Viðskipti innlent

Afhverju greip Seðlabankinn ekki inn í?

„Það var pólitísk hvatning á bak við það að bankarnir færu áfram fram og yrður stærri og sterkari, það var ekki verið að halda aftur af útrásinni. Ef Seðlabankinn sá það fyrir að bankakerfið væri í hættu afhverju beittu þeir ekki bindiskyldu til þess að draga úr vexti bankanna? Þó þeir hafi sagt það sögðu þeir það hvergi opinberlega," sagði Björgvin í viðtali í Markaðnum á Stöð 2 í morgun.

Björgvin sagði að eina leiðin fyrir Ísland sé að sækja um evrópusambandsaðild og taka upp evru sem gjaldmiðil. Hann sagði næstu vikur skipta sköpum í þeirri umræðu og benti á landsfundi Sjálfstæðisfllokksins og Framsóknarflokksins í janúar. Einnig benti hann á orð þingflokksformanns Vg um að halda ætti fund í flokknum um þessi mál.

Hann ítrekaði einnig þá skoðun sína að stjórnarflokkarnir ættu að koma sér saman um kosningar áður en kjörtímabilinu líkur þar sem margt hefði breyst.

Björgvin sagði þessa Ríkisstjórn ekki hafa verið á óskalista sínum fyrir kosningar en niðurstaða þeirra hefði verið viss vonbrigði. Hann telur í ljósi þess að þá hafi þessi ríkisstjórn verið rétt ákvörðun.

Björgvin sagði ekkert hjá sér þola ekki skoðun og fagnar rannsókninni á bankahruninu sem nú fer í gang. Hann sagði Fjármálaeftirltinu stjórnað af hæfum mönnum og fjármálaeftirlit hefðu aldrei fellt banka.

Aðspurður út í þær raddir innan Samfylkingarinnar sem kölluðu á afsögn Björgvins sagðist hann ekki halda að verið væri að vinna gegn sér innan flokksins.

„Sitt sýnist hverjum og menn setja fram ýmsar skoðanir í hita leiksins útfrá ýmsum ástæðum. En afhverju kastljósinu er beint gegn mér og fjármálaráðherra veit ég ekki, og þeir sem það segja verða að svara því."

Aðspurður um skoðun Gylfa Arnbjörgssonar forseta ASÍ um að hann eigi að víkja sagði Björgvin: „Hann er mjög upptekinn af þessu en ég hef ekki fengið neina skýringu á því sjálfur. Hann má alveg hafa þessa skoðun mín vegna, mér er bara alveg nákvæmlega sama."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×