Straumur í viðskipti í kauphöllinni í vikunni 8. desember 2008 08:53
Það vakti nokkra undrun í morgun að hlutabréf með Straum voru ekki tekin til viðskipta í kauphöllinni. Það mun hinsvegar gerast fyrr en síðar í þessari viku samkvæmt heimildum visir.is. Straumur hafði farið fram endurupptöku viðskipta í síðustu viku enda hafði félaginu þá tekist að endurfjármagna sambankalán í mjög erfiðri stöðu og reksturinn með eðlilegum hætti miðað við aðstæður. Þar að auki er búið að semja við Nýja Kaupþing um viðskiptavakt með hlutabréf í Straumi. Það er Fjármálaeftirlitið sem tekur ákvörðun um endurkomu Straums í kauphöllina og er lögmanni FME falið að tilkynna kauphöllnni um slíkt um klukkutíma fyrir opnun markaðarins þann dag sem Straumur kemur inn að nýju. Ein tilgátan um afhverju viðskipti með Straum eru ekki hafin er sú að lögmaður FME hefði einfadlega sofið yfir sig í morgun. Sem fyrr segir fékk Straumur erlent lán í síðustu viku upp á 133 milljónir evra. Þeir sem til þekkja segja að þar hafi forráðmenn Straums unnið kraftaverk því lánsfjármarkaður hefur verið nær algerlega lokaður fyrir íslensk félög og fjármálastofnanir síðan bankarnir hrundu. Um endurfjármögnun var að ræða því lánið verður notað til að greiða upp 200 milljón kr. sambankalán sem er á gjalddaga á morgun, þriðjudag. Straumur hefur samið við Nýja Kaupþing um viðskiptavakt og sendi frá sér leiðrétta tilkynningu um skilmálanna í morgun. Í tilkynningunni segir: „Nýja Kaupþing skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í að lágmarki 1.000.000 hluta í Straumi og skulu tilboð vera á því gengi sem Nýja Kaupþing ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,25% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Nýja Kaupþing skuldbindur sig til að eiga eða selja dag hvern skal vera 25.000.000 kr. að nafnverði. Nýja Kaupþing mun hefja viðskiptavaktina tveim dögum eftir að viðskipti með hlutabréf Straums hefjast að nýju."
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira