Viðskipti innlent

Nýskráningum hluta- og ehf. félaga fækkaði um 30%

Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 2.571 á síðasta ári og fækkaði um tæp 30% frá árinu 2007 þegar 3.674 ný félög voru skráð.

Greint er frá þessu á vefsíðu Hagstofunnar. Flestar nýskráningar flokkaðar eftir atvinnugreinum eru eins og undanfarin ár í starfsemi eignarhaldsfélaga og leigu atvinnuhúsnæðis.

Ríflega fjórðungur nýskráðra félaga árið 2008 voru í þessum tveimur atvinnugreinum. Flestar nýskráningar voru sem fyrr á höfuðborgarsvæðinu en nýskráningum fækkaði þó í öllum landshlutum, hlutfallslega mest á Vesturlandi, eða um 46% frá fyrra ári.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×