Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nokia hótar að yfirgefa Finnland Nokia, stærsti framleiðandi heimsins á farsímum, hótar því nú að flytja alla starfsemi sína frá Finnlandi. Þetta er sökum þess að stjórnvöld í Finnlandi hika nú við að samþykkja löggjöf sem gefur atvinnurekendum aðgang að tölvupóstum starfsmanna sinna. 2.2.2009 09:13
Formaður norska Miðflokksins vill myntsamstarf við Ísland Liv Signe Navarsede formaður norska Miðflokksins og samgöngumálaráðherra Noregs vill að Norðmenn taki upp myntsamstarf við Íslendinga og bjargi þeim þar með frá Evrópusambandsaðild. 2.2.2009 08:47
Dorrit vill breyta Íslandi í svala útgáfu af Dubai Forsetafrúin Dorrit Moussaieff hefur ákveðnar hugmyndir um hvernig best sé fyrir Ísland að vinna sig út úr kreppunni. Dorrit vill breyta Íslandi í svala (cool) útgáfu af Dubai. 2.2.2009 08:21
Lækkun á Asíumörkuðum í morgun Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í verði í morgun og gætti þeirrar lækkunar mest hjá fjármála- og hátæknifyrirtækjum. 2.2.2009 07:31
Rúm tíu prósent bandarískra bílaumboða gætu lokað Meira en tíundi hluti bandarískra bílaumboða gæti þurft að leggja niður alla starfsemi og loka dyrunum á þessu ári ef fer sem horfir. Þetta kom fram á ráðstefnu þarlendra bílasala sem nýlega var haldin í New Orleans. 2.2.2009 07:25
Ætla að skipta um yfirstjórn seðlabankans Í verkefnalista nýrrar ríkisstjórnar kemur fram að skipt verði um yfirstjórn Seðlabanka Íslands og lögum um Seðlabankann breytt þannig að skipaður verði einn seðlabankastjóri sem ráðinn verður á faglegum forsendum. 1.2.2009 17:14
Verðum að vinna traust Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Jón Daníelsson dósent í hagfræði segir að það eina sem komi í veg fyrir að krónan geti flotið séu svokölluð jöklabréf. Hann segir ákvarðanafælni hafa einkennt fyrrverandi ríkisstjórn en leysa þarf málin með jöklabréfin hið snarasta. Hann vill bjóða eigendum þeirra að kaupa ríkisskuldabréf því annars muni krónan hríðfalla þegar hún verður sett á flot. 1.2.2009 11:34
Skoða verður ábyrgð endurskoðenda Endurskoðendur, sem hafa ofmatið fjárhagsstöðu fyrirtækja, geta lent í því að vera ábyrgir fyrir fjárhagstjóni hlutabréfaeigenda. Skoða þarf hvaða ábyrgð endurskoðendur bera segir lektor við Háskólann í Reykjavík. 31.1.2009 18:43
Glitnir og Landsbanki: Ný skipurit sama fólk Kröfur hafa verið um að stokkað verði upp í lykilstöðum í nýju ríkisbönkunum og hefur það verið harðlega gagnrýnt að sama fólkið gegni sömu stöðum fyrir og eftir hrun. 31.1.2009 18:45
Honda lokar verksmiðjum á Bretlandi Japanski bílaframleilðandinn Honda ætlar að loka verksmiðjum sínum á Bretlandi næstu fjóra mánuði vegna samdráttar í sölu. Verksmiðjunum í Swindon og Wiltshire verður lokað en áætlað er að opna þær aftur þann 1.júní. Starfsmenn verksmiðjanna sem eru 4200 fá full laun í tvo mánuði en einungist 60% launa sinna seinni tvo mánuðina. 31.1.2009 10:53
Tvö ólík gengi á krónunni Krónan styrktist um 0,5 prósent í gær og endaði vísitala hennar í 194 stigum. Hún hefur nú styrkst um 13,8 prósent á hálfum mánuði. Talsverður munur er þó á skráningu á gjaldeyrismarkaði hér og hjá evrópska seðlabankanum. 31.1.2009 04:00
