Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Iceland Express flytur Höfuðstöðvar Iceland Express eru að flytja frá Grímsbæ við Bústaðaveg í stærra húsnæði að Ármúla 7. Starfsfólk félagsins er að flytja í dag og á morgun og má því búast við að þjónusta verði með hægara móti á meðan. Í fréttatilkynningu eru viðskiptavinir beðnir afsökunar á mögulegum óþægindum vegna þessa og þeir boðnir að heimsækja nýjar höfuðstöðvar eftir helgina. 1.9.2011 15:16
United skilaði methagnaði Manchester United skilaði methagnaði á síðasta rekstrarári sem lauk 30. júní. Félagið hagnaðist um 110,9 milljónir punda eða 20 og hálfan milljarð króna. Velta Manchester United nam rúmum 62 milljörðum króna, rúmum 8 milljörðum meira en árið á undan. 1.9.2011 14:36
Aðalmiðlarasamningi við Sögu sagt upp Saga fjárfestingabanki hefur tilkynnt Lánamálum ríkisins að það geti ekki staðið við samning sem gerður var við fyrirtækið í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Saga fjárfestingabanki var eitt fimm fjármálafyrirtækja sem slikur samningur var gerður við. Lánamál ríkisins hafa því með vísan til 11. gr. samningsins ákveðið að segja honum upp án fyrirvara. Fellur því samningurinn við Saga Fjárfestingarbanka hf. úr gildi frá og með 1. september 2011. 1.9.2011 11:44
Straumur er nýr fjárfestingabanki Fjármálaeftirlitið hefur veitt Straumi fjárfestingabankaleyfi. Straumur er nýtt félag með nýtt bankaleyfi. Félagið er í eigu ALMC, en það félag var reist á gamla Straumi-Burðarás og er í eigu kröfuhafa þess. 1.9.2011 10:14
Nýr framkvæmdastjóri Markaða Tryggvi Björn Davíðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Markaða og hefur hann störf í dag. Það er mikill fengur að fá Tryggva til liðs við Íslandsbanka þar sem hann hefur mikla starfsreynslu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Undanfarin sjö ár hefur Tryggvi unnið hjá Barclays Capital í Lundúnum og meðal annars unnið að frumgreiningu fjárfestingatækifæra. Þá hefur hann síðastliðin 2 ár byggt upp deild innan bankans sem annast skuldabréfafjárfestingar í Evrópu og verið yfirmaður innan hennar. 1.9.2011 09:05
Nýtt fiskveiðiár gengur í garð Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir nýtt fiskveiðiár sem hefst í dag. Úthlutuð þorskígildi nema í heildina 281.248 tonnum samanborið við um 261 þúsund og 100 þorskígildistonn á sama tíma í fyrra, reiknað á þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í garð. 1.9.2011 06:57
Íbúðalánasjóður skilaði ríflegum rekstrarafgangi Um 1,5 milljarða afgangur var af rekstri Íbúðalánasjóðs á fyrri helmingi ársins, samkvæmt hálfsársuppgjöri sem samþykkt var í stjórn sjóðsins í dag. Á sama tíma í fyrra var um 1,6 milljarða tap á rekstri sjóðsins. 1.9.2011 00:08
Skilanefnd Kaupþings næst stærst í Circle Oil á eftir líbíska ríkinu Skilanefnd Kaupþings er næst stærsti hluthafinn í olíufyrirtækinu Circle Oil með rúmlega níu prósenta hlut á eftir fjárfestingarsjóði Líbíska ríkisins, en Kaupþing fjárfesti með Líbíumönnum í sjóðnum á sínum tíma. 31.8.2011 18:24
Alheimskreppan stefnir efnahagsbata á Íslandi í voða Efnahagsbatanum á Íslandi er stefnt í voða vegna óróans á alheimsmarkaði, sagði sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi í tilefni af því að samstarfi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ríkisstjórnar Íslands er formlega lokið. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að meginmarkmið samstarfsins hafi náðst, að því er fram kemur í frétt Reuters. 31.8.2011 15:19
