Fleiri fréttir

Segist njóta stuðnings Deutche bank til þess að kaupa Iceland Foods

Stofnandi Iceland Foods, Malcom Walker, heldur því fram í Sunday Times í dag að hann njóti fjárhagslegs stuðnings Deutche bank til þess að kaupa hlut Landsbankans í Iceland Foods. Walker hefur áður lýst því yfir að hann hafi áhuga á að kaupa keðjuna og þegar lagt fram tilboð upp á einn milljarð punda en því var hafnað.

Vafi á rekstrarhæfi Olís

Olís kann að eiga í verulegum rekstrarerfiðleikum en Viðskiptablaðið greindi frá því í blaðinu sínu á fimmtudaginn að vafi kunni að leika á rekstrarhæfi félagsins. Helstu ástæður þess eru tæplega tveggja milljarða króna lán félagsins sem féll á gjalddaga í maí 2011.

Tveggja milljarða króna króna kröfur vegna hryðjuverkanna

Tryggingarfélögin í Noregi hafa fengið tilkynningar um meira en 1000 tjón með kröfum upp á yfir 100 milljónir norskra króna eftir hryðjuverkaárásina þann 22. júlí. Upphæðin er því yfir tveimur milljörðum íslenskra króna.

Tíu milljarða hlutur seldur

Til stendur að selja hluti í Bank of America fyrir í það minnsta tíu milljarða á næstu dögum. Kínverski iðnaðarbankinn mun sjá um söluna en líklegir kaupendur eru lífeyrissjóðir í Asíu og Mið-Austurlöndum og eignarhaldsfélög. Talið er líklegt að salan geti gengið í gegn í næstu viku. Í gær var tilkynnt að milljarðamæringurinn Warren Buffet hefði keypt fimm milljarða dala hlut í bankanum.

Fær 44 milljarða frá Apple

Tim Cook, nýr forstjóri Apple, fær eina milljón hluti í fyrirtækinu, samkvæmt samningi sem hann hefur gert. Þessi bónus er 383 milljóna dala virði miðað við gengi hlutabréfanna í dag. Upphæðin jafngildir um 44 milljörðum króna. Tilkynnt hefur verið um þetta til bandarískra stjórnvalda, eins og lög gera ráð fyrir. Cook fær helminginn af hlutnum árið 2016 og hinn helminginn árið 2021.

Boeing 787 Dreamliner tilbúin

Japanska flugfélagið ANA fær afhent fyrsta eintakið af Boeing 787 Dreamliner þann 25. September næstkomandi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í gær. Þrjú ár eru síðan flugfélagið pantaði vélina auk 54 annarra eintaka af sömu gerð.

Ungur hakkari fær starf hjá Apple

Unglingurinn sem skrifaði forritið JailBreakMe, sem gerir fólki kleift að „jailbreaka" ipoda og nota þannig dýr forrit án þess að borga fyrir þau, segist vera kominn með starf hjá tölvurisanum Apple.

Ástæðulaust að óttast kollsteypu

Senn eru liðin þrjú ár frá bankahruninu á Íslandi. Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir ýmislegt hafa áunnist á þessum þremur árum þótt margt hafi einnig valdið vonbrigðum.

Skýrr býst við 900 gestum

Búist er við 900 gestum á Haustráðstefnu Skýrr sem fram fer á föstudag eftir hálfan mánuð. „Þetta er einn stærsti viðburður vetrarins hér á landi í upplýsingatækni, enda um 60 fyrirlestrar í boði á 6 mismunandi fyrirlestralínum og um þriðjungur fyrirlesara eru erlendir sérfræðingar. Ég fullyrði ófeiminn að Haustráðstefna Skýrr veitir einstæða sýn

1100 milljóna hagnaður af rekstri Byrs

Byr hf. hefur birt ársreikning sinn fyrir síðasta ár. Samvkæmt honum varð hagnaður af rekstri Byrs hf. á rekstrartímabili bankans árið 2010 að fjárhæð 1.109 milljónir króna eftir skatta samkvæmt rekstrarreikningi.

Stefna á að skapa 150 störf í laxeldi

Landsbankinn hf. og Fjarðalax ehf. skrifuðu í gær undir fjármögnunarsamningi vegna rekstur laxeldis Fjarðalax í Tálknafirði og víðar. Skrifað var undir við kvíar fyrirtækisins í Tálknafirði. Samningurinn er háður framgangi fyrirtækisins og því magni sem kemur til slátrunar. Fjarðalax ehf. stefnir á að framleiða allt að 10 þúsund tonn af laxi á ári sem getur skapað um 150 störf þegar fram líða stundir. Fjármagnið nýtist í almennan rekstur en fyrst og fremst til kaupa á fóðri sem alla jafna er 70 – 80% af rekstrarkostnaði fiskeldisstöðva. Eingöngu er notast við íslenskt hágæðafóður í rekstrinum.

