Fleiri fréttir

Fleiri keyptu áfengi í ár en í fyrra

Sala áfengis jókst um 1,2 prósent í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 3 prósent á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í júní 1,4 prósent frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 1,8 prósent hærra í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Guðný Erla nýr útibústjóri Landsbankans á Höfn

Guðný Erla Guðnadóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Landsbankans á Höfn í Hornafirði. Guðný Erla er verkfræðingur og hefur meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur undanfarið unnið sem Lána- og viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Íslandsbanka á Ísafirði.

Vinna við Búðarhálsvirkjun er á áætlun

Byggingarvinna við Búðarhálsvirkjun gengur vel og er verkið á áætlun. Ístak vinnur að verkinu sem felst í meginatriðum í gangnagerð, byggingu stíflu og gerð stöðvarhúss.

Schmeichel betri í markinu en á markaðinum

Hinn þekkti danski markmaður Peter Schmeichel þénaði milljarða á ferli sínum, einkum hjá enska félaginu Manchester United. Þeir milljarðar eru að stórum hluta að gufa upp því fjárfestingar markmannsins hafa gengið einstaklega illa í gegnum tíðina. Schmeichel reyndist mun betri í markinu en á markaðinum.

ESA vill breytingar á ÍLS innan sex mánaða

ESA, eftirlitsstofnun EFTA hefur ákveðið að leggja til við íslensk stjórnvöld að breytingar verði gerðar á Íbúðalánasjóði (ÍLS) til að laga hann að ríkisaðstoðarreglum EES samningsins. Ákvörðuninni skal komið í framkvæmd fyrir 1. janúar 2012.

Enn hækkar verð á gulli

Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka og var í morgun komið í tæpa 1.605 dollara á únsuna. Verðið fór yfir 1.600 dollara í fyrsta sinn í sögunni í gærdag.

Cisco segir yfir 11.000 starfsmönnum upp

Tölvufyrirtækið Cisco, sem er umsvifamesti framleiðandi á netbúnaði í heiminum, hefur tilkynnt að það muni segja upp yfir 11.000 manns eða um 15% af öllum starfsmönnum sínum.

Mikill skortur á tölvusérfræðingum hrjáir Dani

Mikill skortur á tölvusérfræðingum hrjáir nú dönsk tölvufyrirtæki. Samkvæmt frétt um málið í Jyllandsposten er talið að það vanti hátt í 4.000 slíka til starfa í Danmörku.

Lítið orðið af stórframkvæmdum

Lítið hefur enn orðið af þeim stórframkvæmdum sem boðaðar voru í stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins árið 2009. Framkvæmdir við nokkur verkefni gætu þó hafist á næstunni.

Segir lambakjötsbirgðir duga út sumarið

Það er ekki rétt að skortur sé á lambakjöti hér á landi, segir formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson. Leifur Þórsson, framkvæmdastjóri hjá Ferskum kjötvörum, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að skortur væri á lambakjöti á Íslandi. Hann hefur óskað eftir því við landbúnaðarráðuneytið að fá leyfi til innflutnings á lambalærum.

Verð á gulli hækkar enn

Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka. Verðið fór í 1.600 dollara á únsuna í framvirkum viðskiptum í gærmorgun og hefur aldrei verið hærra.

Merkel útilokar ekki skuldaafskriftir

Angela Merkel, Þýskalandskanslari, segir nú allt reynt til að koma í veg fyrir að fella þurfi niður eitthvað af skuldum gríska ríkisins. Hún útilokar þó ekki lengur að til þess þurfi að koma. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir að standa stíf á því að Grikkir þurfi að greiða allar skuldirnar, en segir nú kannað hvort einhverjir lánardrottnar Grikkja bjóðist til að fella niður eitthvað af skuldum þeirra. Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, segir að Merkel sé með einstrengingslegri afstöðu sinni að eyðileggja það Evrópusamstarf, sem hann barðist alla tíð fyrir.

Sex vilja byggja hótel við Hörpu

Í dag rann út frestur til að skila tilboði í byggingarreitinn vestan við Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsið í miðborg Reykjavíkur. Um var að ræða opið söluferli af hálfu eiganda lóðarinnar, eignarhaldsfélagsins Situsar, sem kynnt var fyrir erlendum og innlendum fjárfestum. Tugir fyrirspurna komu frá áhugasömum fjárfestum en á endanum bárust sex formleg tilboð í byggingarréttinn á lóðinni, þrjú eru frá íslenskum aðilum og þrjú frá erlendum aðilum.

Leggur til að skuldaþakið verði afnumið

Matsfyrirtækið Moody´s leggur til að Bandaríkjamenn afnemi skuldaþak sitt. Slíkt myndi draga úr óvissunni hjá þeim sem fjárfesta í bandarískum skuldabréfum.

