Viðskipti innlent

Á von á að fleiri matsfyrirtæki breyti mati á Íslandi

Höskuldur Kári Schram skrifar
Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra á von á að lánshæfismat Íslands batni. Mynd/ GVA.
Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra á von á að lánshæfismat Íslands batni. Mynd/ GVA.
Gylfi Magnússon, efnhags- og viðskiptaráðherra, væntir þess að fleiri matsfyrirtæki muni á næstu mánuðum fylgja í kjölfar Moody's sem á föstudag breytti lánshæfismati ríkisjóðs úr neikvæðum í stöðugar.

Moody's telur að íslenska hagkerfið hafi staðið sig almennt betur en menn áttu von á eftir hrunið 2008. Fyrirtækið bendir hins vegar á efnhagsbatinn muni taka nokkur ár en reiknað sé með því að nýjar fjárfestingar í ál- og orkugeiranum muni koma hagvexti í gang að nýju á næsta ári.

Gylfi Magnússon, efnhags- og viðskiptaráðherra, segir að þetta séu vissulega góðar fréttir og á von á því að fleiri matsfyrirtæki fylgi í kjölfarið. „Ég á vona á því að fá svipaðar fréttir á næstu mánuðum frá Fitch og Standard og Poor og það muni skila sér smám saman í betra lánshæfismati. Vð sjáum líka þá væntanlega þetta skuldatryggingaálag lækka. Og það mun fyrr eða síðar þýða að ekki bara ríkið heldur aðrir innlendir aðilar þeir fá aðgang að erlendu lánsfé á ásættanlegum kjörum. Það er kannski hægt að fá fé núna en það er á mjög háum vöxtum," segir Gylfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×