Lánin færð niður um 144 milljarða Lán heimila höfðu í lok júlí síðasliðin verið færð niður um 143,9 milljarða króna frá bankahruni. Þetta kemur fram í upplýsingum sem Samtök fjármálafyrirtækja hafa aflað meðal aðildarfélaga sinna, hjá Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum. Þar kemur einnig fram að rúmlega 87 þúsund lántakar hafa fengið eða leitað eftir niðurfærslu hjá fjármálafyrirtækjum, Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum á grunni 110% leiðar, sértækrar skuldaaðlögunar og endurútreiknings á gengistryggðum fasteignaveðlánum og bílalánum. 31.8.2011 16:55
Ingvar Helgason og B&L í söluferli Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falið að annast mögulega sölu á 100% hlut á móðurfélagi Ingvars Helgasonar ehf. og Bifreiða og landbúnaðarvéla ehf. Fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna lauk fyrr á þessu ári þegar nýir hluthafar komu að þeim. 31.8.2011 15:27
MP kaupir fyrirtækjaráðgjöf Sögu fjárfestingabanka MP banki mun kaupa fyrirtækjaráðgjöf Sögu Fjárfestingarbanka, samkvæmt samkomulagi sem hefur verið gert milli fyrirtækjanna tveggja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MP banka. 31.8.2011 14:46
Sparisjóður Svarfdælinga settur í söluferli Níutíu prósenta stofnfjárhlutur ríkisins í Sparisjóði Svarfdælinga hefur verið settur í söluferli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verðbréfum hf en fyrirtækið mun sjá um söluna fyrir hönd Bankasýslu ríkisins. 31.8.2011 13:42
Þægindin í fyrirrúmi Skapaðu notalegt vinnuumhverfi með aðstoð Pennans. Penninn sér fyrir öllu sem viðkemur aðbúnaði, vinnutækjum og góðu atlæti á vinnustað. 31.8.2011 11:00
Frumkvæði og umhyggja fyrir viðskiptavinum Vodafone leggur sig fram um að veita góða þjónustu á fyrirtækjamarkaðnum enda samkeppnin hörð. Á meðal viðskiptavina Vodafone eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins og sveitarfélög. 31.8.2011 11:00
Von á nýjum Land Rover Defender Land Rover verksmiðjurnar munu setja á markað gjörbreytta útgáfu af Defender árið 2015, eftir því sem BBC fréttastofan fullyrðir. Bílaframleiðandinn hefur einnig birt fyrstu myndirnar af bílnum sem verður af undirtegundinni DC100. Frumgerð af bílnum verður sýnd á bílasýningunni í Frankfurt í næsta mánuði. Defender kom fyrst á markað árið 1948 og hefur selst í meira en tveimur milljónum eintaka um allan heim. BBC segir að hönnun bílsins hafi lítið breyst á þessum sex áratugum. 31.8.2011 09:33
Gjaldþrotum fjölgaði um tæplega 100% Gjaldþrotum í júlí fjölgaði um tæplega 98% samanborið við sama mánuði í fyrra. Í júlí síðastliðnum voru 97 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta en þau voru 49 á sama tíma í fyrra. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru flest gjaldþrot í fasteignaviðskiptum. Fyrstu 7 mánuði ársins er fjöldi gjaldþrota 938 sem er um 55% aukning frá sama tímabili í fyrra þegar 604 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. 31.8.2011 09:12