Harry Potter sló met og halaði inn 20 milljörðum

Síðasta myndin um galdrastrákinn Harry Potter sló öll met í miðasölu um helgina en talið er að hún hafi halað inn 168 milljónir bandaríkjadollara, eða tæplega 20 milljarðra íslenskra króna. Það er það lang mesta sem hefur komið í kassann á frumsýningarhelgi bíómyndar en fyrir helgina var Batmanmyndin Dark Knight í fyrsta sæti með 158 milljónir dollara.

Skuldatryggingaálag Íslands hækkar áfram

Skuldatryggingaálag Íslands hækkar áfram. Það stendur nú í 255 punktum samkvæmt viðskiptavefnum keldan.is. Í lok síðustu viku var álagið hinsvegar 240 punktar.

Heimsmarkaðsverð á gulli komi í 1.600 dollara

Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að slá met. Verðið fór í 1.600 dollara á únsuna í framvirkum viðskiptum í morgun og hefur verðið aldrei verið hærra í sögunni.

Sala Iceland hefst í september

Söluferlið á Iceland matvörukeðjunni mun hefjast í september. Ráðgjafafyrirtækið Ernst & Young hefur verið fengið til að skrifa söluyfirlit sem verður tilbúið á næstu átta vikum, segja heimildarmenn í samtali við Sunday Express.

Skuldir Grikklands á mörkum þess að vera viðráðanlegar

Skuldir Grikklands eru viðráðanlegar en samt alveg á mörkum þess að vera það, segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Verið er að veita ríkissjóði um 110 milljarða evra björgunarpakka en fjárfestar eru samt hræddir um að ríkið lendi í greiðsluþroti.

Miðar á Harry Potter seldir fyrir milljarða

Nýja myndin um Harry Potter þénaði metfé fyrsta daginn sem hún var sýnd í amerískum kvikmyndahúsum. Dreifingafyrirtækið Warner Bros segir að kvikmyndin hafi halað inn 92 milljónum bandaríkjadala, tæpum 11 milljörðum íslenskra króna. Þetta er 20 milljónum dölum, eða 2,3 milljörðum, meira en The Twilight Saga: New Moon halaði inn fyrir tveimur árum.

Strauss-Kahn slakar á undir dönskum fiðluleik

Fiðlutónleikar með danska fiðluleikaranum Nikolaj Znaider gáfu Dominque Strauss-Kahn fyrrum forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tækifæri til að slaka aðeins á í annars alvarlegri stöðu sinni.

Álagsprófið sýnir 13.000 milljarða gat

Álagspróf fjármálaeftirlits Evrópu á 90 banka innan ESB sýnir 80 milljarða evra eða rúmlega 13.000 milljarða kr. gat í bókhaldi þeirra. Ef réttar forsendur hefðu verið notaðar í prófinu hefðu 25 topp bankar í Evrópu fallið á því auk þeirra 8 sem náðu ekki prófinu.

Verðbólguhorfur mun lakari

Verðbólguhorfur fyrir árið eru nú mun lakari en útlit var fyrir í upphafi árs. Verðbólga verður þannig orðin 6 prósent í september, gangi spá Greiningar Íslandsbanka eftir.

Átta bankar féllu á álagsprófi

Fjármálaeftirlit Evrópusambandsins segir að átta af 91 banka hafi fallið á álagsprófi, sem var gert til að komast að því hvernig þeim myndi reiða af í nýrri kreppu. Sextán bankar að auki rétt skriðu í gegnum prófið.

Veiðigjaldið hækkað, skilar 4,5 milljörðum

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að veiðigjald komandi fiskveiðiárs verði 9,46 krónur af hverju lönduðu þorskígildiskílói og er áætlað að það skili um 4500 milljónum króna í ríkissjóð. Það er umtalsverð hækkun frá yfirstandandi fiskveiðiári þar sem reiknað er með að veiðigjaldið skili um 2700 milljónum kr.

Telur heimild skorta fyrir sölu ríkisins á hlut sínum í Byr

Þingmaður í stjórnarandstöðu gagnrýnir að kaupverð hafi ekki verið gefið upp við sölu ríkisins á Byr og telur að fjármálaráðherra skorti heimild alþingis til að selja hlutinn. Hún er uggandi um framhaldið á sölu fjármálafyrirtækja.

Mikið kvartað undan skorti á verðmerkingum

Mikið er kvartað undan skorti á verðmerkingum á kjötvörum til Neytendasamtakanna og ljóst er að margir eiga erfitt með að sætta sig við skannana sem settir hafa verið upp eftir að bann við forverðmerkingum tók gildi.

Enn mikið líf á fasteignamarkaðinum

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í þessari viku var 101. Þetta er tíu samningum meir en nemur meðaltali síðustu 12 vikna sem er 91 samningur á viku.

Setur upp fyrsta kolefnisfría tölvuskýi veraldar

Tölvuþjónustan SecurStore ehf. (Securstore) og Rackspace hafa undirritað samkomulag um uppsetningu á fyrsta kolefnisfría tölvuskýi veraldar. Samkomulagið felur í sér að Securstore setur upp hugbúnað frá Rackspace í gagnaveri sínu á Íslandi.

Sjá næstu 50 fréttir