Fleiri fréttir

Segir Bakkavör komna á svartan lista verkalýðshreyfinga

Íslenska útrásarfyrirtækið Bakkavör hefur skipað sér á bekk illa þokkaðra fyrirtækja í Evrópu og á heimsvísu að mati launþegasamtaka. Fyrirtækið virðist eiga við fjárhagsörðugleika að stríða og mun því segja upp um 1500-2000 manns af um 14.000 starfsmönnum sínum á Bretlandseyjum.

Skuldir heimilanna hafa aukist um 28% á árinu

Skuldir heimilanna jukust um ríflega 7% á þriðja fjórðungi ársins, fyrst og fremst vegna beinna og óbeinna áhrifa af gengislækkun krónu. Á ársgrundvelli nemur aukning skulda heimilanna hins vegar 28%.

Enn samdráttur í verslun

Tæplega níu prósent samdráttur varð á veltu í dagvöruverslun miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Rannsóknasetur verslunarinnar hefur tekið saman. Um er að ræða tölur á föstu verðlagi en miðað við breytilegt verðlag jókst velta dagvöruverslunar um 19,1% miðað við sama mánuð í fyrra. Samdráttur í verslun miðað við sömu mánuði í fyrra hefur nú varað í fjóra mánuði. Talið er líklegt að jólaverslunin muni einnig dragast saman.

Góður árangur ef stöðug króna næst á tveimur mánuðum

Poul Thomsen forstöðumaður aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við Ísland, segir að það verði metið sem góður árangur ef tekst að koma stöðugleika á gengi krónunnar á næstu tvéimur mánuðum. Thomsen reiknar með að eftir það verði dregið úr þeim hömlum sem nú eru á viðskipti með erlendan gjaldeyri.

ILS lánaði 4,3 milljarða kr. í nóvember

Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ILS) rúmlega 4,3 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæplega 3,2 milljarðar kr. vegna almennra lána og tæpir 1,1 milljarður kr. vegna leiguíbúðalána.

Krónan heldur áfram að styrkjast

Gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast fjórða daginn í röð. Gengisvísitalan hefur lækkað um 1,30% í morgun og stendur í 191 stigi.

Exista á 10 aura og - Straumur á rúman túkall

Gengi hlutabréfa í Existu hrundi um 97,8 prósent og bréf Straums 64,7 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni. Viðskipti með bréf beggja félaga hafa verið á salti í rúma tvö mánuði.

Stofna eignarhaldsfélag

Nýja Kaupþing stofnar fjárfestingar- og fasteignafélag til að halda utan um eignir sem bætast kunna í safn bankans á næstu mánuðum vegna erfiðleika í rekstri stærri fyrirtækja sem eru í viðskiptum við bankann.

Ekki aðhafst vegna kaupa Birnu í Glitni

Fjármálaeftirlitið (FME) telur ekki tilefni til aðgerða af hálfu eftirlitsins gagnvart Birnu Einarsdóttur, forstjóra Nýja Glitnis, eða Melkorku ehf., fjárestingarfélagi hennar.

Búist við betri þátttöku núna

Útboð verður haldið á nýjum flokki ríkisbréfa klukkan tvö á morgun, miðvikudag. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf sem bera 13,75 prósenta vexti sem greiddir eru árlega.

Bakkabræður eignast megnið af Exista fyrir milljarð króna

Lýður og Ágúst Guðmundssynir, eigendur Bakkavarar, hafa ákveðið að leggja Existu til 1 milljarð kr. í reiðufé í flóknum viðskiptum með tvö óskráð félög í eigu þeirra bræðra, Kvakki ehf/BBR ehf. Í framhaldinu eignast þeir 88% af Exista.

FME: Birna keypti í Glitni í góðri trú

Fjármálaeftirlitið hefur lokið rannsókn sinni á viðskiptum Birnu Einarsdóttur, núverandi forstjóra Nýja Glitnis, þegar hún, eða félag hennar Melkorka ehf., keypti hlutabréf í bankanum. Kaupin gengu aldrei í gegn og því slapp Birna við tap sem varð þegar bréf í Glitni misstu verðgildi sitt. FME kemst að þeirri niðurstöðu að gögn málsins sýni að viðskiptin hafi ekki náð fram að ganga vegna vanrækslu af hálfu gamla Glitnis. „Ekkert í gögnum málsins bendir til annars en að Birna Einarsdóttir hafi verið í góðri trú og að vanefnd stafi af ástæðum sem eru óviðkomandi henni,“ segir í frétt á heimasíðu FME.

