Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stund hægfara stýrivaxtalækkunar runnin upp Eftir tiltölulega rólegt sumar – það fyrsta eftir hrunið fyrir ári – hrökk íslenskt efnahagslíf loks í annan gír í síðustu viku. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn samþykkti fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun landsins og Seðlabankinn steig fyrstu skrefin í átt til afnáms gjaldeyrishafta um helgina. Þá bíður ein stærsta skuldbinding þjóðarbúsins, Ice-save-málið, við þröskuld Alþingis. 4.11.2009 03:00
Efna til samkeppni í tölvuleikjagerð Samtök tölvuleikjaframleiðenda á Íslandi, IGI, efna til samkeppni í tölvuleikjagerð nú í vikunni. Keppninni verður hleypt af stokkunum fimmtudaginn 5. nóvember en keppendur hafa frest þar til í mars á næsta ári til að skila inn sínu innleggi. 4.11.2009 02:30
Tekur hálfan dag Endurskoðunarfyrirtækið KPMG stendur fyrir ráðstefnu um endurreisn landsins á morgun. Yfirskriftin er „Endurskipulagning á erfiðum tímum“ og veitir sannarlega ekki af ráðum um slíkt athæfi. Fjöldi fyrirlesara heldur erindi; Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Sigurður Jónsson, forstjóri KPMG, og Craig Masters, sérfræðingur um endurskipulagningu fyrirtækja, svo einhverjir séu nefndir. 4.11.2009 02:00
Endurskoðandi Madoffs játar sekt David Friehling, sem um árabil hefur verið endurskoðandi bandaríska fjársvikarans Bernards Madoff, játaði í gær sekt sína fyrir dómara alríkisdómstóls á Manhattan. Dómarinn tók sér þó tíma til að ákveða hvort rétt væri að fallast á játninguna. Saksóknarar í málinu sögðust hafa reiknað með því að hann myndi játa sig sekan. Friehling er sakaður um verðbréfasvik og fleiri brot, sem samtals varða 108 ára fangelsi. Reynist sakborningurinn samvinnuþýður við réttarhöldin má þó búast við að refsingin verði mild. Saksóknararnir telja fullvíst að Friehling hafi vitað af Ponzi-svikamyllu Madoffs, sem talin er sú umfangsmesta í sögunni, enda hafði Friehling grandskoðað bókhaldið. 4.11.2009 01:30
Úr fortíðinni Þegar stórveldið SÍS vildi Útvegsbankann Um miðjan ágúst árið 1987 gerði Sambandið (SÍS) og þrjú félög þess, Samvinnusjóður Íslands, Jötunn hf. og Dráttarvélar hf. tilboð í 67 prósenta hlut Útvegsbankans. Til stóð að sameina bankann Samvinnubankanum, sem þá var í eigu SÍS, en það teygði þá anga sína vítt og breitt um samfélagið allt. Málið varð að pólitísku deilumáli og varð ekkert úr kaupunum. 4.11.2009 01:00
AGS: 620 milljarða reikningur verði neyðarlögum hnekkt Í skýrslu AGS er fjallað um ýmsa áhættuþætti í íslensku efnahagslífi. Meðal annars er sagt að hætta sé á 620 milljarða kr. aukareikningi á íslenska ríkið ef neyðarlögunum verði hnekkt fyrir dómi. 3.11.2009 14:13
Hagnaður Marel nam 165 milljónum á 3. ársfjórðungi Hagnaður Marel eftir skatta var 0,9 milljónir evra eða 165 milljónir kr. á þriðja ársfjórðungi ársins. Til samanburðar var hagnaðurinn fimmfalt hærri á sama tímabili í fyrra eða 4,5 milljónir evra. 3.11.2009 18:17
Bakkavör lækkaði í dag Hlutabréf í Össurri hækkuðu um 1,94% í dag og hlutabréf í Marel hækkuðu um 1,62%. Bréf í Bakkavör Group lækkuðu hins vegar um 4,17$% og bréf í Century Aluminum Company, móðurfélagi Norðuráls, lækkuðu um 1,47%. 3.11.2009 17:13
Lítl breyting á GBI GBI vísitalan stóð nánast í stað í dag, lækkaði um 0,16%. Heildarvelta skudabréfa var 12,76 milljarðar króna. Heildarvelta verðtryggðra íbúðabréfa var 4,88 milljarðar og heildarvelta óverðtryggðra ríkisbréfa var 7,88 milljarðar króna. 3.11.2009 16:51
