Viðskipti innlent

Nýtt eignaumsýslufélag Kaupþings stofnað

Eignasel ehf., nýtt eignaumsýslufélag Kaupþings banka, hefur verið stofnað til þess að taka yfir eignarhluti í fyrirtækjum sem bankinn eignast. Félagið mun jafnframt, í samstarfi við fyrirtækjaráðgjöf bankans, stýra sölu á eignum þess þegar aðstæður leyfa.

Stjórn Eignasels ehf. skipa Bergþór Konráðsson, rekstrarhagfræðingur, sem jafnframt er formaður, Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst og Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×