 27. nóvember 2023 09:58
Tónlistarveisla til heiðurs Agli Ólafssyni Fjölmennt var á tónleikum til heiðurs Agli Ólafssyni í menningarhúsinu Hofi á Akureyri liðna helgi. Þar var farið yfir glæstan tónlistarferil Egils með sérstakri áherslu á Þursaflokksárin. Lífið 24. nóvember 2023 15:00
Gengur með jólakortin 280 kílómetra í desember Einar Skúlason, í gönguhópnum Vesen og vergangi, ætlar í desember að ganga 280 kílómetra leið frá Seyðisfirði til Akureyrar. Við komu til Akureyrar ætlar hann að dreifa í hús jólakortum til fólks og fyrirtækja. Lífið 21. nóvember 2023 12:30
Mótmæla breytingum á leikskólagjöldum á Akureyri Stéttarfélög á Akureyri saka meirihlutann í bænum um sjónhverfingar í leikskólamálum vegna breytinga á fyrirkomulagi leikskólagjalda fyrir árið 2024. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu sem sjö stéttarfélög skrifa undir. Innlent 10. nóvember 2023 13:40