Century Aluminum hækkar um fimmtung

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, stökk upp um 19,85 prósent í Kauphöllinni á miklum uppsveifludegi í dag. Á eftir fylgdu bréf Atlantic Petroleum, sem hækkaði um 9,65 prósent, Bakkavör, sem fór upp um 8 prósent, Marel Food Systems, sem hækkaði um 4,66 prósent og Össur, en gengi bréfa í félaginu hækkaði um 4,17 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa Eimskips um 0,76 prósent.

Ekkert lát á styrkingu krónunnar

Ekkert lát er á styrkingu krónunnar síðan hún var sett á flot með kút og korki í síðustu viku. Gengið styrktist um 5,8% í dag og hefur því styrkst um 25% frá flotinu.

Fréttaskýring: Var símtal Árna dýrasti misskilningur Íslandssögunnar?

Það er athyglisvert að hvorki Árni Mathiesen fjármálaráðherra eða Björgvin G. Sigurðsson bankamálaráðherra eiga til minnismiða í fórum sínum um Icesave fundi sína og samtöl við breska ráðamenn. Vitað er að bresk stjórnvöld höfðu mikinn áhuga á að setja Icesave inn í breskt dótturfélag í haust þegar vitað var að hverju stefndi með íslenska bankakerfið.

Eyrir tapaði engu á bönkunum, NBI orðinn hluthafi

Eyrir Invest varð ekki fyrir skakkaföllum af völdum bankahrunsins í byrjun október. Félagið hefur náð samkomulagi um að taka yfir hlut Nýja Landsbankans (NIB) í London Acquisition í hollensku iðnsamsteypunni Stork. Félagið er í eigu Landsbankans, Eyris og breska fjárfestingafélagsins Candover.

Nýja Kaupþing ræður umboðsmann viðskiptavina

Stjórn Nýja Kaupþings banka hefur ákveðið að auglýsa eftir umboðsmanni viðskiptavina. Þetta er í samræmi við tillögur sem vinnuhópur á vegum ríkisstjórnarinnar kynnti þann 2. desember síðastliðinn. Umboðsmaðurinn verður óháður og starfar í umboði stjórnar bankans.

Omnis fær gullvottun hjá Microsoft

Fyrirtækið Omnis hefur hlotið gullvottun sem Microsoft-samstarfsaðili, sem þýðir að Omnis og starfsmenn þess hafi staðist ítrustu kröfur Microsoft og séu í hópi þeirra sem mesta þekkingu hafa á lausnum fyrirtækisins.

Vilja kanna kosti á einhliða upptöku annars gjaldmiðils

Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva skorar á stjórnvöld að kanna nú þegar kosti þess að taka einhliða upp annan gjaldmiðil í stað krónunnar. Þetta var tekið til umræðu og afgreiðslu á stjórnarfundi SF. 5. desember og samþykkt einróma.

Raungengi krónunnar í sögulegum lægðum

Raungengi krónu náði sögulegum lægðum í nóvember og var það ríflega fimmtungi lægra en þegar krónan stóð sem veikust í árslok 2001. Verðlag hérlendis er þannig orðið afar lágt miðað við helstu viðskiptaþjóðir okkar, og það sama gildir um kaupmátt Íslendinga erlendis.

Gunnar nýr forstjóri Opinna kerfa

Gunnar Guðjónsson hefur verið ráðinn forstjóri Opinna kerfa og tekur hann við starfinu af Agnari Má Jónssyni sem hefur látið af störfum.

Marel rýkur upp í morgunsárið

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur rokið upp um 4,14 prósent í byrjun dags í Kauphöllinni. Þetta er mesta hækkun dagsins. Á eftir fylgir gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össur, sem hefur hækkað um 1,67 prósent. Þá hefur gengi Bakkavarar hækkað um 0,67 prósent.

Viðskipti með bréf í Straumi hefjast ekki í dag

Viðskipti með hlutabréf í Straumi mun ekki hefjast í kauphöllinni í dag. Í tilkynningu frá Straumi segir að þegar sú ákörðun verði tekin muni Fjármálaeftirlitið tilkynna Kauphöllinni það samdægurs.

Skuldabréfamarkaður aðeins að taka við sér

Heildarviðskipti með skuldabréf námu alls 94 milljörðum kr. í nóvember, og eru þá orðin samtals 5.047 milljarðar kr. það sem af er árinu. Viðskiptin voru umtalsvert minni í október en nóvember.

