Utanferðum Íslendinga fækkaði um 47% í desember 30. janúar 2009 12:52
Íslendingar hafa dregið verulega úr ferðum sínum til útlanda ef marka má tölur um brottfarir um Leifsstöð á árinu. Í desember fækkaði utanferðum Íslendinga um 47% miðað við sama mánuð árið á undan. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að engan þurfi að undra að dregið hafi úr ferðagleðinni miðað við það ástand sem nú ríkir í hagkerfinu í kjölfar bankahrunsins. Þá hefur kaupgeta Íslendinga í útlöndum dregist saman á undanförnum mánuðum samhliða veikingu krónunnar en raungengi krónu er ennþá langt undir meðaltali síðustu áratuga. 15.500 Íslendingar létu þetta samt ekki stoppa sig og héldu utan í desembermánuði þrátt fyrir veika krónu og óvissu í hagkerfinu. Þetta er þó mikil fækkun samanborið við sama mánuð árið 2007 en þá héldu 29.000 íslendingar utan í jólamánuðinum og fækkaði þeim því um 47% á milli ára. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað allt frá miðju síðustu ári. Sú þróun varð svo hraðari með haustinu eftir að kreppan braust út. Í október fækkaði íslenskum ferðalöngum um 32% samanborið við fyrra ár, í nóvember var fækkunin á milli ára 59% og nú í desember varð fækkunin 47% eins og fyrr segir. Í heild fækkaði brottförum íslendinga um 10% á síðasta ári miðað við árið 2007. Erlendum gestum sem heimsóttu Ísland fjölgaði hinsvegar á síðasta ári og nam aukningin 3% frá fyrra ári. Fjöldi erlendra gesta sem sóttu Ísland heim á síðasta ári fór í fyrsta skipti yfir hálfa milljón manns.
Mest lesið Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Breyttur opnunartími hjá Sorpu Neytendur Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Viðskipti innlent Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Jón Ingi nýr forstjóri PwC Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Sjá meira