Grunur um að tekjum hafi verið skotið undan Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 21. apríl 2010 21:20 Eignir verða kyrrfsettar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Jóni Sigurðssyni. Mynd/ Arnþór.
Skattyfirvöld munu fara fram á að eignir Skarphéðins Berg Steinarssonar, Jóns Sigurðssonar, Hannesar Smárasonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar verði kyrrsettar. Þeir voru allir í forsvari fyrir FL Group á árunum 2006 og 2007 en grunur leikur á að tekjum hafi verið skotið undan í rekstri félagsins. Hár rekstrarkostnaður FL Group var harðlega gagnrýndur, m.a. af hluthöfum. Árin 2006 og 7 nam hann samtals 9 milljörðum króna. Árið 2007 var stærsti einstaki kostnaðarliðurinn undir öðrum kostnaði sem hljóðaði upp á tæpan 3,5 milljarð króna eða 45 milljónir á hvern starfsmann. Samkvæmt heimildum fréttastofu leikur m.a. grunur á að hlunnindi starfsmanna hafi verið færð inn sem rekstrarkostnaður og því hafi starfsmennirnir ekki greitt skatt af hlunnindunum. Dæmi um slíkan kostnað eru t.a.m. ferðir á einkaþotum og notkun á eðalvagnaþjónustu. Samkvæmt heimildum fréttastofu munu skattyfirvöld krefjast þess að eignir fyrrverandi stjórnarformannanna Jóns Ásgeirs og Skarphéðins Berg verði kyrrsettar. Auk þess verður farið fram á að eignir forstjóranna á þessu tveggja ára tímabili, þeirra Hannesar og Jóns, verði kyrrsettar. Nema skattkröfurnar samtals hundruðum milljóna króna. Ef eignir þeirra hrökkva ekki upp í væntanlega skattkröfu þá er hægt að vísa málinu til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra sem rannsakar þá hvort tilefni sé til ákæru. Sektir í slíkum málum geta numið allt að tífalldri þeirri upphæð sem var skotið undan skatti. Venjan er þó að sektin nemi tvöfaldri upphæðinni. Skattrannsóknarstjóri hefur heimild til að krefjast kyrrsetningar á eignum vegna væntanlegrar sektarkröfu. Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar eru ekki undanskildir þar þó þeir beri ekki ábyrgð á skattkröfunni sjálfri heldur sektinni sem á rætur að rekja til undanskota sem áttu sér stað á þeim tíma sem þeir stýrðu félaginu. Þá er lítið skjól fólgið í því að hafa fært eignir yfir á maka sinn þar sem innheimtumaður ríkissjóðs getur gengið að hvoru hjóna um sig til greiðslu á sköttum þeirra beggja. Stefán Skjaldarson vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að embættið er með mörg mál er varða kyrrsetningar á sinni könnu um þessar mundir. Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í samtali við fréttastofu að hann hefði rætt við skattrannsóknarstjóra í dag og að upphæðin sem væri til rannsóknar í hans tilfelli væri um sjö milljónir króna.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Fleiri fréttir Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós „Ég hef aldrei spilað golf“ Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Sjá meira