Stjórnvaldsektum FME beitt gegn 30 aðilum frá 2007 Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lagt stjórnvaldssektir á tæplega 30 aðila frá miðju ári 2007 til ársloka 2008. Um er að ræða álagningu stjórnvaldssekta vegna brota á lögum um vátryggingastarfsemi, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um verðbréfaviðskipti. 30.1.2009 15:32
Nýherji tapaði 12 hundruð milljónum Tap af rekstri Nýherja hf. nam 1,201 milljón króna á árinu 2008 samkvæmt ársskýrslu félagsins. Tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu námu 30.1.2009 19:41
Nýtt eignaumsýslufélag Kaupþings stofnað Eignasel ehf., nýtt eignaumsýslufélag Kaupþings banka, hefur verið stofnað til þess að taka yfir eignarhluti í fyrirtækjum sem bankinn eignast. Félagið mun jafnframt, í samstarfi við fyrirtækjaráðgjöf bankans, stýra sölu á eignum þess þegar aðstæður leyfa. 30.1.2009 19:06
Breytingar á starfsmannahaldi Straums Straumur Burðarás segir upp upp eða færir til í starfi níu starfsmenn sína hér á landi og 20 erlendis. Geir Andersen, upplýsingafulltrúi Straums, segir að þetta sé gert í hagræðingaskyni. 30.1.2009 18:07
Gengi Eimskips féll um 20 prósent í dag Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um 20 prósent í dag, mest skráðra félaga í Kauphöllinni. Félagið skilaði uppgjöri í gærkvöldi en þar kemur fram að það hafi tapað 96 milljörðum króna á síðasta ári. 30.1.2009 16:37
Baugur lokar skrifstofu á Íslandi - 15 sagt upp störfum Baugur Group hefur ákveðið að loka skrifstofu sinni á Túngötu og hefur öllum fimmtán starfsmönnum fyrirtæksins hér á landi verið sagt upp störfum. Jafnframt hyggst Baugur fækka starfsmönnum í Bretlandi úr 29 í 16. 30.1.2009 16:10
Gjaldeyrishöftum mögulega aflétt með nýjum seðlabankastjóra Beat Siegenthaler sérfræðingur TD Securities í nýmörkuðum segir í fréttabréfi sínu að gjaldeyrishöftunum hér á landi verði mögulega létt að einhverju marki með tilkomu nýs seðlabankastjóra. 30.1.2009 14:57
Eimskip segir misskilning gæta í fréttum af forstjóralaunum Stjórn Eimskips segir að misskilnings hefur gætt í umfjöllun um ársreikning félagsins fyrir reikningsárið 2008 í fréttum um afkomu félagsins. Laun forstjóra félagsins skulu skoðast í samræmi við uppgjörsár félagsins sem er frá nóvember til október ár hvert. 30.1.2009 14:29
Ísland tryggir innistæður Norðmanna í Kaupþingi Bjarne Borgersen formaður skilanefndar Kaupþings í Noregi segir í samtali við vegfsíðuna e24.no að allir þeir sem áttu fé inni á innlánsreikningum Kaupþings í Noregi muni fá innistæður sínar greiddar að fullu. 30.1.2009 14:07
AGS íhugar útgáfu skuldabréfa í fyrsta sinn Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) íhuga nú skuldabréfaútgáfu í fyrsta sinn í sögu sinni. Eru hugmyndir þessar tilkomnar vegna mikillar ásóknar í aðstoð frá sjóðnum í þeirri fjármálakreppu sem nú ríkir. 30.1.2009 13:44
Alfesca hækkar eitt í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Alfesca, hefur hækkað um 1,28 prósent það sem af er dags. Þetta er eina hækkun dagsins. Á sama tíma hefur gengi Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, fallið um 6,65 prósent, Bakkavarar um 3,63 prósent og Eimskips um 2,4 prósent. 30.1.2009 13:24
