Fleiri fréttir

Wall Street íhugar að sniðganga skattahækkanir

Óttinn við að skattar hækki hjá hátekjufólki í Bandaríkjunum á næsta ári hefur leitt til þess að stór fjármálafyrirtæki á Wall Street eru að íhuga að borga bónusa fyrir árið í ár strax fyrir áramótin. Venjan er að þessir bónusar eru greiddir út eftir áramótin.

David Cameron vongóður um árangur í Icesavedeilunni

David Cameron forsætisráðherra Bretlands er vongóður um að árangur sé að nást í samningaviðræðum við Íslendinga í Icesavedeilunni. Greint er frá þessu á fréttavef Nasdaq kauphallanna þar sem rætt er við talskonu ráðherrans.

Greining: Lausn Icesave væru gríðarlega jákvæðar fréttir

Yrði það raunin að Icesave deilan leysist fyrir jól er ljóst að um gríðarlega jákvæðar fréttir er að ræða enda verður mikilli óvissu þá aflétt. Icesave málið hefur hangið yfir þjóðinni eins og Damóklesarsverð allt frá hruni með víðtækum afleiðingum á hinum margvíslegustu sviðum.

Icesave-drög: 0-50 milljarðar á ríkið

Drög að meginatriðum nýs Icesave-samkomulags gera ráð fyrir að kostnaður sem lendi á ríkissjóði verði á bilinu 0-50 milljarðar króna. Drögin að helstu atriðum sem náðst hefur samkomulag um, eins og vaxtaprósentu, voru kynnt í stjórn Viðskiptaráðs Íslands og hafa verið kynnt forystumönnum Samtaka atvinnulífsins. Samninganefndir eru enn að störfum.

Hagkerfið finnur botn kreppunnar á næstu mánuðum

Reikna má með því að hagkerfið finni botn kreppunnar á næstu mánuðum og að við taki hægfara bati, að því er segir í nýrri hagspá greiningar Íslandsbanka. Greiningin gerir ráð fyrir 0,9% hagvexti á næsta ári og 2,9% hagvexti árið 2012.

Ráðinn til að rannsaka yfirtökur banka á fyrirtækjum

Benedikt Árnason hefur verið ráðinn til Samkeppniseftirlitsins sem ráðgjafi í fullu starfi, en hann mun taka þátt í ýmsum rannsóknum sem varða endurskipulagningu fyrirtækja og yfirtökur banka á fyrirtækjum.

Tæplega 30 hópuppsagnir á árinu

Á árinu 2010 hafa Vinnumálastofnun alls borist 29 tilkynningar um hópuppsagnir, þar sem sagt hefur verið upp samtals 742 manns.

Áætlaðar afskriftir lána koma við kaunin á ÍLS

Þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa boðað til í skuldavanda heimilanna munu hafa áhrif á áætlaðar afskriftir og þar með eiginfjárþörf Íbúðalánasjóðs (ÍLS). Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum til Kauphallarinnar.

Sölutregða á íslenskum fiski í Evrópu

Nokkuð hefur dregið úr sölu á íslenskum fiskafurðum á Evrópumarkaði að undanförnu. Þetta er öfugt við þróunina á undanförnum árum því fisksalan hefur yfirleitt glæðst á þessum mörkuðum í aðdraganda jólanna.

Sparaði 600 milljónir með ókeypis tölvuforriti

Finnska dómsmálaráðuneytið náði að spara sem svarar til rúmlega 600 milljóna kr. með því að skipta yfir í ókeypis tölvuforrit sem kallast OpenOffice.org og heldur utan um skrifstofuhald.

Icesave-frétt vekur athygli

Frétt Stöðvar 2 um að Icesave samningur væri hugsanlega í sjónmáli, og að drög að honum hefðu verið kynnt stjórnarandstöðunni, hefur vakið athygli víða um heiminn.

Mikilvægt að Icesave samningar takist fljótlega

Forstjóri Eftirlitsstofnunar EFTA segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki óskað eftir frekari frestun á að skila svari sínu vegna Icesave. Hann segir mikilvægt að samningar takist við Breta og Hollendinga fljótlega. Ef stjórnvöld nái hins vegar að sannfæra stofnunina um að mat hennar á greiðsluskyldu ríkisins sé rangt verði málið látið niður falla.