Buffett fer í stærstu yfirtökuna á ferli sínum Ofurfjárfestirinn Warren Buffett hefur ákveðið að fara í stærstu yfirtökuna á ferli sínum. Fjárfestingafélag hans. Berkshire Hathaway, hefur ákveðið að kaupa 77% hlut í járnbrautarfélaginu Burlington Northern Santa Fe Corp. 3.11.2009 16:04
Efla semur við rafveitu í Króatíu um ráðgjöf Verkfræðistofan Efla hefur gert samstarfssamning við rafveitufyrirtækið HEP-ESCO um ráðgjöf á sviði jarðhitanýtingar í Króatíu. Verkefnið felur í sér nýtingu gamallar tilraunaholu, sem gefur af sér 1,5MWth af heitu vatni, til hitunar á skólahúsnæði í borginni Krževci. 3.11.2009 15:16
AGS: Skuldastaða Íslands áhyggjuefni Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn býst við því að erlendar skuldir íslenska þjóðarbúsins nái hámarki í 310% af landsframleiðslu á þessu ári. Í skýrslunni segir: „Miklar skuldir hins opinbera og erlendar skuldir Íslands eru áhyggjuefni, en samkvæmt greiningu starfsmanna sjóðsins munu skuldirnar lækka ef efnahagsáætluninni er fylgt". 3.11.2009 14:16
AGS: Innistæðuskuldbindingar 325 milljörðum minni en áður Erlendar skuldbindingar vegna innistæðna í íslensku bönkunum í útlöndum eru nú 2,6 milljörðum dollara, eða um 325 milljörðum kr., minni en áður var talið. Þetta kemur fram í vinnuskýrslu starfshóps um málefni Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS). 3.11.2009 14:07
AGS: Endurhanna og afskrifa þarf 66% af fyrirtækjalánum Samkvæmt innri endurskoðun bankanna þriggja þarf að endurhanna eða afskrifa um 66% af fyrirtækjalánunum á bókum þeirra. Þetta er eitt af því sem fram kemur í vinnuskýrslu starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um málefni Íslands hjá sjóðnum. 3.11.2009 14:00
AGS: Stjórnvöld tilbúin að herða peningastefnuna Í minnisblaði íslenskra stjórnvalda til framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur fram að stjórnvöld segjast munu halda áfram að fylgjast með gengisstöðugleika og séu tilbúin til að herða enn frekar á peningastefnunni ef þörf krefur. 3.11.2009 14:00
AGS: Skattahækkanir auka verðbólguna Vegna skattahækkana og veikingar krónunnar á þessu ári verður verðbólga líklega hærri á þessu ári en áður var gert ráð fyrir, eða 7%. 3.11.2009 14:00
AGS: Seðlabankinn gagnrýndur fyrir of hraða vaxtalækkun Í vinnuskýrslu starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur fram gagnrýni á Seðlabankann fyrir að hafa farið of hratt í stýrivaxtalækkanir á árinu. Stýrivextirnir hafa lækkað um 6 prósentustig frá áramótum. 3.11.2009 14:00
Engin ákvörðun hefur verið tekin um eignarhald 1998 Engin ákvörðun hefur verið tekin um framtíðareignarhald 1998 ehf, segir í tilkynningu sem Nýi Kaupþing banki hefur sent frá sér. Tilkynningin er send vegna fjölmiðlaumfjöllunar um móðurfélag Haga sem rekur meðal annars Bónus og Hagkaup. 3.11.2009 13:54
Vísbendingar um jákvæðan þjónustujöfnuð Þróun greiðslukortaveltu bendir til að talsverður afgangur muni reynast af þjónustujöfnuði á þriðja fjórðungi þessa árs. Sá afgangur gæti orðið sá mesti frá því að Seðlabankinn hóf að taka saman ársfjórðungslegar greiðslujafnaðartölur árið 1990. Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. 3.11.2009 13:01
Kreppan klippir fimmtung af kaupmætti landsmanna Kreppan mun klippa fimmtung af kaupmætti ráðstöfunartekna landsmanna fram til ársins 2011 ef spár ganga eftir. Reiknað er með að kaupmátturinn verði 21% lægri árið 2011 en hann var árið 2007. Mun kaupmátturinn þá verða hinn sami og hann var árið 2003. 3.11.2009 11:16