Landsbókasafn Bretlands varðveitir vefinn indefence.is Landsbókasafn Bretlands - British Library - hefur ákveðið að varðveita vef indefence.is sem heimild um fjármálakreppuna fyrir fræðimenn framtíðar. 30.1.2009 13:16
Utanferðum Íslendinga fækkaði um 47% í desember Íslendingar hafa dregið verulega úr ferðum sínum til útlanda ef marka má tölur um brottfarir um Leifsstöð á árinu. Í desember fækkaði utanferðum Íslendinga um 47% miðað við sama mánuð árið á undan. 30.1.2009 12:52
Mikið tap á sjóðnum Fyrirtækjabréf Landsbankans Stjórn Landsvaka hefur sent hlutdeildarskírteinishöfum í sjóðnum Fyrirtækjabréf Landsbankans bréf þar sem kemur fram að mikið tap verður á sjóðnum. 30.1.2009 12:15
Laun Eimskipsforstjóra eru dæmalaus endaleysa Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir segir að launagreiðslur til forstjóra Eimskips séu dæmalaus endaleysa og algerlega út úr öllum kortum. 30.1.2009 11:14
Landsbankinn fær greiðslustöðvun í Bandaríkjunum Landsbanka Íslands hf. hefur verið veitt viðurkenning á greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Glitnir hafði áður fengið samskonar viðurkenningu. 30.1.2009 10:17
Sparisjóður Mýrarsýslu nær samkomulagi við lánadrottna Sparisjóður Mýrarsýslu hefur náð samkomulagi við alla helstu lánardrottna sína, innlenda sem erlenda, þess efnis að lánadrottnar skuldbinda sig til að gjaldfella ekki lán sparisjóðsins innan tilskilins frests sem er til 2. mars næstkomandi. 30.1.2009 10:04
Krónan styrkist um 0,5 prósent - vísitalan í 194 stigum Krónan hefur styrkst um 0,5 prósent í dag. Gengisvísitalan stendur í 194 stigum og hefur hún því styrkst um 13,8 prósent síðasta hálfa mánuðinn. Gjaldeyrishöftin skýra styrkinguna að mestu enda innflæði gjaldeyris nokkuð jafnt á sama tíma og lítið fer út auk kaupa Seðlabankans á krónum, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. 30.1.2009 09:53
Viðsnúningur á vöruskiptum nam 122 milljörðum kr. Vöruskiptajöfnuðurinn í fyrra var 121,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður að því er segir á vefsíðu Hagstofunnar. 30.1.2009 09:50
Svali til Icelandair Svali H. Björgvinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Icelandair. Hann mun jafnframt sinna stefnumótun félagsins og sitja í framkvæmdastjórn þess. Svali tilkynnti samstarfsmönnum sínum í gær hjá Kaupþingi að hann hefði samið um starfslok hjá bankanum. 30.1.2009 09:42
Spyr hvort ESB aðild muni sökkva sjávarútveginum Bandaríska blaðið Chistian Science Monitor, sem gefið er út í Boston, veltir því upp í grein í vikunni hvort áhugi Íslendinga á aðild að Evrópusambandinu muni reynast banabiti íslensks sjávarútvegs. Greinin ber yfirskriftina „Will EU lifeline sink Iceland's fishing industry." 30.1.2009 09:39
Blooming Marvellous orðin gjaldþrota Verslunarkeðjan Blooming Marvellous er gjaldþrota en keðjan sem verslar með föt og vörur fyrir sængurkonur og nýbura er í eigu Kcaj fjárfestingarfélagsins sem aftur er að mestu í eigu Milestone. 30.1.2009 09:26
Nýskráningum hluta- og ehf. félaga fækkaði um 30% Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 2.571 á síðasta ári og fækkaði um tæp 30% frá árinu 2007 þegar 3.674 ný félög voru skráð. 30.1.2009 09:15
