Viðskipti innlent

Horfur úr neikvæðum í stöðugar

Óli Kristján Ármannsson skrifar
gosið í eyjafjallajökli Í nýrri greiningu matsfyrirtækisins Moody‘s á lánshæfi ríkisins er ekki gert ráð fyrir nema óverulegum áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á efnahagslíf þjóðarinnar.
gosið í eyjafjallajökli Í nýrri greiningu matsfyrirtækisins Moody‘s á lánshæfi ríkisins er ekki gert ráð fyrir nema óverulegum áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á efnahagslíf þjóðarinnar. Fréttablaðið/Vilhelm
Matsfyrirtækið Moody’s hefur breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs í stöðugar úr neikvæðum. „Horfum fyrir lánshæfisþak erlendra skuldbindinga var einnig breytt í stöðugar úr neikvæðum,“ segir í tilkynningu Seðlabanka Íslands í gær og tekið fram að breytingin eigi rætur sínar að rekja til bættrar erlendrar lausafjárstöðu ríkissjóðs vegna endurnýjunar fjármögnunar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og ríkisstjórnum Norðurlanda.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafði Moody‘s nær lokið nýju mati og stefndi á útgáfu þegar ljóst varð föstudaginn 16. þessa mánaðar að stjórn AGS hefði samþykkt aðra endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og heimilað lán hingað á grundvelli hennar. Matið var því tekið upp og birt í gær, í stað fyrirhugaðrar birtingar síðasta mánudag. Í matinu sem fallið var frá var áfram gert ráð fyrir neikvæðum horfum á lánshæfismati ríkissjóðs.

Í nýju mati Moody"s er haft eftir Kenneth Orchard, yfirmanni á sviði greiningar Moody‘s á ríkjum og gjaldmiðlum, að innflæði fjármagns á grundvelli efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS geti aukið á væntingar og stutt við efnahagslegan bata.

Þá er það mat Moody‘s að þótt Icesave-deilan sé óleyst enn, þá liggi fyrir að hún hafi ekki komið í veg fyrir lánafyrirgreiðslu til landsins. Þá virðist líklegt að nýr Icesave-samningur verði íslensku þjóðarbúi hagfelldari en fyrra samkomulag.

Í greiningu Moody‘s er jafnframt tekið fram að ekki sé gert ráð fyrir miklum áhrifum gossins í Eyjafjallajökli á íslenska hagkerfið, enda sé það fjarri helstu þéttbýliskjörnum og flugsamgöngur ekki raskast nema í nokkra daga.

Greining Íslandsbanka sagði í gær nýtt mat Moody‘s vera „afar jákvæðar fréttir“ þar sem líkur hafi minnkað á að lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs detti niður í spákaupmennskuflokk. „Verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort hin lánshæfisfyrirtækin fylgja í kjölfarið. Sér í lagi væru það jákvæð tíðindi ef Standard & Poor’s myndu fara að fordæmi Moody’s og ríkissjóður héldist í fjárfestingarflokki hjá tveimur stærstu mats­fyrirtækjunum. Slíkt myndi að mati okkar auka tiltrú markaða á landinu og flýta fyrir því að ríkissjóður geti farið að sækja fé á erlenda markaði þegar fram í sækir,“ segir í umfjölluninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×