Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Iceland Express í samstarf við Listahátíð Samstarfssamningur þess efnis að Iceland Express verði einn af aðalsamstarfsaðilum Listahátíðar í Reykjavík var undirritaður í morgun. 23.1.2009 13:54
Tóku tilboðum fyrir 30 milljarða kr. í ríkisvíxla Alls bárust 55 gild tilboð í nýjan flokk ríkisvíxla hjá Seðlabanka Íslands að fjárhæð 56 milljörðum kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 30.000 milljarðar kr. að nafnverði á meðalverðinu 96,765 (flatir vextir 15,43%). 23.1.2009 13:39
Mál Vilhjálms gæti kostað stjórn Glitnis 35 milljarða kr. Dómsmál það sem Vilhjálmur Bjarnason vann gegn stjórn Glitnis fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag gæti kostað stjórn Glitnis 35 milljarða kr. Þetta segir Vilhjálmur í samtali við Fréttastofu. 23.1.2009 13:24
Vilhjálmur hafði betur gegn Glitni Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir stefndi stjórn Glitnis vegna tillögu sem samþykkt var í stjórn bankans og veitti stjórninni heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Kaupverðið skyldi vera lægst 10% og hæst 10% hærra en skráð kaup- eða sölugengi í Kauphöll Íslands. Málið snertir starfslok Bjarna Ármannssonar hjá bankanum. 23.1.2009 12:52
SA vill lækka stýrivexti í 12% strax Ekkert fyrirtæki getur þrifist í starfsumhverfi þar sem stýrivextir eru 18% og raunvextir á bilinu 20-30%. Þetta kom fram á fjölmennum fundi stjórnenda í atvinnulífinu á Grand Hótel Reykjavík í morgun. 23.1.2009 12:39
Krónan hefur braggast nokkuð í vikunni Krónan hefur sótt nokkuð í sig veðrið að nýju undanfarna viku og hefur hún ekki verið sterkari gagnvart evru síðan fyrir jól. 23.1.2009 12:05
Írsk stjórnvöld segja landið ekki vera Ísland Írsk stjórnvöld segja að fjármálakerfi þeirra sé "ekki Ísland,, viðmið sem heyrist nú æ oftar úr ranni stjórnmálamanna sem reyna að verja traust og trúverðugleika fjármálakerfis síns heimavið. 23.1.2009 11:59
Aðeins 15-23% af kröfum Seðlabankans munu innheimtast Á þessi stigi liggur ekki nákvæmlega fyrir hvað innheimtast kann af þeim bréfum sem fjármálaráðuneytið keypti af Seðlabankanum fyrr í mánuðinum. Í áætlunum fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að 50 – 80 milljarðar kr. muni innheimtast eða 15-22% af kröfunum. 23.1.2009 11:19
Borgarísjakinn sem sökkti Íslandi á leið til Bretlands „Hlutir í félaginu Gordon Brown (Titanic) Enterprises Ltd eru í frjálsu falli eftir því sem skuldirnar aukast og björgunarbátar atvinnumiðlana fyllast. Dekkið er fullt af bankamönnum á flótta frá City (eða Reykjavik-on-Times). Sumir segja að borgarísjakinn sem sökkti Íslandi sé á leiðinni hingað tilbúin að sökkva okkur með eitruðum skuldum sem liggja undir vatnsyfirborðinu.“ 23.1.2009 10:56
Century Aluminum lækkar mest í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hefur fallið um tvö prósent það sem af er dags. Þá hefur gengi bréfa í Straumi lækkað um 0,83 prósent og Össurar um 0,21 prósent. 23.1.2009 10:32
Moody´s segir framtíð Íslands óljósa Matsfyrirtækið Moody´s heldur áfram einkunn sinni á ríkissjóði í Baa1 með neikvæðum horfum. Segir í mati Moody´s að efnahagsleg framtíð Íslands sé óljós og að lítið megi út af bregða til að allt fari á versta veg. 23.1.2009 10:21
