Fleiri fréttir

Ekki blaðamannafundur í Seðlabankanum

Ekki verður haldinn blaðamannafundur í Seðlabankanum í dag í tengslum við ákvörðun bankans að halda stýrivöxtum óbreyttum. Þá koma Peningamál aðeins út á rafrænu formi á heimasíðu bankans.

Hækkun á Asíumörkuðum

Hækkun varð á hlutabréfum á asískum mörkuðum í morgun þegar vonir fjárfesta, um aðgerðir bandarískra stjórnvalda til bjargar þarlendum bönkum, styrktust. Nikkei-vísitalan í Tókýó hækkaði um tæpt prósent en þar á bæ munaði mestu um hækkun bréfa Mitsubishi UFJ-bankans, stærsta viðskiptabanka landsins, en þau hækkuðu um 4,6 prósent.

Jón Ásgeir: Hvalveiðar skaða eignir erlendis

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs og Iceland-verslunarkeðjunnar, hefur áhyggjur af því að leyfi Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á hvalveiðum til 2013 muni koma til með að skaða eignir Íslendinga erlendis.

Nýr banki í burðarliðnum

Nokkrir aðilar úr viðskiptalífinu eru að skoða stofnun nýs banka hér á landi. Ástæðan er sögð sú að núverandi bankakerfi þjónusti fyrirtæki í landinu illa og jafnvel er talað um að sameina hinn nýja banka við einhverja fjármálastofnun.

Bandarísk hlutabréf hækkuðu í dag

Það var líf og fjör á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Vísitalan rauk upp vegna væntinga manna til áætlunar stjórnvalda sem eiga að losa bankana við lélegar fjárfestingar. Við lokun markaða kom í ljós að Nasdaq vísitalan hækkað um 3,5% og Dow Jones um 2,5%. Þetta er í samræmi við þær hækkanirnar sem hófust í síðustu viku.

Uppsagnir og launalækkanir hjá SPRON

Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurskipulagningu á starfsemi SPRON til þess að mæta breyttum aðstæðum í íslensku efnahagslífi. Meginmarkmið breytinganna er að auka hagræðingu í rekstri og mæta þeim tekjusamdrætti sem fyrirsjáanlegur er næstu misserin. Nauðsynlegt er að bregðast við breyttu rekstrarumhverfi nú og eru aðgerðirnar óháðar áformum um sameiningu SPRON, Sparisjóðsins í Keflavík og Byrs en munu styðja við þau áform.

Lengi í skoðun hjá Straumi að flytja úr landi

Straumur hefur sent frá sér tilkynningu vegna fréttar um áform bankans að flytja úr landi. Þar segir að það hafi verið skoðað undanfarin misseri að skrá hlutabréf bankans í erlenda kauphöll. Jafnframt er áréttað að engin ákvörðun hafi verið tekin um málið.

Straumur hækkaði mest í Kauphöllinni í dag

Gengi hlutabréfa í Straumi hækkaði um 8,33 prósent í dag, sem er langmesta hækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Bakkavör, sem hækkaði um 0,98 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa í Færeyjabanka um 0,86 prósent, Marel Food Systems um 0,77 prósent, Icelandair Group um 0,38 prósent og í Össuri um 0,11 prósent.

FME segir rakalausar dylgjur og ásakanir í Kastljósi

Í tilkynningu á vef Fjármálaeftirlitsins segir að í Kastljósi þann 27. janúar hafi þeir Helgi Seljan og Kristinn Hrafnsson fjallað um viðskipti Roberts Tchenguiz við Kaupþing. Í umfjölluninni komu fram alvarlegar missagnir um starfsemi Fjármálaeftirlitsins og rakalausar ásakanir og dylgjur sem ekki er hægt að láta ósvarað.

Fimm lönd eiga hættu á íslenskum örlögum

Vefsíðan foreignpolicy.com segir að fimm lönd í heiminum eigi nú á hættu að upplifa íslensk örlög, það er nær algert hrun efnahagslífsins. Þessi lönd eru Bretland, Lettland, Grikkland, Úkranía og Nigaragúa.

Segir FIH starfsmenn ekki í vandræðum með aðra vinnu

Lars Johansen bankastjóri FIH bankans í Danmörku segir að þeir starfsmenn sem sagt var upp í dag muni ekki eiga í vandaræðum með að fá aðra vinnu. "Það er mikil eftirspurn eftir starfsmönnum bankans," segir Johansen í samtali við börsen.dk.

Straumur ekki á útleið

Straumur er ekki á leið úr landi. Þetta fullyrðir Georg Andersen, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs fjárfestingabankans. „Það eru einhverjir átján til tuttugu mánuðir síðan við byrjuðum að skoða málin. Áætlanir hafa ekki farið lengra,“ segir hann.

Ríkissjóður mun skulda 413 milljarða kr. umfram eignir

Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir því að í árslok þessa ár muni skuldir ríkissjóðs nema 413 milljörðum kr. umfram eignir. Hvað eignabreytingar varðar vegur þyngst að sjóðurinn mun tapa 220 milljörðum kr. vegna veðlána þeirra sem sjóðurinn létti nýlega af Seðlabankanum.

Atvinnuleysið að ná tölunni 13.000

Atvinnulausum heldur áfram að fjölga á nýju ári og á vef Vinnumálastofnunnar eru nú 12.905 skráðir atvinnulausir. Í lok síðasta árs voru 8.982 skráðir án atvinnu og hefur þeim því fjölgað um 3.923 í þessu mánuði.

Straumur hækkaði um rúm 30 prósent í vikunni

Gengi hlutabréfa í Straumi hefur haldið áfram að hækka í Kauphöllinni í dag en síðastaliðna þrjá daga hefur það rokið upp um rétt rúm 30 prósent. Breska viðskiptablaðið Financial Times hafði eftir William Fall, forstjóra, í gær, að bankinn sé að skoða flutning frá Íslandi og sé að skoða skráningu á markað í Stokkhólmi í Svíþjóð og í Lundúnum í Bretlandi.

Super Bowl finnur fyrir fjármálakreppunni

Þegar Pittsburg Steelers og Arizona Cardianls skella saman á sunnudagsnótt í hinu bandaríska Super Bowl verður það í skugga fjármálakrerppunnar. Veisluhöldum í kringum Super Bowl hefur verið aflýst og í fyrsta sinn í sögunni hefur miðaverð á leikinn lækkað milli ára.

Noregskóngur fær efnahagsaðstoð í fjármálakreppunni

Haraldur Noregskóngur og fjölskylda hans fær sinn hlut í efnahagsaðstoð norskra stjórnvalda til handa atvinnu- og fjármálalífi landsins. Alls fara 27 milljónir norskra kr. eða rúmlega 460 milljónir kr. til konungsfjölskyldunnar, í þeim pakka sem norska stjórnin hefur kynnt.

Nomura tapaði meiru á íslensku bönkunum en á Madoff

Nomura Holdings stærsta verðbréfamiðlun Japans tapaði um 50 milljörðum kr. á hruni íslensku bankanna á síðasta ári. Er þetta nokkuð meira en Nomura tapaði á ponzi-svindli Bernard Madoff fjárfestis á Wall Street.

Verðbólgan mælist nú 18,6% á ársgrundvelli

Verðbólgan mælist nú 18,6% á ársgrundvelli. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Er mælingin nokkuð í takt við spár greiningar Glitnis og hagfræðideildar Landsbankans.

Hækkun á Asíumörkuðum

Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í morgun, annan daginn í röð, og voru það fjármála- og hátæknifyrirtæki sem leiddu hækkunina.

Sýndargjaldeyrir veldur áhyggjum

Skuggabankastjórn Markaðarins er á einu máli um að stýrivextir hér séu allt of háir, en þeir standa nú í 18 prósentum. Vextir verði hins vegar ekki lækkaðir nema í samhengi við efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar sem lögð var fram í tengslum við lán og fyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Straumur-Burðarás úr landi

Stjórnendur Straums Burðaráss íhuga að flytja lögheimili bankans frá Íslandi til London eða Svíþjóðar, samkvæmt því sem Financial Times hefur eftir William Fall, forstjóra fyrirtækisins.

Val um sænska leið eða suðurameríska

„Ég tel að ástandið í efnahagsmálun nú sé hættulegra en nokkru sinni á lýðveldistímanum. Ákvarðanir á næstu dögum og vikum geta ráðið því hvort við verðum áfram meðal þeirra þjóða í heiminum sem njóta bestra lífskjara,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar.