Enn bætir Icelandair met sitt í stundvísi Starfsfólk Icelandair hefur á þessu ári náð að auka mjög stundvísi félagsins og náði í september besta árangri sem félagið hefur náð í mánuðinum, en þá voru 94,5% fluga félagsins á réttum tíma, Það sem af er árinu er stundvísin 93,0%, sem er mun betri árangur en áður hefur náðst hjá Icelandair. 3.11.2009 11:10
Elvis ekki lengur tekjuhæstur látinna einstaklinga Elvis Persley er ekki lengur tekjuhæstur látinna einstaklinga í heiminum. Tískukóngurinn Yves Saint Laurent hefur velt honum úr sessi. Raunar er Elvis dottinn niður í fjórða sæti listans en Michael Jackson kemur sterkur inn í þriðja sætið. 3.11.2009 10:22
Vaxtatekjur einstaklinga 2007 hækkuðu um 19 milljarða Vaxtatekjur einstaklinga af bankainnistæðum árið 2007 hækkuðu um 19 milljarða kr. við endurmat Hagstofunnar á þessum tekjum. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. 3.11.2009 09:15
Gistinóttum í september fækkar um tæp 2% milli ára Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 120.500 en voru 122.500 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi og á Höfuðborgarsvæðinu. Fækkunin nemur tæpum 2%. 3.11.2009 09:06
Danske Bank hefur afskrifað yfir 500 milljarða á árinu Danske Bank hefur neyðst til að afskrifa 20,7 milljarða danskra kr., eða ríflega 500 milljarða kr., á fyrstu níu mánuðum ársins. Bankinn skilaði hagnaði á þriðja ársfjórðung en hann fær samt þungt högg við opnun markaðarins í Kaupmannahöfn í morgun og hafa hlutir í honum lækkað um 5%. 3.11.2009 08:53
Nordea í dómsmáli vegna kaupa í íslensku bönkunum Norræni stórbankinn Nordea er nú í miklum vandræðum en finnskir fjárfestar hafa ákært bankinn um að hafa tælt sig til að fjárfesta í skuldabréfasjóðnum Mermaid. Tæplega 25 milljarðar kr. eru horfnar og eftir standa 1.400 til 1.500 reiðir Finnar. Nordea fjárfesti í íslensku bönkunum þremur auk þess að fjárfesta í undirmálslánum vestan hafs í gegnum þennan sjóð. 3.11.2009 08:21
Velheppnuðu hlutabréfaútboði Össurar er lokið Vel heppnuðu útboði 29.500.000 nýrra hluta í Össuri hf. , sem skipulagt var með tilboðsfyrirkomulagi, er nú lokið. Alls seldust hlutir fyrir 3,6 milljarða kr. 3.11.2009 07:59
BILLY-vísitalan kemur í staðinn fyrir Big Mac vísitöluna Í kjölfar lokunar McDonald's hamborgarastaðanna á Íslandi hafa vaknað spurningar um hvernig hægt verði að bera saman verðlag á milli Íslands og annarra landa. Lausnin er einföld. Hægt verður að nota svokallaða BILLY-vísitölu en hún byggir á verði samnefndra bókahilla sem IKEA framleiðir og seldar eru í 30 löndum. 3.11.2009 07:50
RBS kunngerir 3.700 uppsagnir Breski bankinn Royal Bank of Scotland mun á næstunni segja upp 3.700 starfsmönnum sínum, sem eru um 14 prósent þeirra tæplega 26.000 sem í heildina starfa hjá bankanum. 3.11.2009 07:04
Skuldabréfaútboð gengur vel Skuldabréfaútboð Orkuveitu Reykjavíkur gengur eftir áætlun, en ætlunin er að selja bréf fyrir 10 milljarða króna. Útboðið fer fram innanlands í umsjón Landsbankans. 3.11.2009 06:00
Bakkavör stærsta fyrirtækið Bakkavör trónir á toppnum yfir stærstu fyrirtæki landsins, með rúmlega 257 milljarða króna veltu í fyrra, á lista tímaritsins Frjálsrar verslunar yfir þrjú hundruð stærstu íslensku fyrirtækin. Nokkur umskipti hafa orðið á listanum frá í fyrra eftir hrunið. Bakkavör var áður í fjórða sæti. 3.11.2009 06:00
Starfsemi Fluke á Íslandi er hluti af fjármögnun fyrirtækja Fluke Finance, sem greiddi 528 milljónir króna í skatt á Íslandi vegna hagnaðar síns á árinu 2008, er eitt að minnsta kosti þriggja félaga sem skráð eru til heimilis á skrifstofum Deloitte hér á landi og tengjast bandarísku fyrirtækjasamsteypunni Danaher Corporation. 3.11.2009 00:01