Segir vinstri sveiflu á Íslandi slæm tíðindi fyrir erlenda fjárfesta Beat Siegenthaler hefur verulegar áhyggjur af stjórnmálaástandinu á Íslandi og hættunni á því að hér komist vinstri stjórn til valda. Siegenthaler er sérfræðingur TD Securites í nýmörkuðum og hefur verið miðlari að stórum hluta þeirra krónubréfa sem enn eru útistandandi. 23.1.2009 09:38
Kreppa í Bretlandi Kreppa er nú í Bretlandi, samkvæmt nýjustu gögnum hagstofunnar þar í landi sem benda til að samdráttar hafi gætt í hagkerfinu þar í landi í tvö ársfjórðunga í röð. 23.1.2009 09:34
ÍLS kaupir skuldabréf fyrir 100 milljarða kr. Nokkrar umsóknir hafa nú þegar borist til Íbúðalánasjóðs (ÍLS) þar sem óskað er kaupa á skuldabréfum en óljóst er á þessari stundu hver heildarfjárhæð kaupanna verður. Hún gæti þó orðið meir en 100 milljarðar kr.. 23.1.2009 09:08
Eignir Stoða hafa lækkað um 200 milljarða kr. Eignir Stoða hafa nú lækkað um u.þ.b. 200 milljarða kr. síðastliðið hálft ár. Miðað við bráðabirgðamat á verðmæti eigna félagsins um sl. áramót er eigið fé Stoða neikvætt um 111 milljarða króna og því ljóst að gjaldþrot blasir við félaginu ef ekkert er aðhafst. 23.1.2009 08:48
Microsoft mun segja upp 5.000 manns Hugbúnaðarframleiðandinn Microsoft boðar niðurskurð um rúmlega fimm prósent af mannafla fyrirtækisins næstu 18 mánuðina. 23.1.2009 08:15
Asíubréf lækka - hátæknifyrirtækin blæða Hlutabréf á Asíumörkuðum lækkuðu í verði í morgun og má að hluta rekja þá lækkun til frétta af tapi hjá Sony og Samsung en bréf fyrrnefnda fyrirtækisins lækkuðu um sjö prósent í kjölfar tilkynningar um rekstrarhalla, þann fyrsta í 14 ár. 23.1.2009 08:07
Straumur biður um rannsókn Straumur óskar eftir því að Seðlabanki og Fjármálaeftirlit skoði gjaldeyrisviðskipti bankans. Starfsmenn hafa orðið fyrir áreiti vegna ásakana um brot á gjaldeyrisreglum. 23.1.2009 07:00
Apple blæs á svartsýnisspár Jákvæðar afkomutölur bandarískra tæknifyrirtækja á borð við Apple og IBM hífðu hlutabréfamarkað vestanhafs upp í fyrradag eftir skell daginn áður þegar S&P 500-hlutabréfavísitalan féll um rúm fimm prósent. 23.1.2009 06:00
Fengu tugmilljarða lán frá Kaupþingi Tchenguiz bræður fengu tugi milljarða lánaða frá Kaupþingi hér á landi, í Bretlandi og Lúxemborg mánuðina fyrir bankahrunið. Veðin fyrir lánunum eru að mestum hluta í breskum fasteignafélögum en breskur fasteignamarkaður er gott sem hruninn. Lánin voru veitt á sama tíma og nær ógjörningur var fyrir íslensk fyrirtæki að fá fyrirgreiðslu í íslenskum bönkum. 22.1.2009 19:12
Bankastjóri Englandsbanka ósáttur við útlánatregðu Bankastjóri Englandsbanka segist deila gremju fyrirtækja sem viðskiptabankar haldi í gíslingu með tregðu sinni til útlána. 22.1.2009 19:28
Hæstiréttur staðfestir áframhaldandi greiðslustöðvun Hansa Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Hansa ehf. skyldi veittur réttur til áframhaldandi greiðslustöðvunnar. MP Banki ehf. skaut málinu til Hæstaréttar en bankinn er meðal stærstu kröfuhafa félagsins. 22.1.2009 16:09
Stoðir fá greiðslustöðvun til 6. apríl Stoðir, sem áður hét FL Group, fær greiðslustöðvun til 6. apríl samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í hádeginu. Stjórn félagsins óskaði eftir greiðslustöðvun eftir að ríkið tók yfir Glitni, kjölfestueign félagsins, í septemberlok í fyrra. 22.1.2009 14:23