Lítið um bombur hjá Bernanke

Þeir sem búist höfðu við því að Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, myndi tilkynna um róttækar aðgerðir í efnahagsmálum í ræðu sinni í dag urðu fyrir vonbrigðum. Í ræðunni sagði hann að seðlabankinn myndi beita sínum tækjum á viðeigandi máta eins og hann orðaði það til þess að örva hagkerfið. Hann fór hinsvegar ekkert út í smáatriði hvað það varðar en margir höfðu búist við því að tilkynnt yrði um stórfelld kaup á skuldabréfum eða þessháttar aðgerðir.

Raforkukostnaðurinn hækkaði um 26%

Heildarraforkukostnaður hjá hjá heimilum sem eru í viðskiptum við Orkuveitu Reykjavíkur hefur hækkað um 26% frá því í júní í fyrra. Þetta kemur fram í verðkönnun ASÍ.

Meiri undirtektir en búist var við

Undirtektir í skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar í fyrradag voru mun meiri en í útboðinu á undan, segir Greining Íslandsbanka. Borgin getur vel unað við niðurstöðuna að mati Greiningar. Í boði var helsti skuldabréfaflokkur borgarinnar, RVK 09 1, og bárust alls tilboð að nafnvirði 2,9 ma.kr. í flokkinn á kröfubilinu 3,89% - 4,07%. Tilboðum að nafnvirði 1,4 ma.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,9%.

Les um klámstjörnu og bíður þess að Bernanke ljúki sér af

Það þorir enginn að hreyfa sig á mörkuðum fyrr en Ben Bernanke, aðalseðlabankastjóri í Bandaríkjunum, hefur lokið við ávarp sitt sem áformað er að hann muni flytja í dag. Þetta á ekki aðeins við um markaði í Bandaríkjunum heldur í Evrópu og jafnvel á Norðurlöndunum er töluverður slaki.

Sendu 300 verkamenn heim vegna veikinda

Fataverksmiðja H&M í Kambódíu varð að senda um 300 verkamenn heim tvisvar sinnum í vikunni vegna veikinda. Á þriðjudaginn voru 86 verkamenn sendir heim og í gær voru svo 198 sendir heim.

Hagnaður HS Veitna nam 124 milljónum

Hagnaður HS Veitna á fyrri helmingi ársins nam 124 milljónum króna. Þetta kemur fram í árshlutareikningi sem samþykktur var í morgun. Rekstrartekjur félagsins námu tæpum 2700 milljónum krónja á fyrstu sex mánuðum ársins.

Síðasta endurskoðunin afgreidd hjá AGS eftir hádegi

Síðasta endurskoðun áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Íslands verður tekin fyrir í stjórn sjóðsins í Washington í dag. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu er gert ráð fyrir að fundurinn hefjist eftir hádegið í dag. Þar með lýkur formlega samstarfi AGS og Íslands sem staðið hefur yfir frá því eftir hrunið haustið 2008.

Co-operative Group hefur áhuga á Iceland

Breska kaupfélagið Co-operative Group íhugar að kaupa hlut í Iceland verslunarkeðjunni. Co-operative Group er risastórt félag á Bretlandi. Það starfar meðal annars á matvælamarkaði, í ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu og útfararþjónustu.

JP Morgan braut viðskiptabann

Bandaríski bankinn JP Morgan Chase hefur gert samkomulag við fjármálaráðuneytið í Bandaríkjunum um að greiða 88 milljóna dala sekt vegna meintra brota á viðskiptabanni á Kúbu, Súdan, Líberíu og Íran. Fjármálaráðuneytið segir að brotin hafi átt sér stað frá árinu 2005 til ársins 2011. Fram kemur á fréttavef BBC að brotin fólust meðal annars í rúmlega 1800 millifærslum þar sem um 180 milljónir dala voru fluttar til Kúbu, þvert á þær reglur sem gilda í Bandaríkjunum. JP Morgan segir að fyrirtækið hafi ekki ætlað sér að brjóta bandarískar reglugerðir.