Þjónustujöfnuður jákvæður um tæpa 16 milljarða Þjónustujöfnuður við útlönd á öðrum ársfjórðungi var jákvæður um 15,9 milljarða króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur á þjónustu á fjórðungnum var 86 milljarðar en innflutningur á þjónustu 70,1 milljarður króna. Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 16,3 milljarðar. Halli á ferðaþjónustu var um 0,8 milljarðar. 31.8.2011 09:05
Landsvirkjun selur skuldabréf fyrir átta milljarða Landsvirkjun undirritaði í gær samning um sölu á skuldabréfum til tíu ára. Fjárhæðin sem um ræðir er 70 milljónir bandaríkjadala eða um átta milljarðar íslenskra króna. Skuldabréfin bera fasta 4,9% vexti sem greiðast tvisvar á ári en höfuðstóllinn greiðist í einu lagi í lok lánstímans. 31.8.2011 06:21
Bauhaus íhugar að opna verslun Þýska byggingavöruverslanakeðjan Bauhaus skoðar nú alvarlega að opna verslun á Íslandi. Fyrirtækið hugðist opna verslun hér á landi í lok árs 2008 en frestaði þeim áætlunum um ótiltekinn tíma þegar bankahrunið skall á. 31.8.2011 06:15
Tapa eftir sölu á hlut í Össuri Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest tapaði 13,4 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta jafngildir 2,2 milljörðum íslenskra króna. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaður félagsins 3,3 milljónum evra. 31.8.2011 05:30
Telja endurreisnina hafa verið ódýra Stjórnvöld geta með góðri samvisku fullyrt að aðlögun ríkisfjármála hafi gengið samkvæmt efnahagsáætlun þeirra og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 31.8.2011 04:30
Tollar standa í vegi fyrir kjötinnflutningi Hvers konar tollar takmarka innflutning á kjöti? Fréttir af kjötskorti í verslunum hafa reglulega birst í fjölmiðlum í sumar. Í gær sagði Fréttablaðið svo frá veitingastöðum sem hafa þurft að taka rétti af matseðlum sínum vegna lítillar innlendrar framleiðslu og hárra tolla á innfluttu kjöti. 31.8.2011 04:00
Fjárfest í menntun Rannsóknir hafa sýnt að þeir vinnustaðir sem sinna endurmenntun starfsmanna eru eftirsóknarverðir og þar er starfsánægjan meiri. Hæfara starfsfólk skilar sér einnig í hagkvæmari rekstri," segir Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar. Iðan er endurmenntunarfyrirtæki í iðnaði. Markmið hennar er að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í bíliðnaði, bygginga- og mannvirkjaiðnaði, matvæla- og veitingageirum, málm- og véltækniiðnaði, upplýsinga- og fjölmiðlagreinum og hársnyrtiiðninni. 31.8.2011 11:00
Allt á einum stað Hressing, fyrirtækjaþjónusta Ölgerðarinnar, sérhæfir sig í heildarlausnum í drykkjarvöru og snarli fyrir vinnustaði landsins. Við bjóðum fyrst og fremst upp á gott úrval drykkjarvöru; eins og kaffi, te, vatnsdrykki, gosdrykki, safa og þykkni. Einnig bjóðum við upp á mikið úrval af snarli. Hugmyndin er að vinnustaðir landsins finni á einum stað þá hressingu sem hentar hverjum og einum," segir Valur Ásberg Valsson, framkvæmdastjóri Hressingar. 31.8.2011 11:00
Eimskip skilaði milljarðahagnaði Um 1,2 milljarða króna hagnaður var á rekstri Eimskips eftir skatta á fyrri helmingi ársins, samkvæmt árshlutareikningi. Afkoman fyrir fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var jákvæð um 3,8 milljarða króna. Heildareignir félagsins í lok júní voru 47,8 milljarðar króna og var eiginfjárhlutfall 58,7%. Vaxtaberandi skuldir voru 10,9 milljarðar króna, eftir því sem fram kemur í árshlutauppgjörinu. 30.8.2011 13:57
