Viðskipti innlent

Efnahagsráðherra telur að krónan hljóti að styrkjast brátt

Höskuldur Kári Schram skrifar
Efnhags- og viðskiptaráðherra telur allt benda til þess að krónan fari að styrkjast á næstu misserum. Gjaldeyrishöftum verður hins vegar ekki aflétt í bráð vegna þeirra tafa sem orðið hafa á framvindu efnhagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Gengi krónunnar hefur haldist nokkuð stöðugt á þessu ári enda er krónunni haldið á floti með ströngum gjaldeyrishöftum. Efnhags- og viðskiptaráðherra telur þó líklegt að krónan muni styrkjast á þessu ári.

„Það er allt sem bendir til þess að hún sé undir eðlilegu langtíma jafnvægisgengi núna og muni þess vegna styrkjast á næstu misserum. en nákvæmlega hvenær það gerist það veit ég ekki og það veit í rauninni enginn," segir Gylfi. Litlar breytingar hafa orðið á gengi krónunnar frá áramótum. Evran er þó tíu krónum ódýrari en á móti hefur dollarinn styrkst.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur litlar líkur á því að hægt verði að hefja afnám gjaldeyrishafta fyrr en í fyrsta lagi eftir tólf mánuði. Gylfi segir að fyrst verði að tryggja stöðugt gengi og eðlilegt innstreymi gjaldeyris.

„Þessar forsendur eru allar smám saman að skapast nema hvað gjaldeyrisforðinn er minni heldur en hann hefði verið ef við hefðum ekki orðið fyrir öllum þessum töfum hjá alþjóðagjaldeyrissjóðnum. En nú horfir það till betri vegar þannig að fyrr eða síðar getum við farið að taka næstu skref," segir Gylfi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×