AGS: Íslenska hagkerfið tekur kröftuglega við sér 26. apríl 2010 11:06 Sjóðurinn reiknar reyndar með því að hagvöxtur á milli ársfjórðunga muni mælast hér á landi á síðari hluta yfirstandandi árs sem er það um ári síðar en í nokkrum helstu iðnríkjum heims.
Íslenska hagkerfið mun taka nokkuð kröftuglega við sér á næsta ári að mati AGS og verður hagvöxturinn hér 2,3% að mati sjóðsins. Þetta er viðlíka hagvöxtur og sjóðurinn spáir að verði í iðnríkjunum að meðaltali það árið (2,4%) og meiri en hann spáir að verði bæði í Bandaríkjunum (1,5%) og á evrusvæðinu (1,5%).Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að sjóðurinn reikni reyndar með því að hagvöxtur á milli ársfjórðunga muni mælast hér á landi á síðari hluta yfirstandandi árs sem er það um ári síðar en í nokkrum helstu iðnríkjum heims.Flest ríki heims eru nú að rétta úr kútnum eftir fjármálakreppu síðustu missera. Í spá sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) sendi frá sér í síðustu viku kemur fram að sjóðurinn reiknar með því að landsframleiðsla iðnríkja heims muni vaxa um 2,3% í ár eftir 3,2% samdrátt í fyrra.Talsverður hagvöxtur verður í Bandaríkjunum eða 3,1% og nokkuð meiri en á evrusvæðinu þar sem hann verður 1,0% að mati sjóðsins. Hagvöxtur verður í flestum iðnríkjunum en undantekningarnar eru Ísland (-3,0%), Grikkland (-2,0%), Írland (-1,5%), Kýpur (-0,7%) og Spánn (-0,4%). Á meðal iðnríkjanna verður samdrátturinn því mestur hér á landi í ár að mati sjóðsins.Fjármálakreppan verður bæði dýpri og meira langvarandi hér á landi en í flestum öðrum ríkjum að mati AGS. Samdráttur landsframleiðslu í fyrra var 6,5% hér á landi og mun ekki verða hagvöxtur hér á landi fyrr en á næsta ári að mati sjóðsins. Á sama tíma var samdrátturinn að meðaltali 3,2% í iðnríkjunum, 3,2% í Bandaríkjunum og 4,1% á evrusvæðinu.Þegar litið er á löndin umhverfis okkur þá eru nokkur sem áttu erfiðara ár á þennan mælikvarða í fyrra en við. Þannig var samdrátturinn í fyrra meiri en hér á landi í Finnlandi (-7,8%), Slóveníu (-7,3%) og Írlandi (-7,1%) en þessi lönd hafa öll átt í talsverðum erfiðleikum sökum fjármálakreppunnar, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Viðskipti innlent Breyttur opnunartími hjá Sorpu Neytendur Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Neytendur Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Sjá meira