Straumur vill rannsókn á gjaldeyrisviðskiptum sínum Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur sent Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu erindi og farið þess á leit að gjaldeyrisviðskipti bankans verði tekin til sérstakrar skoðunar í ljósi umræðunnar seinustu daga. 22.1.2009 13:28
Spá 0,7 prósent hækkun neysluverð Greiningardeild Glitnis spáir að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,7% í janúar. Ef spáin gengur eftir mun ársverðbólga aukast úr 18,1% í 18,7%. ,,Eins og jafnan í janúar togast nú á áhrif af útsölum og verðskrárhækkanir, en til viðbótar eru áhrif af gengisfalli krónu á seinni hluta síðasta árs, sem enn er að ýta upp verðlagi á ýmsum neysluvörum," segir í Morgunkorni Glitnis. 22.1.2009 11:44
Century Aluminum hækkar í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hefur stokkið upp um ellefu prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni og gengi bréfa Færeyjabanka hækkað um rúm 0,4 prósent. Á sama tíma hefur gengi bréfa í Straumi fallið um 2,46 prósent. 22.1.2009 10:16
Kaupmáttur lækkaði um 8,2% á einu ári Kaupmáttur lækkaði um 0,9% í desember og hefur lækkað um 8,2% síðustu tólf mánuði. Launavísitala lækkaði um 0,7% í desember en hún hefur hækkað um 8,3%. 22.1.2009 10:06
Sony tapar í fyrsta sinn í 14 ár Japanski hátækniframleiðandinn Sony gerir ráð fyrir að skila tapi upp á 150 milljjarða jena, jafnvirði 216 milljarða íslenskar króna, vegna síðasta árs. Gangi það eftir verður þetta í fyrsta sinn í fjórtán ár sem mínus færist í bækur fyrirtækisins. 22.1.2009 09:39
Hækkun á Asíumörkuðum í morgun Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í morgun eftir að seðlabanki Japans gaf það út að til skoðunar væri að hann keypti skuldabréf fyrirtækja til að koma í veg fyrir algjöra lánsfjárþurrð þeirra. Útflutningur Japana dróst saman um 35 prósent í desember samkvæmt nýrri skýrslu en það gefur til kynna að efnahagskreppan leggist enn þyngra á japanska hagkerfið en talið hafði verið og dragi úr áhuga fjárfesta á þarlendum fyrirtækjum. 22.1.2009 07:56
Metvelta á skuldabréfamarkaði Velta á skuldabréfamarkaði nam 17,9 milljörðum króna í gær. Þetta er mesta velta ársins en annað eins hefur ekki sést síðan ríkið tók yfir bankana snemma í október í fyrra. Næstmesta veltan sem sést hefur eftir árið á markaðnum nemur í kringum sextán milljörðum króna. 22.1.2009 06:30
Forstjóri settur til hliðar Stjórn bresku íþróttavöruverslunarinnar JJB Sports greindi frá því í fyrradag að forstjóranum, Chris Ronnie, hefði verið vikið tímabundið frá störfum. 22.1.2009 05:00
Nýr við stýri SmartLynx Ómar Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SmartLynx í Lettlandi, dótturfélags Icelandair Group. Hann tekur við af Eugene O’Reilly sem gegnt hefur starfinu tímabundið. O‘Reilly fer aftur til starfa sem aðstoðarframkvæmdastjóri Icelease, annars dótturfélags Icelandair, að því er segir í tilkynningu. Ómar lætur af starfi sem varaformaður stjórnar Icelandair Group á aðalfundi í mars. - jab 22.1.2009 04:30
Landsbankinn hjálpar deCode Nýi Landsbankinn (NBI) hefur keypt skuldabréf deCode fyrir 1,4 milljarða króna. Kári Stefánsson segir um skammtímalausn að ræða. Leitað var til allra stóru bankanna. 22.1.2009 03:15
