Bakkabræður eignast megnið af Exista fyrir milljarð króna 8. desember 2008 17:10
Lýður og Ágúst Guðmundssynir, eigendur Bakkavarar, hafa ákveðið að leggja Existu til 1 milljarð kr. í reiðufé í flóknum viðskiptum með tvö óskráð félög í eigu þeirra bræðra, Kvakki ehf/BBR ehf. Í framhaldinu eignast þeir 88% af Exista. Samkvæmt þremur tilkynningum til kauphallarinnar hefur BBR ehf skráð sig fyrir 50.000.000.000 nýjum hlutum í Exista hf. Fyrir viðskiptin átti Bakkabraedur Holding B.V., félag einnig í eigu Lýðs og Ágústs, tæplega 6.408 milljón hluti í Exista. Eftir viðskiptin eiga félög tengd Lýð og Ágústi samtals sem nemur 87,9% af heildarhlutafé félagsins. Í fyrstu tilkynningu um málið var rætt um skipti á 1 milljarði hluta í Kvakki efh. fyrir framangreinda 50 milljarða hluti í Exista. Í þriðju tilkynningunni er þetta orðið BBR ehf. Eftir því sem visir.is kemst næst eru hvorugt félagið skráð neinsstaðar í opinberum plöggum. Sigurður Nordal fjölmiðlafulltrúi Exista segir að skráning þeirra sé í ferli hjá fyrirtækjaskrá. Samhliða þessu mun stjórn Exista leggja fram tillögu um heimild til hlutafjáraukningar í formi forgangsréttarútboðs til hluthafa á næsta ári. Gefst þeim þar með tækifæri til að vera með í enduruppbyggingu félagsins. Þar sem um yfirtökutilboð er að ræða af hálfu þeirra bræðra hefur Exista sótt um undanþágu til Fjármáleftirlitsins um lágmarksverð í yfirtökutilboði. Er þetta gert í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem ríkja á markaðinum og að lokað hefur verið fyrir viðskipti með Exista undanfarnar 9 vikur. Gefi því síðasta dagslokaverð á hlut í Exista í kauphöllinni ekki rétta mynd af verði hlutabréfa félagsins.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira