Viðskipti innlent

Fara úr fjórum fimmtu í tvo þriðju

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Björgólfur Jóhannsson
Björgólfur Jóhannsson
Eignarhlutur Icelandair Group í tékkneska flugfélaginu Travel Service minnkar úr 80 prósentum í 66 prósent, samkvæmt nýju samkomulagi við meðeigendur Icelandair Group í félaginu.

Meðeigendurnir, Unimex Group og Roman Vik/GTO, áttu fyrir fimmtungshlut, en kaupa samkvæmt samkomulaginu 14 prósent hlutafjár til viðbótar og auka eign sína í Travel Service í 34 prósent.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningu félagsins að sam­komulagið tryggi annars vegar fjármögnun Travel Service og treysti hins vegar samstarfið við meðeigendurna, Unimex Group og Roman Vik, framkvæmdastjóra félagsins.

„Icelandair keypti 80 prósent af hlutafé Travel Service af þeim á síðasta ári og flugfélagið varð hluti af Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það hefur vaxið hratt, afkoma þess verið mjög góð og bókfært verðmæti vaxið frá kaupunum. Það, að viðbættum gengisáhrifum, mun leiða til um það bil 450 milljóna króna sölutaps vegna samningsins í uppgjöri Icelandair Group,“ segir Björgólfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×