Glitnir braut lög með því að skuldsetja börn Lán Glitnis til barna fyrir kaupum á stofnfjárhlutum í Byr eru lögbrot, segir deildarstjóri sifja- og skiptadeildar hjá sýslumanninum í Reykjavík. Hún segist aldrei hafa kynnst máli af þessu tagi áður. 3.11.2009 00:01
Stofnfjáreigendur í mál við Glitni Rúmlega hundrað og tuttugu stofnfjárhafar í BYR hyggjast leita réttar síns gagnvart Íslandsbanka vegna lána sem bankinn veitti þeim til kaupa á hlut í stofnfjáraukningu Byrs fyrir tveimur árum. Lögmaður eins hópsins segir alla hafa staðið í þeirri trú að engar persónulegar ábyrgðir væru á lánum. 2.11.2009 18:34
Nýja Kaupþing í mál við BGE Nýja Kaupþing hefur stefnt BGE eignarhaldsfélagi, sem var í eigu helstu eigenda og stjórnenda Baugs, vegna hátt í tveggja milljarða króna skuldar. 2.11.2009 18:51
Össur fer í 3,75 milljarða hlutafjárútboð Stjórn Össurar hf. hefur í dag tekið ákvörðun um að ráðast í takmarkað og lokað útboð á allt að 29.500.000 nýjum hlutum í Össuri á markaðsverði án forkaupsréttar núverandi hluthafa. Miðað við markaðsverð Össurar í dag nemur útboðið um 3,75 milljörðum kr. 2.11.2009 18:23
GBI lækkaði um 0,04% GBI skuldabréfavísitalan lækkaði um 0,04% í dag.. Eins og við greindum frá fyrr í dag mun.visir.is birta daglega skuldabréfavísitölu dagsins. Vísitalan er unnin af GAM Management hf. (GAMMA) sem er óháð og sérhæft ráðgjafar- og sjóðastýringarfyrirtæki með starfsleyfi frá FME og heimild til fjárfestingarráðgjafar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. 2.11.2009 17:01
Bandaríkjamenn kaupa mest Skilanefnd Kaupþings neyddist til þess að óska eftir fresti til að taka endanlega ákvörðun um aðkomu kröfuhafa Kaupþings að Nýja Kaupþingi til 30. nóvember því ekki lá fyrir ársreikningur Nýja Kaupþings fyrir árið 2008 og uppgjör fyrstu níu mánaða þessa árs, að sögn Steinars Þórs Guðgeirssonar, formanns skilanefndar Kaupþings. 2.11.2009 15:25
Virgin vill kaupa í bresku bönkunum sem eru til sölu Milljarðamæringurinn sir Richard Branson er klár í að kaupa hluta af bresku stórbönkunum Royal Bank of Scotland, Northern Rock og Lloyds Banking Group. 2.11.2009 14:47
Mikil veltuauking á Nasdaq OMX Nordic markaðinum Meðalvirði viðskipta á dag með hlutabréf var 465 milljarðar íslenskra króna, miðað við 391 milljarð síðustu 12 mánuði á Nasdaq OMX Nordic markaðinum í október. Meðalfjöldi viðskipta á dag var 223,478, miðað við 212,927 á síðasta 12 mánaða tímabili. 2.11.2009 14:27
Gengi krónunnar styrkist Gengi krónunnar hefur verið að styrkjast frá því í hádeginu en engin viðskipti voru á gjaldeyrismarkaðinum fyrir hádegið. 2.11.2009 14:07
Krefjast lögbanns á Bónus Fasteignafélagið Sýsla og Rekstrarfélag Kauptúns hafa krafist lögbanns á verslun Bónuss við Kauptún 1 í Garðabæ. 2.11.2009 14:03
Innköllun á kröfum á hendur Atorku Hér með er skorað á alla þá, sem telja sig eiga samningskröfur samkvæmt á hendur Atorku, að lýsa þeim fyrir undirrituðum umsjónarmanni með nauðasamningsumleitunum innan fjögurra vikna frá fyrri birtingu þessarar innköllunar. 2.11.2009 13:58
NunaMinerals finnur meira af gulli á Grænlandi Námufyrirtækið NunaMinerals hafa fundið gull í tveimur af fimm borholum sínum á tvemur nýju leitarsvæðum á Grænlandi. Gullið hefur fundist á Niagornaasuk- og Qoorormiutsvæðunum á suðurhluta Grænlands. 2.11.2009 13:48
FME með álagspróf á Byr áður en ríkisframlag er veitt Fjármálaeftirlitið (FME) framkvæmir nú áslagspróf á Byr sem miðar við þær tilögur um endurskipulagningu sparisjóðsins. Fjármálaráðuneytið afgreiðir á næstunni ósk Byrs um 10,6 milljarða króna stofnfjárframlag. 2.11.2009 12:04
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent