Viðsnúningur á vöruskiptum nam 122 milljörðum kr. 30. janúar 2009 09:50
Vöruskiptajöfnuðurinn í fyrra var 121,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður að því er segir á vefsíðu Hagstofunnar. Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2008 fluttar út vörur fyrir 467,1 milljarð króna en inn fyrir 472,7 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd samkvæmt bráðabirgðatölum, sem nam 5,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 127,5 milljarða á sama gengi. Samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir tæpa 54,0 milljarða króna og inn fyrir 29,8 milljarða króna. Vöruskiptin í desember voru því samkvæmt bráðabirgðatölum hagstæð um 24,2 milljarða króna. Í desember 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 16,7 milljarða króna á sama gengi. Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2008 var heildarverðmæti vöruútflutnings 35,1 milljarði meira en á sama tíma árið áður eða 8,1% á föstu gengi. Iðnaðarvörur voru 52,1% alls útflutnings og er þetta fyrsta árið, frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem iðnaðarvörur eru meiri en helmingur alls útflutnings og hlutdeild þeirra hærri en sjávarafurða.. Sjávarafurðir voru 36,6% alls útflutnings og hefur hlutfall sjávarafurða af heildarútflutningi ekki verið lægra síðan 1865. Verðmæti þeirra var 5,3% minna en á sama tíma árið áður Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2008 86,8 milljörðum minna eða 15,5% á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2008 voru hrá- og rekstrarvara með 31,8% hlutdeild og fjárfestingarvara en hlutur þeirra var 20,8%.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira