Höfnuðu sátt FME, borga tvöfalda upphæðina í sekt 23. apríl 2010 08:22
Tvö sveitarfélög, Reykjanesbær og Langanesbyggð, brutu gegn lögum um verðbréfaviðskipti í fyrra að mati Fjármálaeftirlitsins (FME). Báðum félögunum var boðin sátt í málinu en þau höfnuðu bæði þeirri sátt. Þá fengu þau stjórnvaldssekt á sig í staðinn og nam sektin tvöfaldri sáttarupphæðinni í báðum tilvikum.Fjallað er um málið á vefsíðu FME. Þar segir að málsatvik eru þau að við athugun Fjármálaeftirlitsins í maí 2009 á skilum á innherjalistum kom í ljós að Reykjanesbær, sem útgefandi skráðra skuldabréfa, hafði ekki með fullnægjandi hætti skilað listum yfir fruminnherja og aðila þeim fjárhagslega tengdum til Fjármálaeftirlitsins, þrátt fyrir að hafa fengið aðgang að rafrænu skýrsluskilakerfi Fjármálaeftirlitsins, þann 17. Desember 2008.Fjármálaeftirlitið bauð Reykjanesbæ að gangast undir sátt að fjárhæð kr. 400.000 þann 4. júní 2009, en sáttinni var hafnað.Fjármálaeftirlitið mat það svo að brot Reykjanesbæjar félli undir lög um verðbréfaviðskipti og bæri að ljúka með stjórnvaldssekt. Við ákvörðun fjárhæðar stjórnvaldssektar var litið til þess hve lengi brotið hafði varað og sambærilegra mála. Með hliðsjón af framangreindu þótti hæfilegt að gera Reykjanesbæ stjórnvaldssekt að fjárhæð kr. 800.000.Hvað Langanesbyggð varðar er um sömu málsatvik að ræða þ.e. Langanesbyggð, sem útgefandi skráðra skuldabréfa, hafði ekki skilað listum yfir fruminnherja og aðila þeim fjárhagslega tengdum til Fjármálaeftirlitsins síðan 2. ágúst 2007 en samkvæmt lögum er útgefanda slíkra fjármálagerninga skylt að skila uppfærðum lista a.m.k. á 6 mánaða fresti.Fjármálaeftirlitið bauð Langanesbyggð að gangast undir sátt að fjárhæð kr. 650.000 þann 21. ágúst 2009, en sáttinni var hafnað.Fjármálaeftirlitið mat það svo að brot Langanesbyggðar félli undir lög um verðbréfaviðskipti og bæri að ljúka með stjórnvaldssekt. Við ákvörðun fjárhæðar stjórnvaldssektar var litið til þess hve lengi brotið hafði varað og sambærilegra mála. Með hliðsjón af framangreindu þótti hæfilegt að gera Langanesbyggð stjórnvaldssekt að fjárhæð kr. 1.300.000.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Sjá meira