Lánatryggjendur spá í framtíð Bakkavarar í Bretlandi

Nokkrir af lánatryggjendur hjá byrgjum Bakkavarar í Bretlandi eru hættir að veita þeim tryggingar fyrir vörukaupum sínum. Sökum þessa eru uppi vangaveltur um framtíð Bakkavarar meðal þessara lántryggjenda en fyrirtækið er stærsti söluaðili á ferskum matvælum til veitingastaða og stórmarkaða í Bretlandi.

Straumur í viðskipti í kauphöllinni í vikunni

Það vakti nokkra undrun í morgun að hlutabréf með Straum voru ekki tekin til viðskipta í kauphöllinni. Það mun hinsvegar gerast fyrr en síðar í þessari viku samkvæmt heimildum visir.is.

Kaupþing í Lúxemborg seldur til Líbýu

Líbýskur fjárfestingarbanki í ríkiseign mun eignast Kaupþing í Lúxemborg í næstu viku. Kaupverðið er ekki hátt en fjárfestingarbankinn mun sjá til þess að staðið verður við greiðslur á innistæðum sparifjáreigenda hjá Kaupþingi í Lúxemborg, Sviss og Belgíu.

Kjöraðstæður fyrir spillingu

Jón Steinsson lektor í hagfræði við Columbia háskólann í Bandaríkjunum segir engin lög í gildi hér á landi sem komi í veg fyrir að sami aðili sitji beggja vegna borðsins og steli af öðrum hluthöfum. Hann segir Lífeyrissjóðina ekki hafa gætt hagsmuna félaga sinna og það sé mikill áfellisdómur yfir þeim. Jón var gestur í Silfir Egils fyrr í dag.

Eigum ekki að leita lausna í Austur-Þýskalandi

Jón Daníelsson prófessor við London school of economics segir að gjaldeyrishöftin sem sett hafa verið auki á óvissuna og með þeim séu stjórnvöld að senda þau skilaboð að þau hafi ekki stjórn á málunum. Þau leysi skammtímavandamál en heppilegra hefði verið að taka á vandmálunum strax. Hann var gestur í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Afhverju greip Seðlabankinn ekki inn í?

„Það var pólitísk hvatning á bak við það að bankarnir færu áfram fram og yrður stærri og sterkari, það var ekki verið að halda aftur af útrásinni. Ef Seðlabankinn sá það fyrir að bankakerfið væri í hættu afhverju beittu þeir ekki bindiskyldu til þess að draga úr vexti bankanna? Þó þeir hafi sagt það sögðu þeir það hvergi opinberlega," sagði Björgvin í viðtali í Markaðnum á Stöð 2 í morgun.

Bakkabræður að eignast 87,5% í Existu

Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir eru að eignast 87,5 prósent í Exista ef fer sem horfir. Félagið verður brátt afskráð úr Kauphöll Íslands.

Pálmi lánaði Stím 2,5 milljarða

FS38, félag í eigu Pálma Haraldssonar, lánaði Stím 2,5 milljarða rétt áður en félagið keypti hluti í Glitni og FL Group í nóvember á síðasta ári. Í ársreikningi FS38 er þess getið að verulegur vafi leiki á því að lánið verði endurheimt.

Björgvin ánægður með krónuna

Krónan styrktist um tæp 11 prósent í dag og stendur því í 204 stigum. Gengið hefur því styrkst um tæp 19 prósent frá því krónunni var fleytt í gær.

Þarf að afskrifa tvo og hálfan milljarð króna vegna Stíms

FS38, félag í eigu Pálma Haraldssonar, lánaði Stím 2,5 milljarða rétt áður en félagið keypti hluti í Glitni og FL Group í nóvember á síðasta ári. Í ársreikningi FS38 er þess getið að verulegur vafi leiki á því að lánið verði endurheimt.

Nýja Kaupþing verður viðskiptavaki Straums

Straumur hefur samið við Nýja Kaupþing um viðskiptavaka með hlutabréf í Straumi fyrir eigin reikning Nýja Kaupþings. Kaupþing Banki hf., Landsbanki Íslands hf. og Glitnir hf. hafa sagt upp viðskiptavakasamningum sínum við Straum.

Gengið hefur styrkst um yfir 10% í dag

Gengi krónunnar heldur áfram að styrkjast og það sem af er degi hefur gengisvísitalan lækkað um 10,7%. Stendur vísitalan nú í tæpum 205 stigum.

Sjá næstu 50 fréttir