Beðið eftir ræðu seðlabankastjóra

Beðið er eftir ræðu Ben Bernake, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, með mikilli eftirvæntingu en hann mun flytja ræðuna síðdegis í dag. Vonast er til þess að hann boði til aðgerða sem komi til með að bæta efnahag landsins.

SPKef né Byr hafa skilað ársreikningi fyrir síðasta ári

Hvorki SPKef né Byr hafa skilað ársreikningi fyrir árið 2010. Þingmaður sjálfstæðisflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, segir þetta ótrúleg vinnubrögð af hálfu ríkisstjórnarinnar. Skattgreiðendur eigi heimtingu á að sjá stöðu fyrirtækja í opinberri eigu.

Verðhjöðnun sé horft framhjá útsölulokum

Greiningadeild Arion banka segir að ef horft sé framhjá áhrifum útsöluloka, mælist verðhjöðnun í ágúst. Vegna útsölulokanna hækkaði neysluverðsvísitalan hins vegar um 0,26%. Greining Arion segir að þetta veki sérstaka athygli sökum þess að þegar Seðlabankinn hækkaði vexti um 25 punkta á dögunum hafi hann varað sérstaklega við verri verðbólguhorfum.

Þrjú svið sendu frá sér afkomuviðvörun

Þrjú svið sem starfa innan Reykjavíkurborgar hafa sent frá sér afkomuviðvörun vegna ársins 2011. Um er að ræða Íþrótta- og tómstundasvið, Menntasvið og Leikskólasvið. Þetta kemur fram í minnisblaði sem fylgir sex mánaða uppgjöri Reykjavíkurborgar. Uppgjörið var kynnt í borgarráði í morgun.

Buffet kaupir í Bank of America fyrir fimm milljarða

Milljarðarmæringurinn Warren Buffet hyggst kaupa hlut í Bank of America fyrir fimm milljarða dala í gegnum eignarhaldsfélag sinn, sem heitir Bershire Hathaway. Þetta kom fram í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í dag. Upphæðin nemur um 570 milljörðum íslenskra króna. Um er að ræða 50 þúsund hluti í bankanum, eftir því sem fram kemur í tilkynningunni. Buffet er einn af ríkustu mönnum í heimi. Hann vakti athygli fyrr í mánuðinum þegar að hann hvatti stjórnvöld í Bandaríkjunum til að hækka skatta á auðmenn.

Afkoma A-hluta Reykjavíkur fer batnandi

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 996 milljónir kr. en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.522 milljónir kr. á tímabilinu. Niðurstaðan er því betri en gert var ráð fyrir, sem nemur 526 milljónum kr.

Glencore hagnast um 280 milljarða

Hrávörurisinn Glencore International skilaði hagnaði upp á tæpa 2,5 milljarða dollara eða um 280 milljarða kr. á fyrri helmingi ársins. Þetta er 57% aukning á hagnaðinum miðað við sama tímabil í fyrra.

Verðbólgan minni en sérfræðingar spáðu

Verðbólgan í ágúst reyndist nokkuð minni en sérfræðingar höfðu spáð. Allar spár gerðu ráð fyrir að verðbólgan myndi aukast en í raun stóð hún í stað í 5% milli mánaða.

Ævintýralegur ferill Steve Jobs

Ferill Steve Jobs fráfarandi forstjóra Apple er ævintýri líkastur en honum hefur tekist að byggja þetta fyrirtæki upp í að vera annað verðmætasta fyrirtækið á bandaríska hlutabréfamarkaðinum.

Kínverjar vilja fjárfesta í ferðaþjónustu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fundaði í gær með Huang Nubo, stjórnarformanni kínverska fjárfestingarfyrirtækisins Zhongkun Group. Fyrirtækið áformar að fjárfesta í umhverfistengdri ferðaþjónustu á Íslandi, og taka þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu í samstarfi við íslensk stjórnvöld.

Steve Jobs hættur sem forstjóri Apple

Steve Jobs er hættur sem forstjóri Apple tölvurisans en mun starfa áfram sem stjórnarformaður fyrirtækisins. Tilkynnt var um þetta í gærkvöldi. Tim Cook sölustjóri Apple tekur við forstjórastarfinu af Jobs.

Tengjast rannsókn sérstaks saksóknara

Skilanefnd gamla Landsbankans ætlar á ný að reyna að sækja 10 milljónir svissneskra franka, jafnvirði 1,4 milljarða íslenskra króna, til eignarhaldsfélaga feðganna Flosa Valgeirs Jakobssonar og Jakobs Valgeirs Flosasonar í Bolungarvík. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 31. ágúst næstkomandi.

Sjá næstu 50 fréttir