Viðskipti innlent

Vildu ráðgjöf frá Bandaríkjamönnum við uppbyggingu bankanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gylfi Magnússon vildi ráðgjöf frá Bandaríkjunum við að byggja upp bankana. Mynd/ GVA.
Gylfi Magnússon vildi ráðgjöf frá Bandaríkjunum við að byggja upp bankana. Mynd/ GVA.
Nokkrir háttsettir menn innan íslenska stjórnkerfisins höfðu áhuga á að fara til Bandaríkjanna snemma á þessu ári til þess að ræða við þarlenda kollega sína.

Í skjölum bandaríska sendiráðsins frá nóvember í fyrra, sem WikiLeaks hefur opinberað, kemur fram að menn töldu ólíklegt að það gæti orðið af heimsókn fyrir janúar þar sem stjórnvöld skorti pening til þess að fjármagna ferðina og að verið var að leggja lokahönd á fjárlagafrumvarp fyrir árið 2010. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Steingrímur J. Sigfússon væru hins vegar líklegir til að láta sjá sig í janúar eða febrúar.

Í skjalinu kemur fram að Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi lýst yfir áhuga á því að ræða efnahags- og skuldavanda þjóðarinnar bæði við stjórnvöld í Bandaríkjunum og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Gylfi Magnússon sagði staðgengli sendiherrans að hann vildi ræða við sérfræðinga í Bandaríkjunum um endurskipulagningu bankakerfisins og treysta meira á Bandaríkin og þangað sem hún er að fara.




Tengdar fréttir

Wikileaks: Veikindi Ingibjargar og undarlegt sinnuleysi stjórnvalda

Bandaríkjamenn töldu ljóst í október 2008 að veikindi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur þáverandi utanríkisráðherra væru alvarlegri en gefið væri upp opinberlega og að óljóst væri hve stórt hlutverk hún gæti leikið í baráttunni við efnahagshrunið. Þetta kemur fram í skeyti frá Carol Van Voorst, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna hér á landi. Þá segir að veikindi Ingibjargar og Grétars Márs Sigurðssonar, þáverandi ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu hafi haft mikil áhrif á viðbrögð íslenskra stjórnvalda í hruninu sem hún segir hafa einkennst af „undarlegu sinnuleysi.“

Wikileaks: Telja Kína stunda iðnnjósnir hér

Kínverjar eru taldir stunda iðnnjósnir, sem beinast að rannsóknum fyrirtækja á sviði erfðagreiningar og læknisfræði hér á landi. Þetta kemur fram í skýrslum bandaríska sendiráðsins í Reykjavík til utanríkisráðuneytisins í Washington.

Wikileaks: Taldi Davíð ógna pólitískri framtíð sinni

Bjarni Benediktsson taldi Davíð Oddsson ógna frama hans innan Sjálfstæðisflokksins og vera stóra hindrun í vegi þess að Íslendingar sæktu um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er mat embættismanna í bandaríska sendiráðinu.

Wikileaks: Vildu senda Guantanamo fanga til Íslands

Snemma árs 2007, meðan George W. Bush var enn forseti Bandaríkjanna, fóru bandarísk stjórnvöld þess á leit við Íslendinga að taka við föngum frá Guantanamo á Kúbu. Þetta kemur fram í leyniskjölum bandarísku utanríkisþjónustunnar, sem Fréttablaðið hefur undir höndum.

Wikileaks: Viðurkenndi sig ekki sem vanda

Carol Van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, taldi Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóra, ekki skilja hversu mikill vandi hann sjálfur hafi verið í endurreisnarstarfinu eftir bankahrunið.

Wikileaks: Bandaríkin furðuðu sig á samskiptaleysi Íslendinga

Tal um fjárhagsaðstoð Rússa við Ísland í bankahruninu í októberbyrjun 2008 var tilefni vangaveltna í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi um hvort Bandaríkjastjórn þyrfti að hafa hér frekari hönd í bagga. Carol van Voorst, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, taldi ekki fullreynt af hálfu íslenskra stjórnvalda hvort hjálp væri í boði frá Bandaríkjunum.

Wikileaks: Jóhanna hótaði að segja af sér

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði nokkrum þingmönnum Vinstri grænna í júlí í fyrra að hún væri að missa þolinmæðina og að hún myndi segja af sér innan fárra daga ef þeir styddu ekki samkomulag sem náðst hafði í Icesave-málinu.

Wikileaks: Björn vildi einkavæða hluta af Gæslunni

Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, vildi einkavæða hluta af Landhelgisgæslunni í byrjun árs 2006. Frá þessu greindi Stefán Eiríksson, þáverandi deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Það hefði gefist vel að einkavæða hluta af löggæslunni, eins og Neyðarlínuna 112.

Wikileaks: Steingrímur kom bandaríska sendiráðinu á óvart

„Sumum til undrunar er Sigfússon að sanna sig sem alvarlegur og ábyrgur fjármálaráðherra," segir í skýrslu Neils Klopfenstein sendiráðunauts í bandaríska sendiráðinu 4. júní 2009. Daginn áður átti Steingrímur J. Sigfússon fund með Klopfenstein og ræddi stöðu ýmissa lykilmála á Íslandi.

Wikileaks: Georg olli Birni vonbrigðum

Stefán Eiríksson fullyrðir snemma árs að Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hafi valdið Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra vonbrigðum, þótt Björn hafi persónulega valið Georg í embættið árið 2005.

Wikileaks: Sáttatónn Geirs pirraði Björn

Þann 26. maí 2006, hálfum öðrum mánuði eftir að Bandaríkjamenn tilkynntu um brottför hersins, skrifar Carol Van Voorst sendiherra stjórnvöldum í Washington greinargerð um þá kenningu Vals Ingimundarsonar sagnfræðings, að væri Davíð Oddsson enn forsætisráðherra myndu Bandaríkjamenn ekki hafa kallað herinn heim.

Wikileaks: Skilafrestur útilokar afgreiðslu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagðist í september árið 2009 telja að Evrópusambandið hafi vísvitandi gefið Íslendingum frest til þess að skila inn svörum við spurningalista þess þann 16. nóvember svo öruggt verði að leiðtogaráð sambandsins geti ekki afgreitt aðildarumsókn Íslands á fundi sínum í desember.

Wikileaks: Taldi Íslendinga fáfróða

Í bandaríska sendiráðinu var grannt fylgst með viðbrögðum Íslendinga við brotthvarfi Bandaríkjahers frá Keflavíkurflugvelli.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×