Afgangur af rekstri Strætó Um 8,4 milljóna króna afgangur var af rekstri Strætó á fyrri helmingi þessa ár. Þetta er nokkuð betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Til samanburðar var um 79 milljóna króna afgangur á fyrri helmingi síðasta árs. Eigið fé félagsins hefur aukist um 83 milljónir frá síðustu áramótum, en þá var það í fyrsta sinn jákvætt frá árinu 2004. 30.8.2011 13:13
Skógafoss tvöfaldar flutningsgetu Eimskips til og frá Norður-Ameríku Nýtt skip sem heitir Skógafoss hefur bæst í skipaflota Eimskips. Það er í förum milli Íslands og Norður-Ameríku og með tilkomu þess tvöfaldast flutningsgeta Eimskips á þeirri siglingaleið. 30.8.2011 13:00
Þeim fjölgar sem eru í alvarlegum vanskilum Einstaklingum í alvarlegum vanskilum hefur fjölgað um tæp tíu prósent frá áramótum. Á þriðja tug þúsunda var í alvarlegum vanskilum um síðustu mánaðarmót en ungt fólk er einna verst statt. 30.8.2011 12:58
Félagsmálanefnd fundar um óverðtryggð íbúðalán Félags- og tryggingamálanefnd Alþingis funda í dag um heimild til handa Íbúðalánasjóði að veita óverðtryggð lán. Frumvarp um breytingar á húsnæðislögum var til umfjöllunar síðastliðinn vetur í nefndinni en ekki afgreitt. Fundurinn í dag er haldinn að frumkvæði Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns Safmylkingarinnar. Sigríður segist telja það vera mikilvægt að félags- og tryggingamálanefnd afgreiði 2. og 3. grein frumvarpsins nú í haust sem fjalli um óverðtryggð lán enda sé mikilvægt að heimilum bjóðist valkostur við verðtryggð lán hjá sjóðnum sem fyrst. 30.8.2011 12:23
Verðlaunavítamín á markað á Íslandi Vítamínlínan Vitabiotics er nýkomin á markað hér á landi. Vítamínin eru þau mest seldu í Bretlandi en þau eru hugsuð þannig að ein tafla innihaldi allt sem fólk þarf á að halda. 30.8.2011 11:00
Keppnisþörf liggur í loftinu Eitt vinsælasta æfingaform í World Class í dag er Crossfit, sem samanstendur af mörgum greinum og er því bæði fjölbreytt og skemmtilegt. Framhaldsskólatímar eru nýjung hér á landi, þeir eru í World Class í Kringlunni. 30.8.2011 11:00
Bjóða fjölbreyttari tíma "Cross Bells er ein af þeim nýjungum sem við bjóðum upp á núna en það er blanda af CrossFit og ketilbjöllum,“ segir Hafsteinn Daníelsson, annar eigenda Veggsports. Cross Bells-tímarnir verða kenndir í hádeginu og aftur seinnipartinn þriðjudaga og fimmtudaga og klukkan 10 á laugardögum. 30.8.2011 11:00
Hagvöxtur víða að minnka Hagvöxtur í Bandaríkjunum var einungis 1% á ársgrundvelli á öðrum ársfjórðungi. Búist hafði verið við 1,3% hagvexti. 30.8.2011 11:00
Árleg fjárfesting gæti orðið rúmir 80 milljarðar Nýleg rammaáætlun iðnaðarráðuneytisins um vernd og nýtingu orkuframkvæmda gerir ráð fyrir því að fjárfesting vegna virkjunarframkvæmda á næstu árum geti numið um 4% af landsframleiðslu á næstu árum eða um 84 milljörðum króna á ári á tímabilinu 2013-2019, ef möguleikar sem falla í svokallaða nýtingar- og biðflokka, verða að veruleika. Þetta kemur fram í Markaðspunktum Greiningardeildar Arion banka. 30.8.2011 10:16
Um 133 milljarða króna afli Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 133 milljörðum króna í fyrra og jókst um 15,2% frá árinu á undan, eða um 11% ef mælt er á föstu verði. Hins vegar var aflinn um 66 þúsund tonnum minna en árið á undan eða um 1063 tonn. 30.8.2011 09:09
