Sparisjóður Mýrarsýslu nær samkomulagi við lánadrottna 30. janúar 2009 10:04
Sparisjóður Mýrarsýslu hefur náð samkomulagi við alla helstu lánardrottna sína, innlenda sem erlenda, þess efnis að lánadrottnar skuldbinda sig til að gjaldfella ekki lán sparisjóðsins innan tilskilins frests sem er til 2. mars næstkomandi. Í tilkynningu um málið segir að sá frestur verður nýttur til að semja við lánardrottna sparisjóðsins um aðkomu þeirra að fjárhagslegri endurskipulagning sjóðsins. Höfuðstóll lána verður ekki greiddur á tímabilinu og heldur ekki vextir af víkjandi lánum, þ. á m. skuldabréfaflokki að heildarfjárhæð rúmlega 279 milljónir kr. á lokagjalddaga 2015 sem tekinn hefur verið til viðskipta í kauphöllinni. Sparisjóðurinn mun hins vegar greiða vexti af öllum öðrum lánum, eftir því sem við á, á kyrrstöðutímabilinu og samkomulagið hefur ekki áhrif á stöðu sparifjáreigenda eða þeirra sem eiga almennar viðskiptakröfur á sparisjóðinn. Eigendur skuldabréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í kauphöll eru ekki aðilar að þessu samkomulaginu en stefnt er að þátttöku þeirra í fjárhagslegri endurskipulagningu. Kauphöllin hefur hinsvegar tilkynnt að skuldabréf sjóðsins séu komin á athugunarlista. Sparisjóður Mýrasýslu hefur eins og komið hefur fram átt í viðræðum við lánadrottna um nokkurn tíma vegna stöðu sjóðsins og eru sparisjóðsstjóri og stjórn sparisjóðsins eru bjartsýnir á að samningar muni nást um fjárhagslega endurskipulagningu. Undiritun samkomulags við lánadrottna er jákvætt skref í átt að því að tryggja framtíðarrekstur sparisjóðsins og að tryggja hagsmuni viðskiptavina og annara hagsmunaaðila. Sparisjóður Mýrasýslu hefur um nokkurn tíma unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins eftir að ljóst varð að ekki yrði af samningi við Kaupþing banka hf. í kjölfar hruns íslensku viðskiptabankanna. Í nóvember 2008 undirrituðu Nýi Kaupþing banki hf. og Borgarbyggð samkomulag um kaup bankans á öllu stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu. Kaupin eru háð því að samningar náist við lánardrottna um fjárhagslega endurskipulagningu sjóðsins auk þess sem fyrirvari er gerður um samþykki Fjármálaeftirlits og Samkeppniseftirlits.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira