Fleiri fréttir

Yfir 1.100 gjaldþrot í Bretlandi á hverjum degi

Yfir 1.100 fyrirtæki urðu gjaldþrota á hverjum virkum degi ársins í Bretlandi í fyrra. Samtals urðu 279.000 fyrirtæki gjaldþrota á árinu og er þetta mesti fjöldi gjaldþrota hjá fyrirtækjum síðan breska hagstofan fór að taka saman tölur um gjaldþrot fyrir áratug síðan.

Samherji greiðir 260 þúsund í launauppbót

Samherji hf. hefur ákveðið að greiða starfsmönnum í landi 260 þúsund króna launauppbót nú í desember, til viðbótar umsaminni 46 þúsund króna desemberuppbót.

Áætla rekstrarafgang hjá Fljótdalshéraði á næsta ári

Samkvæmt fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2011 er gert ráð fyrir 19,5 milljóna kr. rekstarafgangi í samstæðureikningi A- og B hluta sveitarfélagsins. Þar af er gert ráð fyrir um 0,5 milljón kr. afgangi í A-hluta sem er hinn eiginlegi sveitarsjóður en það eru Aðalsjóður og Eignasjóður.

Sonur Abramovich vill kaupa FCK liðið í Kaupmannahöfn

Ekstra Bladet segir frá því að 17 ára gamall Rússi vilji festa kaup á fótboltaliðinu FCK í Kaupmannahöfn. Unglingurinn heitir Arkady Abramovich og er elsti sonur milljarðamæringsins Roman Abramovich eigenda enska fótboltaliðsins Chelsea.

Hagnaður Íslandsbanka 13,2 milljarðar

Íslandsbanki skilaði 13,2 milljarða króna hagnaði eftir skatta á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins. Eiginfjárhlutfall bankans var 22,6% sem er talsvert hærra en það 16% lágmark sem FME hefur sett bankanum. Arðsemi eigin fjár var 17,6%.

Íslenskt fyrirtæki vill selja þúsund rafjeppa hér á landi

Íslenska þróunarfélagið North­ern Lights Energy (NLE) hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við bandaríska fyrirtækið AMP Electric Vehicles um sölu á eitt þúsund rafjeppum hér á landi á næstu fimm árum. Verkefnið er hluti af þjóðarátaki um rafbílavæðingu Íslands sem NLE stendur að.

Óhagstæð skattalög stöðva gagnaverin

Gera þarf miklar breytingar á frumvarpi fjármálaráðherra til að það nái því markmiði að gera samkeppnisstöðu gagnavera hér á landi sambærilega við gagnaver í ríkjum Evrópusambandsins, segir Friðrik Þór Snorrason, formaður Samtaka íslenskra gagnaversfyrirtækja.

Sala Hyundai jókst um 45 prósent

Allir helstu bílaframleiðendur, að Toyota undanskildum, hafa greint frá mikilli söluaukningu nýrra bíla í nýliðnum mánuði. Þróunin er sögð til marks um hægan bata bílaiðnaðarins vestra.

Endurskoðendur hafna alfarið ásökunum Landsbankans

PricewaterhouseCoopers (PwC) hafnar alfarið ásökunum slitastjórnar og skilanefndar Landsbankans um skaðabótaskylda háttsemi fyrirtækisins vegna endurskoðunar á ársreikningi Landsbankans 2007 og könnunar á árshlutareikningum bankans á árinu 2008.

Skuldabréf Björgólfs til sérstaks saksóknara

Embætti sérstaks saksóknara hefur nú til rannsóknar kaup fjárfestingarsjóðs Fyrirtækjabréfa Landsbankans á 400 milljóna króna skuldabréfi útgefnu af Björgólfi Guðmundssyni í byrjun árs 2005.

Misstum málverkin og sitjum uppi með tvöfalt söluverð bankanna

Það voru ekki bara málverkin sem fóru fyrir lítið við einkavæðingu Landsbankans, segir fjármálaráðherra. Ríkið situr uppi með meira en tvöfalt hærri skuld en það fékk fyrir söluna á helmingshlut í bankanum á sínum tíma. Tugir milljarða vegna ríkisábyrgða falla nú á ríkið.

Sölunni á Vestia lokið

Gengið hefur verið frá kaupum Framtakssjóðs Íslands á eignarhaldsfélaginu Vestia af Landsbankanum með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Tilkynnt var um fyrirhuguð kaup þann 20. ágúst síðastliðinn með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar sem nú er lokið.

Um 9,5 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,7% í dag í 9,5 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,9% í 5,1 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 4,4 ma. viðskiptum.

Telur ekki grundvöll fyrir málsókn gegn sér

Halldór Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbanka Íslands, segir að Landsbankinn hafi keypt ábyrgðartryggingu í Bretlandi fyrir starfsfólk sitt. Slitastjórn bankans hafi tilkynnt hlutaðeigandi tryggingafélagi að hún telji að kröfurnar falli undir trygginguna. Þetta kemur fram í orðsendingu sem Friðjón Örn Friðjónsson, lögmaður Halldórs sendi fjölmiðlum.

Mikil velta með skuldabréf í nóvembermánuði

Heildarviðskipti með skuldabréf í Kauphöllinni námu 328 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 14,9 milljarða kr. veltu á dag samanborið við 11,8 milljarða kr. veltu á dag í október mánuði. Er þetta næst veltumesti mánuðurinn á árinu.

Danskur ráðherra fékk 14 milljónir í styrki frá ESB

Henrik Höegh landbúnaðarráðherra Danmerkur þáði rúmlega 700.000 danskar kr. eða rúmlega 14 milljónir kr. í landbúnaðarstyrki frá ESB á síðasta ári. Hann hefur einnig sótt um svipaða styrki í ár en hann rekur stórt bú á Lollandi.

Eina vottaða dagblaðaprentsmiðjan

Ísafoldarprentsmiðja hefur fengið vottun Svansins, opinbers umhverfismerkis Norðurlandanna. Prentsmiðjan er fyrsta dagblaðaprentsmiðjan sem fær Svansvottun hér á landi. Fréttablaðið er prentað í Ísafoldarprentsmiðju.

Greining: Vextir lækka um 0,75 prósentustig í desember

Greining Arion banka spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 0,75 prósentustig þann 8.desember næstkomandi. Gangi spáin eftir verða vextir á viðskiptareikningum innlánastofnana 3,25%, hámarksvextir 28 daga innistæðubréfa 4,5% og veðlánavextir 4,75%.

Íslandsbanki gerir samstarfssamning við DnB Nor

Eignastýring Íslandsbanka hefur gert samstarfssamning við DnB NOR Asset Management en fyrirtækið er dótturfyrirtæki norska bankans DnB NOR. Samstarfið nær til dreifingar á sjóðum og þjónustu til allra viðskiptavina, þ.e. fagfjárfesta, einstaklinga og fyrirtækja.

Leiðandi í netmarkaðsmálum

Íslenska netmarkaðsfyrirtækið Nordic Emarketing hefur skapað sér nafn víða um heim undanfarin ár þar sem það hefur verið leiðandi í markaðssetningu á vefnum.

Kröfuhafi hafnar tillögu Reykjaneshafnar

Einn af 20 kröfuhöfum Reykjaneshafnar hefur hafnað tillögu stjórnenda hafnarinnar um frestun á greiðslum og afborgunum af lánum fram til maí á næsta ári. Fundað verður um málið þann 20. desember n.k.

Spænsk stjórnvöld ætla að selja hlut í El Gordo

Spænskum stjórnvöldum er umhugað um að sanna fyrir fjármálamörkuðum að landið sé ekki í sömu stöðu og Írland. Meðal annars eru þau tilbúin til að selja allt að 30% af eignarhlutum sínum í ríkisreknum lottóum, þar á meðal El Gordo, eða Sá Feiti, sem er stærsta lottó í heimi.

Verðbólguvæntingar stjórnenda lækka nokkuð

Verðbólguvæntingar stjórnenda hjá stærstu fyrirtækjum landsins hafa lækkað nokkuð undanfarið samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Seðlabankann í september síðastliðnum.

Slitastjórn Landsbankans krefur stjórnendur um 37 milljarða

Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjórar Landsbankans, eru hvor fyrir sig krafðir um 37 milljarða króna en slitastjórn Landsbankans hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur þeim vegna meintrar vanrækslu. Þá er Elín Sigfúsdóttir krafin um 18 milljarða króna.