Segir Búðarhálsvirkjun á áætlun

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir vinnu við Búðarhálsvirkjun á áætlun. „Við gerum ráð fyrir að öðru hvoru megin við áramótin þá ljúki fjármögunun. Það hefur alltaf verið sagt og við bindum vonir við að það standi. Verkefnið fer ekki á fulla ferð fyrr en að langtímafjármögnun er tryggð.“

Búðarháls í hægagangi

Vinnu við Búðarhálsvirkjun er haldið í lágmarki með aðeins sextán starfsmönnum. Framkvæmdir komast ekki á fullan skrið fyrr en Landsvirkjun tekst að afla lánsfjár í útlöndum.

Wikileaks: Landsbankamenn vildu hjálp frá Bandaríkjunum

Tveir stjórnendur úr Landsbankanum funduðu með fulltrúum af hagsviði sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi í aðdragandann að bankahruninu til að benda á að íslensk yfirvöld væru að grípa til rangra ráðstafana vegna efnahagskreppunnar. Þeir óskuðu eftir því að stjórnvöld í Bandaríkjunum veittu íslenskum stjórnvöldum leiðsögn í því efnahagslega fárviðri sem framundan var. Þetta kemur fram í skjölum bandaríska sendiráðsins sem Wikileaks hefur lekið út.

Ólafur Ragnar: Þurfum ekki erlent fjármagn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í viðtali við fjármálaritið The Banker að Íslendingar þurfi ekki á erlendri fjárfestingu að halda. Of mikið innstreymi erlends fjármagns hafi einkennt efnahagslífið á Íslandi fyrir bankahrun og orðið til þess að hagkerfið ofhitnaði og hrundi.

Lánuðu 800 milljarða til félaga sem voru ekki í rekstri

Kaupþing lánaði 800 milljarða til félaga um allan heim sem voru ekki í neinum rekstri. Talið er að einungis verði hægt að innheimta lítinn hluta þessara lána. Lánveitingarnar eru til rannsóknar hjá þrotabúi bankans og hluti þeirra einnig hjá sérstökum saksóknara.

Bjóða endurreikning húsnæðislána

Íslandsbanki hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum sem skulda húnæðislán í erlendum gjaldmiðlum, með veði í eigin íbúðarhúsnæði, að endurreikna þau í samræmi við ákvæði frumvarps til breytinga á vaxtalögum. Viðskiptaráðherra lagði frumvarpið fram á Alþingi eftir gengisdóm Hæstaréttar.

Erlend skuldastaða þjóðarbúsins ekki betri í áratugi

Erlend skuldastaða þjóðarbúsins hefur ekki verið betri í tvo áratugi mæld sem hlutfall af landsframleiðslu. Hér er átt við stöðuna án erlends eignarhalds á bönkunum og þeirrar Icesave-skuldar sem kann að falla á ríkissjóð.

Bandaríkjamenn björguðu Danske Bank frá falli

Danske Bank, stærsti banki Danmerkur, hefði fallið haustið 2008 ef ekki hefði komið til umfangsmikil fjárhagsaðstoð frá bandarískum stjórnvöldum. Á fimm dramatískum dögum þetta haust fékk Danske Bank rúmlega 600 milljarða kr. að láni frá bandaríska seðlabankanum.

Már: Íslensk stjórnvöld gerðu rétt í að ábyrgjast ekki bankaskuldir

Már Guðmundsson seðlabankastjóri telur að það hafi verið rétt ákvörðun hjá íslenskum stjórnvöldum haustið 2008 að ábyrgjast ekki skuldir bankanna gagnvart kröfuhöfum þegar bankarnir féllu. Raunar gátu íslensk stjórnvöld ekki stutt við bakið á kröfuhöfunum sökum þess hve miklar skuldir bankanna voru.

Hriplek vörn hjá endurskoðendum

Endurskoðendur geta krafist allra þeirra gagna sem þeir telja sig þurfa á að halda við endurskoðun uppgjöra. Þeir eiga ekki að sætta sig við framlögð gögn viðskiptavina sinna.

Tæplega 19 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,5% í dag í 18,6 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,6% í 4,8 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 9,5 ma. viðskiptum.

IFS greining spáir myndarlegri vaxtalækkun

Stýrivaxtafundur Seðlabanka Íslands verður haldinn næsta miðvikudag, 8. desember. IFS Greining gerir ráð fyrir 75 punkta lækkun stýrivaxta (veðlánavaxta) sem stæðu þá í 4,75%. Gangi spáin eftir verða vextir á viðskiptareikningum lánastofnana 3,25% og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,5%.

Umtalsverð veltuaukning á íbúðamarkaðinum í haust

Veltan á íbúðamarkaði hefur aukist umtalsvert undanfarið. Gerðir voru 281 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í nóvembermánuði samanborið við 207 samninga í sama mánuði í fyrra og hefur veltan því aukist um 36% milli ára.

Lög hindruðu lífeyrissjóði í upprunalegum tillögum

Lög heimila lífeyrissjóðum alls ekki að samþykkja upphaflegar hugmyndir stjórnvalda um að fella niður skuldir sjóðfélaga, að gefa með öðrum orðum eftir innheimtanlegar kröfur að óbreyttum lögum.

Mannvit gerir samning í Serbíu

Verkfræðistofan Mannvit hefur gert samning um að kortleggja möguleika á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa í Serbíu. Mannvit er hluti af hóp fyrirtækja, sem leiddur er af spænska ráðgjafarfyrirtækinu Eptisa, sem mun vinna verkefnið fyrir námu- og orkumálaráðuneyti Serbíu.

Rekstur Garðabæjar skili 165 milljóna afgangi næsta ár

Álögur á íbúa í Garðabæ verða áfram lágar á árinu 2011, skv. frumvarpi að fjárhagsáætlun bæjarins sem lagt var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær. Útsvar verður óbreytt, eða 12,46%, sem er með því lægsta sem gerist hjá íslenskum sveitarfélögum. Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 165 milljónir kr.

Eimskip opnar nýja vefsíðu og þjónstuvef

Eimskip opnar í dag nýja vefsíðu og nýjan þjónustuvef fyrir viðskiptavini félagsins sem veitir þeim aðgang að öllum starfsstöðvum félagsins um heim allan.

Vilja opna Sparibanka

Til stendur að opna nýjan banka hér á landi en það er Ingólfur H. Ingólfsson sem fer fyrir hópi fimmtán fjárfesta sem koma að stofnun bankans. Samkvæmt frétt Ríkissjónvarpsins klukkan tíu í kvöld þá var hlutafélag stofnað um bankann í síðasta mánuði.

Straumur fékk milljarða en Landsbanki sat eftir

Átján milljarða króna lán sem Straumur fékk frá Landsbankanum sex dögum fyrir hrun og bankastjórar bankans eru látnir bera ábyrgð á var hluti af stærra samkomulagi um sölu á eignum sem Straumur virti ekki. Bankinn sat því uppi með eignirnar en Straumur fékk milljarðana.

Hreinar erlendar skuldir eru 24% af landsframleiðslu

Ef frá eru taldir bankar í slitameðferð námu erlendar eignir íslenska þjóðarbúsins 2.580 milljörðum kr. og skuldir 2.947 milljörðum kr. Því var hrein staða þjóðarbúsins hvað erlendar eignir varðar neikvæð um 368 milljarða kr. eða sem nemur 24% af landsframleiðslu.

Tæplega 24 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 23,5 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 7,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 12,6 ma. viðskiptum.

Skipti greiða lánadrottnum 19 milljarða

Skipti hf. hafa í öllum meginatriðum lokið samningum við lánardrottna félagsins og er vinna við skjalagerð á lokastigi. Í samkomulaginu felst meðal annars að Skipti greiða niður alls um 19 milljarða króna af lánum félagsins.

Sjá næstu 50 fréttir