Búðarháls í hægagangi 4. desember 2010 19:38
Vinnu við Búðarhálsvirkjun er haldið í lágmarki með aðeins sextán starfsmönnum. Framkvæmdir komast ekki á fullan skrið fyrr en Landsvirkjun tekst að afla lánsfjár í útlöndum. Vinnubúðir eru risnar við Sultartangalón, malbikaður vegur kominn alla leið og meira segja ljósastaurar við heimreiðina. Mánuður er liðinn frá því starfsmenn Ístaks mættu með fyrstu tækin á svæðið og í byrjun vikunnar hófu þeir sprengingar til að víkka út mikla hvelfingu sem gerð var fyrir átta árum, sem verður inntaksþró fyrir stöðvarhúsið. Verkið fer rólega af stað. Benedikt Benediktsson, verkstjóri hjá Ístaki, segir að þeir séu nú sextán talsins, með starfsmanni mötuneytis. Þetta eru fyrstu virkjanaframkvæmdir á hálendinu síðan Kárahnjúkar kláruðust. Þar var meirihlutinn útlendingar en hér sjáum við bara Íslendinga. Benedikt segir að eingöngu Íslendingar séu þarna að störfum núna og kveðst vona að svo verði áfram, enda veiti ekki af að ganga á listana yfir þá sem eru á atvinnuleysisbótum. En færri komast að en vilja. Margir sækja um og þeir sem eru ráðnir hafa margir mikla reynslu af svona vinnu. Meðal þeirra er sprengistjórinn, Þórir Sverrisson. Hann byrjaði 1983 á hálendinu og vann í Kvíslaveitum, Hrauneyjum og Sultartanga, einkum við boranir og sprengingar. Bergið við Búðarháls segir hann lélegt og það þurfi ekki mikið dínamit til að sprengja það. Ístak hefur aðeins heimild til að vinna takmörkuð undirbúningsverk fyrir allt að 500 milljónir króna, eða sem svarar 5% af um 10 milljarða verksamningi. Þannig hefst smíði stöðvarhúss ekki fyrr en Landsvirkjun hefur tekist að tryggja sér lánsfjármögnun. Fyrr komast framkvæmdir við Búðarháls ekki á fulla ferð. Forstjóri Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, sagði á haustfundi fyrirtækisins, að Icesave-deilan væri meðal þess sem truflaði fjármögnun. Þá hefur Vísir áður greint frá því að Fjárfestingarbanki Evrópu hafi ítrekað frestað því að afgreiða lán til Landsvirkjunar, með óformlegum skilaboðum um að frestunin tengist Icesave-deilunni.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Sjá meira