Vinna að bættri nýtingu fjármuna

Birtingahúsið fagnar nú um þessar mundir tíu ára afmæli sínu, en á þessum tíma hefur fyrirtækið unnið brautryðjendastarf í markaðsráðgjöf hér á landi. Helstu verkefni Birtingahússins, að sögn Huga Sævarssonar framkvæmdastjóra, eru ráðgjöf til fyrirtækja um hvernig megi hagnýta sem best fé til auglýsingabirtinga.

Eiginfjárhlutfall ÍLS skiptir ekki höfuðmáli

Ekki skiptir höfuðmáli hvert eiginfjárhlutfall Íbúðalánasjóðs (ÍLS) er á hverjum tíma svo lengi sem sjóðurinn getur staðið undir afborgunum af íbúðabréfum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.

Starfsmenn BMW staðnir að stórfelldum þjófnaði

Átján starfsmenn þýska bílarisans BMW hafa verið staðnir að stórfelldum þjófnaði á ýmsum bílahlutum úr verksmiðju BMW í Þýskalandi. Þjófnaðurinn var kerfisbundinn og hafði staðið yfir árum saman.

Verulega dregur úr kortanotkun í Bandaríkjunum

Verulega hefur dregið úr notkun greiðslukorta meðal almennings í Bandaríkjunum í ár miðað við árið í fyrra. Í ár eru 78 milljónir Bandaríkjamanna án greiðslukorta en í fyrra var þessi fjöldi 70 milljón manns.

Hunter skoðar tilboð

Skoski auðkýfingurinn Sir Tom Hunter er sagður íhuga tilboð í bresku skókeðjuna Office upp á 150 milljónir punda, jafnvirði um átján milljarða króna. Hunter keypti verslunina fyrir sjö árum fyrir sextán milljónir punda.

Jólagjafir með hagtölugleraugum

Jólagjafahugmyndir Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst hafa í gegnum tíðina elt hagsveiflur. Jólagjöfin í ár er íslensk lopapeysa, sem er í takt við hrun efnahagslífsins, fall bankanna, hrun krónunnar og samdrátt kaupmáttar, en allt þetta hefur valdið því að neytendur leita síður út fyrir landsteinana eftir gjöfum.

Atvinnulausir fá 45 þúsund í desemberuppbót

Atvinnulausir sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá eingreiðslu í desember samkvæmt tillögu Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti í gærmorgun. Full uppbót er 44.857 krónur en greiðsla hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta árið 2010.

Einkunnirnar aldrei verið lægri

Lengst af hafa þrjú matsfyrirtæki metið lánshæfi ríkissjóðs Íslands, en það eru fyrirtækin Moody’s Investors Service, Fitch Ratings og Standard & Poor’s.

Cartier armband selt fyrir 800 milljónir hjá Sotheby´s

Cartier armband í líki hlébarða var selt fyrir 4,5 milljónir punda, eða rúmlega 800 milljónir kr., á uppboði hjá Sotheby´s í vikunni. Er þetta mesta verð sem greitt hefur verið fyrir armband í sögunni.

Dæmalaus erfðasynd frá einkavæðingu bankanna

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að ríkisábyrgðir þær sem meirihluti fjárlaganefndar leggur til að teknar verði yfir frá gömlu bönkunum sé dæmalaus erfðasynd frá einkavæðingu bankanna á sínum tíma.

Allt undir við skoðun á sparisjóðunum

Sparisjóðirnir í landinu reka um þriðjung útibúa bankastofnana í landinu þrátt fyrir að hlutdeild þeirra í útlánum og eignarleigusamningum fjármálakerfisins sé aðeins um fjögur prósent.

Tíu milljarðar greiddir án undirritunar samninga

Skiptastjóri þrotabús Fons hefur hafnað tveimur kröfum slitastjórnar Glitnis í búið, sem nema samtals 10,8 milljörðum króna. Kröfurnar eru vegna framvirkra samninga um hlutabréfa- og gjaldeyrisviðskipti sem skiptastjórinn telur að séu ekki undirritaðir með fullnægjandi hætti.

Hagkaup framvegis í eintölu

Eftir talsvert hringl í gegnum fimmtíu ára sögu Hagkaups var skarið tekið af í fyrra um rétta notkun á nafni fyrirtækisins. „Við erum í eintölu," segir Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri.

Sjá næstu 50 fréttir