Viðskipti innlent

Bæjarfulltrúar Garðabæjar lækka laun sín um 5-10%

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur ákveðið að lækka laun bæjarfulltrúa sinna um 5-10%. Er þetta gert vegna þeirra aðstæðna sem eru í þjóðfélaginu.

Fjallað er um málið á vefsíðunni samband.is Þar kemur fram að frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar var tekið til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær. Vegna þeirra aðstæðna sem nú eru í þjóðfélaginu og þeirrar óvissu sem er framundan er gert ráð fyrir að áætlunin verði tekin til endurskoðunar strax í apríl.

Í áætluninni er gert ráð fyrir að launatekjur Garðbæinga lækki um 13% á árinu 2009 og að útsvarstekjur Garðabæjar lækki um 8,7% þegar búið er að taka tillit til fjölgunar íbúa. Þessari tekjuskerðingu er að mestu leyti mætt með hagræðingu og sparnaði en einnig með lækkun launa bæjarfulltrúa og helstu stjórnenda.

Gert er ráð fyrir að laun bæjarfulltrúa lækki um 5-10% í samræmi við ákvörðun um lækkun þingfararlauna og að laun helstu stjórnenda lækki einnig um 5-10% vegna skerðingar á yfirvinnu. Þá mun launakostnaður nefnda lækka á árinu vegna lækkunar þóknunar og fækkunar funda.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×