Kaupa írska verðbréfamiðlun Landsbankans á innan við hálfvirði Starfsmenn og stjórnendur Merrion Capital, verðbréfamiðlunar Landsbankans á Írlandi, hafa fest kaup á 84% af miðluninni. Verðið sem þeir borga fyrir miðlunina nemur rúmlega 39 milljón pundum, eða 6,4 milljörðum kr. sem er innan við hálfvirði þess sem Landsbankinn keypti miðlunina á árið 2005. 30.1.2009 08:50
Lækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á asískum mörkuðum lækkuðu í verði í morgun og lækkuðu bréf banka og hátæknifyrirtækja mest. Lækkunin kemur í kjölfar neikvæðra afkomuspáa margra stórfyrirtækja, til dæmis Toshiba og tölvuleikjaframleiðandans Nintendo en bréf þessara fyrirtækja lækkuðu um meira en 12 prósent. 30.1.2009 07:31
Bankastjórnin vildi lækkun nú Stýrivextir eru óbreyttir. Stjórn Seðlabankans taldi lækkun samt tímabæra. Ósamræmi er milli skoðunar bankastjórnarinnar og hagfræðisviðs bankans. 30.1.2009 06:00
Þrír Eimskipsforstjórar fengu 190 milljónir í árslaun Þótt Eimskip hafi tapað um 96 milljörðum á síðasta ári báru forstjórarnir þrír, sem stýrðu félaginu á árinu, ekki skarðan hlut frá borði. Baldur Guðnason fekk 75 milljónir, Stefán Ágúst Magnússon fékk 87 milljónir og Gylfi Sigfússon 28 milljónir í árslaun, samtals um 190 milljónir. 30.1.2009 00:32
Eimskip tapaði 96 milljörðum á síðasta ári Eimskip tapaði rúmum 96 milljörðum á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu félagsins sem birt var í dag. Munar þar mestu um tap á fjórða ársfjórðungi sem var 72 milljarðar. 30.1.2009 00:13
Hneykslaður á ábyrgðarleysi bankamanna Barack Obama forseti Bandaríkjanna sagði í kvöld að bónusar sem bankamenn á Wall Street borguðu sér síðasta ári væru svívirðilegir. Hann sagði að það væru skýr skilaboð frá stjórn sinni til þessara manna að þeir sýndu aðhald. 29.1.2009 21:26
Century Aluminum lækkaði mest í Kauphöllinni Eimskip hækkaði um 1,6% og Straumur um 0,59% í Kauphöll Íslands í dag. Century Aluminum lækkaði um 12,15% og Bakkavör um 6,76%. 29.1.2009 17:02
Sigurjón skráði húsið á nafn eiginkonunnar Sigurjón Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans var sá eini af bankastjórum þeirra þriggja banka sem hrundu í október sem brá á það ráð að skrá íbúðarhúsnæði sitt á nafn maka síns þegar að bankarnir hrundu. 29.1.2009 16:27
Svali yfirgefur Kaupþing Svali Hrannar Björgvinsson, starfsmannastjóri hjá Kaupþingi, hefur samið um starfslok hjá bankanum. Þetta kemur fram í bréfi sem Svali sendi starfsmönnum bankans í dag. Í bréfinu kemur fram að hann hafi samið við Finn Sveinbjörnsson bankastjóra um að ljúka ýmsum verkefnum áður en hann hverfi á braut. Hann láti því ekki alveg strax af störfum. 29.1.2009 15:08
Þrjátíu manns hætta hjá Sparisjóðabankanum Sparisjóðabanki Íslands, sem áður hét Icebank, segir upp 18 starfsmönnum um næstu mánaðamót. 29.1.2009 15:00
Bankastjórnin eyland í Seðlabankanum Bankastjórn Seðlabankans var ein um að vilja lækkun stýrivaxta. Hagfræðingar bankans voru hins vegar sammála mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að halda þeim óbreyttum í átján prósentum. Þetta fullyrðir Beat Siegenthaler, sérfræðingur hjá TD Securities í London í Bretlandi. 29.1.2009 14:33