Viðskipti innlent

Árni með titilinn versti bankamaður heims í hendi sér

Árni Mathiesen fjármálaráðherra er nú með titilinn versti bankamaður heimsins í hendi sér. Hann er með örugga forystu í netkosningu vefsíðunnar The Huffington Post um titilinn.

Hefur Árni nú hlotið rúmlega 39% atkvæða. Alan Greenspan fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna kemst ekki í hálfkvist við Árna í öðru sætinu á listanum en Greenspan hefur hlotið 17,6%. atkvæða.

Í þriðja sæti er svo Richard Fuld fyrrum forstjóri Lehman Brothers með 10,8% og í fjórða sætinu er Hank Paulson fjármálráðherra Bandaríkjanna með 9,7% atkvæða.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×