Boot Camp flyst til Köben Útibú íslensku æfingastöðvarinnar Boot Camp verður opnað í Kaupmannahöfn 12. september næstkomandi, en þá fá Danir að upplifa alíslenskt æfingakerfi sem byggir á krefjandi líkamsæfingum í góðum félagsskap. 30.8.2011 05:00
Stuttar boðleiðir og persónuleg þjónusta MP banki hefur frá stofnun lagt áherslu á persónulega þjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Stuttar boðleiðir, skjót ákvarðanataka og góð þjónusta hefur að sögn Lárusar Sigurðssonar, útibússtjóra 30.8.2011 11:00
Obama skipaði nýjan ráðgjafa í atvinnumálum Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað Alan Krueger, hagfræðing við Princeton háskólann sem nýjan efnahagsráðgjafa sinn. Það verður verk Kruegers að stefnu stjórnvalda í atvinnumálum en hana mun Obama kynna í ræðu sem verður haldin eftir verkamannadaginn í Bandaríkjunum, sem er þann 5. september næstkomandi. Eitt mesta meinið í bandarísku efnahagslífi er mikið atvinnuleysi. Það stendur nú í um 9,1%. Krueger var hagfræðingur í fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna á árunum 2009-2010. 29.8.2011 20:35
Forstjóri FME vill rýmka sektarheimildir Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir þörf á að rýmka sektarheimildir eftirlitsins til að auka varnaráhrif stjórnvaldsaðgerða. Hámarkssekt nú er fimmtíu milljónir króna samanborið við mörg hundruð milljóna sektarheimildir Samkeppniseftirlitsins. 29.8.2011 18:38
Sala áskriftakorta í Borgarleikhúsið framar vonum Borgarleikhúsið hefur enn og aftur sett met í sölu áskriftarkorta. „Sem kunnugt er hefur orðið sprenging í kortasölu Borgarleikhússins síðustu ár og í fyrra voru kortagestir leikhússins komnir yfir 11.000 sem er það mesta í sögu íslensks leikhúss. Þá hafði kortasala rúmlega tuttugufaldast á tveimur árum,“ segir í tilkynningu frá leikhúsinu. 29.8.2011 16:30
Bjartsýni eykst á mörkuðum Hlutabréf hafa víðast hvar í heiminum hækkað í verði í dag. Nasdaq vísitalan á Wall Street hækkaði um tvö prósent við opnun bandaríska markaðarins í dag og áður höfðu markaðir í Evrópu tekið vel við sér. Þá lokuðu markaðir í Asíu víðast hvar í plús í nótt. Ástæða aukinnar bjartsýni á mörkuðum er meðal annars rakin til frétta þess efnis að tveir af stærstu bönkum Grikklands hyggi á sameiningu. 29.8.2011 14:29
Kristinn Zimsen fékk engin lán hjá MP banka Kristinn Zimsen, sem sat í stjórn MP banka á árinu 2009, segist engin lán hafa tekið hjá gamla MP banka, en Fjármálaeftirlitið hefur sektað EA eignarhaldsfélag ehf. vegna lánveitinga bankans til fjögurra stjórnarmanna og tengdra aðila á árinu 2009. 29.8.2011 14:06
Ástand úthafsrækjunar fer versnandi Ástand úthafsrækjustofnsins hefur versnað frá síðasta ári, samkvæmt stofnmælingum í árlegum leiðangri Hafrannsóknastofnunar í júlímánuði fyrir norðan og austan land. Rækjustofninn mældist enn lítill og hafði veiðistofnsvísitala úthafsrækju lækkað um 15% frá því í fyrra. Stofnunin telur aukna þorskgengd inn á svæðið geta skýrt versnandi ástand rækustofnsins. 29.8.2011 12:25
Vilja að ráðherra kanni hvort jafnræðis hafi verið gætt Hagsmunasamtök heimilanna hafa óskað eftir því að efnahags- og viðskiptaráðuneytið kanni hvort jafnræðis hafi verið gætt í framkvæmd hundrað og tíu prósent lánaleiðréttingar heimila. 29.8.2011 12:20