Evra gæti staðið við hlið krónu

Ein þeirra bráðaráðstafana sem Íslendingar gætu hugsanlega gripið til sem útleið úr peningamálakreppunni sem hrun krónunnar hefur leitt til, væri að gera evruna - eða annan traustan gjaldmiðil - að gjaldgengum gjaldmiðli, án formlegrar ákvörðunar um að leggja krónuna niður. Þetta er meðal hugmynda sem Willem H. Buiter, höfundur umtalaðrar skýrslu um veikleika íslenska bankakerfisins, kynnti í heimsókn sinni hingað til lands á dögunum.

Bankana vantaði erlenda hluthafa

„Ég er þess fullviss að hefðu stórir erlendir bankar verið á meðal ráðandi hluthafa í íslensku bönkunum þá hefði fall þeirra ekki haft eins víðtæk og sársaukafull áhrif og raunin varð. Þeim [bönkunum] hefði aldrei verið leyft að vaxa jafn hratt með þeim hætti sem þeir gerðu. Erlendir hluthafar hefðu passað upp á það," segir Carsten Valgreen, meðeigandi ráðgjafafyrirtækisins Benderly Economics.

Heitar kartöflur

Markaðurinn sagði frá því í síðustu viku að Landsbankinn í Lúxemborg hafi boðið vildarviðskiptavinum sínum að kaupa fyrir þá lúxusbíla gegn mótframlagi. Bílarnir voru geymdir í bílageymslu á vegum bankans í Lúxemborg ásamt öðrum bílum sem viðskiptavinir höfðu keypt fyrir eigin reikning.

Norðmaður vildi miðlun Landsbanka

Norðmaðurinn Jon Harald Nordbrekken, stofnandi norska fjármálafyrirtækisins Bank2, reyndi að kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi fyrir jól.

Þjóðarsjóður

Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs gamla Landsbankans, velti þeirri hugmynd upp á aðalfundi bankans í lok apríl í fyrra að Íslendingar kæmu sér upp þjóðarsjóði í líkingu við þann sem Norðmenn búa yfir.

Keypt hugmynd

Hugmynd Björgólfs um þjóðarsjóð fékk heilmikla athygli á sínum tíma en féll í misjafnan jarðveg. Hvað sem öðru líður er ljóst að þótt hugmyndin sé ágæt er hún ekki Björgólfs.

Hluthafar Flögu fá rúm 200 þúsund

Frestur meirihluta hluthafa Flögu Group til að taka yfirtökutilboði bandaríska eignarhaldsfélagsins Flaga Holdings rann út í gær.

Hagnast á skortsölu

Bandaríski vogunarsjóðurinn Paulson & Co, hefur hagnast um 295 milljónir punda, jafnvirði 50 milljarða króna, með skortsölu á hlutabréfum í Royal Bank of Scotland frá í september í fyrra.

Yfirtaka ríkisins á Glitni gat aldrei verið trúverðug

Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings segir að margt af því sem sagt hafi verið um sig í fjölmiðlum undanfarið sé ósatt og annað slitið úr samhengi. Sigurður segist fyrst og síðast hafa unnið að hag Kaupþings og hafi farið að lögum og reglum í því sambandi. Þetta kemur fram í bréfi sem Sigurður sendi vinum og vandamönnum í gær.

Segir erfitt að kyrrsetja eignir auðmanna

Jón Daníelsson hagfræðingur við London School of Economics segir hugmyndir um að kyrrsetja eignir auðmanna sem Vinstri grænir hafa sett fram vera út í hött. Hann segir hugmyndina vera ill framkvæmanlega og um sé að ræða poppúlisma sem gefi fínar fyrirsagnir í blöðin.

Doktor Dómsdagur varar enn við hremmingum

Halla mun frekar undan fæti á hlutabréfamörkuðum og munu nýmarkaðsríkin fylgja hinum ríkjunum inn í alvarlega og djúpa kreppa. Svo mælir dr. Nouriel Roubini, prófessor í hagfræði við New York-háskóla.

Straumur hækkar um 25 prósent á tveimur dögum

Gengi hlutabréfa í Straumi toppuðu daginn í Kauphöllinni með hækkun upp á 9,86 prósent. Bréf í fjárfestingabankanum hafa nú hækkað um rúm 25 prósent á síðustu tveimur viðskiptadögum.

Sjá næstu 50 fréttir