Glitnir lækkar vexti Glitnir lækkaði í gær vexti á bæði út- og innlánum. „Með þessu hafa kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa hjá Glitni lækkað um 2,85 prósent, eða úr 21,85 prósentum í 19 prósent, frá 28. október síðastliðnum. Þá hafa algengustu yfirdráttarvextir lækkað um 2,05 til 3,5 prósent hjá bankanum og vextir á algengustu sparnaðarreikningum lækkað á bilinu 0,5 til 2,5 prósent á sama tíma“, segir í tilkynningu bankans. Þar kemur fram sem dæmi að vaxtakostnaður á yfirdráttarláni í Námsvild bankans lækki um rúmar 36 þúsund krónur á ári og um 25 þúsund hjá einstaklingum í svonefndri Gullvild hjá bankanum. - óká 22.1.2009 03:00
Kári segir gagnagrunn deCODE ekki til sölu Forstjóri deCode segir að gagnagrunnur fyritækisins verði ekki markaðsettur í endurskipulagningu þess. Fyrirtækið verði líkast til klofið í tvær einingar og annar hlutinn seldur erlendum kaupendum. 21.1.2009 19:19
Útlendingar gera tilboð í Árvakur Tveir útlendir fjárfestar hafa gert tilboð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins samkvæmt heimildum fréttastofu. Félagið er sagt ramba á barmi gjaldþrots. 21.1.2009 18:36
Úrvalsvísitalan rambar við 300 stigin Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 9,85 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta lækkunin á annars rauðum degi. 21.1.2009 16:43
Hrollvekjandi tölur að koma um hagvöxtinn í Kína Tölulegar upplýsingar um landsframleiðslu Kína á fjórða ársfjórðungi síðasta árs verða birtar á morgun. Greinendur og sérfræðingar segja að þessar tölur muni verða hrollvekjandi fyrir efnahagskerfi heimsins því reiknað er með að hagvöxtur Kína á þessu tímabili hafi í besta falli verið í kringum núllið. 21.1.2009 16:36
Íbúðir seldar á hálfvirði í Danmörku Fasteignamarkaðurinn í Danmörku er svo djúpfrosinn í augnablikinu að fólk reynir að selja íbúðir sínar á hálfvirði. Og í einstöku tilfellum er gefinn allt að 65% afsláttur frá skráðu verði. 21.1.2009 15:58
Áhugi erlendra fjárfesta á Íslandi fer vaxandi Áhugi erlendra fjárfesta á Íslandi fer nú vaxandi. Þórður Hilmarsson forstöðumaður Fjárfestingarstofu segir að fleiri leiti nú til stofunnar en á sama tíma í fyrra og spyrjist fyrir um fjárfestingartækifæri á Íslandi. 21.1.2009 14:29
Feng shui meistari segir markaði róast á ári uxans Fjárfestar um allan heim geta nú tekið gleði sína upp að nýju eftir anno horribiles í fyrra. Feng shui meistari í Hong Kong segir að fjármálamarkaðirnir muni róast á ári uxans sem brátt gengur í garð. 21.1.2009 13:34
Landsbankinn tryggir rekstur deCODE með 1,4 milljarði kr. Landsbankinn mun tryggja rekstur deCODE til skamms tíma með kaupum á skuldabréfum í félaginu að upphæð 11 milljónir dollara eða um 1,4 milljarð kr.. 21.1.2009 12:54
Breska stjórnin getur ekki farið íslensku leiðina Breska ríkið getur ekki farið íslensku leiðina og þjóðnýtt Royal Bank of Scotland að fullu að mati viðskiptaritstjóra breska blaðsins Daily Telegraph. 21.1.2009 12:27
Raungengi krónunnar er 30% undir langtímameðaltali Raungengi krónunnar er nú um 30% undir meðaltali síðustu áratuga. Raungengi krónunnar hefur lækkað mikið eða um ríflega 40% frá miðju ári 2007, þegar hin alþjóðlega fjármálakreppa fór að gera vart við sig hér á landi. 21.1.2009 12:15
ESB samþykkir ríkisábyrgð Finna gagnvart Kaupþingi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú samþykkt ríkisábyrgð á innistæðum Kaupþings í Finnlandi. Fréttastofan greindi frá misvísandi fréttum um málið í gærdag en nú mun þetta komið á hreint. 21.1.2009 12:02